Palestínskur blaðamaður drepinn í átökum á Gaza

Palest­ínski blaða­mað­ur­inn Saleh Aljafarawi var skot­inn til bana á Gaza ein­ungis dögum eftir að Ísrael og Hamas náðu sam­komu­lagi um vopna­hlé. Um helg­ina kom til átaka á milli Hamas og Dughmush-klans­ins í Gaza-borg.

Palestínskur blaðamaður drepinn í átökum á Gaza

Saleh Aljafarawi, 28 ára palest­ínskur blaða­maður, var skot­inn til bana á Gaza ein­ungis dögum eftir að Ísrael og Hamas náðu sam­komu­lagi um vopna­hlé. 

Samkvæmt Al Jazeera var Aljafarawi skot­inn til bana af með­limum „vopn­aðra borg­ara­legra sveita“ sem eru sagðar tengj­ast Ísrael, þegar hann fjall­aði um átök í Sabra hverf­inu í Gaza-borg sem áttu sér stað um helg­ina.

Frétta­stofan Sanad sem Al Jazeera hefur umsjón með, hefur stað­fest mynd­skeið sem blaða­menn og aðgerða­sinnar birtu og sýndu lík Aljafarawi í vesti merktu Press eða fjöl­miðill í skotti á vöru­bíl. Hans hafði verið saknað frá morgni sunnu­dags.

Aljafarawi varð þekktur fyrir mynd­bandsefni sem hann birti á meðan stríð­inu á Gaza stóð yfir. Þá gerði hann einnig efni á YouTube, meðal ann­ars tón­list sem hann flutti. Wear the Peace, fata­merki sem vill stuðla að mann­rétt­indum, birti í dag mynd­band á Instagram af greftr­un­ar­at­höfn Aljafarawi en þar sést fjöldi fólks fylgja blaða­mann­inum …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár