Arabinn sem varð Rómarkeisari

Á þriðju öld var allt bókstaf­lega í hers höndum í Rómaveldi. Keisarar komu og fóru, valdarán voru tíð, uppreisnir og launmorð á þeim sem tóku sér keisara­nafn. Einn óvæntasti maðurinn sem þá náði æðstu völdum var Filippus Arabi.

Sá köflótti klútur sem hér hefur verið settur á styttu af Filippus Araba var reyndar ekki kominn í brúk á þriðju öld. Arabar notuðu að vísu þá þegar höfuðklúta til að skýla sér fyrir sól og sandi eyðimerkurinnar, en rauðköflótta mynstrið kom ekki til sögunnar fyrr en á að giska á 18. öld í fyrsta lagi.
Sá köflótti klútur sem hér hefur verið settur á styttu af Filippus Araba var reyndar ekki kom­inn í brúk á þriðju öld. Arabar not­uðu að vísu þá þegar höf­uð­klúta til að skýla sér fyrir sól og sandi eyði­merk­ur­innar, en rauð­köflótta mynstrið kom ekki til sög­unnar fyrr en á að giska á 18. öld í fyrsta lagi. Mynd: Samsett

Áútmánuðum ársins 244 var rómverskur her á þvælingi inni í miðri Mesópótamíu (Írak). Það er ekki ljóst hvað hann var að vilja þar, hvort þetta var markviss tilraun til að leggja undir höfuð­borgir Persa á svæðinu milli Tígris og Efrat eða hvort ætlunin var fyrst og fremst að hrella Persa og koma þeim úr jafnvægissvo þeir réðust ekki inn á rómver­skar lendur í heims­hlutanum – Palestínu, Sýrland, Anatólíu (Tyrkland), Armeníu.

Eitthvað meira en lítið virðist hafa verið í húfi því ekki minni maður en sjálfur keisarinn fór með stjórn hersins, Gordíanus 3. Hann var reyndar aðeins 19 ára og enginn sérstakur bógur heldur voru það gamal­reyndir herforingjar sem stjórnuðu hernum og í reynd – þótt öldunga­ráðið gamla í Rómaborg hafði enn einhver áhrif, stundum, ef til vill, kannski.

Kornungur keisari

Þótt burðugar heimildir skorti um árið 244 virðist ljóst að til orrustu Rómverja og Persa kom þar …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár