Mynd: Golli

Þolmörk þorps

Ætla má að ein komma þrjár milljón ferða­manna heim­sæki Vík í Mýrdal á þessu ári. Þorpið iðar af lífi en íbúar sem Heim­ildin ræðir við hafa áhyggjur af því að inn­viðir þoli ekki álagið.

Búist er við að 2,3 millj­ónir erlendra ferða­manna komi til Íslands á þessu ári sam­kvæmt Ferða­mála­stofu sem byggir þessar tölur á upp­lýs­ingum um brott­för erlendra far­þega frá Kefla­vík­ur­flug­velli. Farþegar skemmti­ferða­skipa sem koma hingað eru ekki inn í þess­ari en þeir voru 320 þús­und í fyrra. 

Tugir þús­unda starfa við ferða­þjón­ustu á Íslandi. Í maí síð­ast­liðnum störf­uðu til að mynda 32 þús­und mann­eskjur í ferða­þjón­ust­unni hér. Þetta kemur fram í skamm­tíma­hag­vísum Hag­stof­unnar um ferða­þjón­ustu sem birtir voru um miðjan júlí. Þar segir einnig að velta sam­kvæmt virð­is­auka­skýrslum svo­kall­aðra ein­kenn­andi greina í ferða­þjón­ustu hafi numið tæpum 139 millj­örðum króna í mars til apríl á þessu ári sem er um sjö pró­senta aukn­ing sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra. 

Ef spá Ferða­mála­stofu sem birt var í byrjun þessa árs ræt­ist mun ferða­manna­straum­ur­inn enn sækja í sig veðrið og þá munu tæp­lega 2,5 millj­ónir erlendra gesta spóka sig á Íslandi á næsta …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Takmarkalaus massatúrismi er alvarleg mengun í margvíslegum skilningi. Þegar heildarmyndin er skoðun er slík brjálsemi skaðleg. Hinir gráðugu vilja bara ekki viðurkenna það og þar liggur hundurinn grafinn.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið undanfarið ár