Mannfjöldaspá boðar mikla fjölgun aðfluttra Íslendinga

Íslendingar verða orðnir hálf milljón árið 2042, samkvæmt spá Hagstofunnar. Þar af fjölgar aðfluttum um 85 þúsund en fæðingar­tíðni lækkar. Karl­mönnum fjölgar hlutfalls­lega.

Mannfjöldanum viðhaldið
Mann­fjöld­anum við­haldið Í lágri fæð­ing­ar­tíðni getur fólks­fjölgun verið við­haldið með aðfluttu fólki frá öðrum löndum. Mynd: Golli

Á dögunum greindi Hagstofan frá því að samkvæmt nýrri spá yrðu Íslendingar orðnir hálf milljón innan 16 ára, en þeir eru nú um 392 þúsund. Þessari fjölgun er spáð þrátt fyrir að fæðingar­tíðni hafi fallið hratt síðustu ár á Íslandi.

Íslendingar, sem fyrir fáum árum skáru sig úr flestum Vestur­löndum með hærri fæðingar­tíðni, eru komnir niður í 1,56 börn á lífaldur hverrar konu. Til þess að viðhalda mann­fjöldanum þurfa að fæðast 2,1 barn á hverja konu. Þannig var það til ársins 2012, þegar fæðingar­tíðni á Íslandi tók að falla ört.

Munurinn liggur í því að lífaldur lengist og að Hagstofan tekur inn í spálíkan sitt að samtals 85.100 manns flytji til Íslands, umfram þau sem flytja frá Íslandi, til ársins 2042. Það er meira en allir aðfluttir umfram brott­flutta árin 1986 til 2024, sem voru 61 þúsund.

Spáin boðar að á næsta ári muni 5.400 manns flytja …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár