„Ég var lifandi dauð“

Lína Birgitta Sig­urð­ar­dóttir hlúir vel að heils­unni. Hún er 34 ára í dag og seg­ist ætla að vera í sínu besta formi fer­tug, and­lega og lík­am­lega. Á sinni ævi hefur hún þurft að takast á við marg­vís­leg áföll, en faðir hennar sat í fang­elsi og hún glímdi meðal ann­ars við ofsa­hræðslu, þrá­hyggju og búlemíu. Fyrsta fyr­ir­tækið fór í gjald­þrot en nú horfir hún björtum augum fram á veg­inn og stefnir á erlendan markað.

„Ég var lifandi dauð“

Eftir að hafa þurft að takast á við marg­vís­legar áskor­anir allt frá barn­æsku stendur Lína Birgitta Sig­urð­ar­dóttir sterk­ari eftir. Hún er áhrifa­valdur og eig­andi Define the Line Sport, sem fram­leiðir íþrótta­föt. Hún stefnir á að taka fyr­ir­tækið á erlendan markað og lætur engan bil­bug á sér finna, þrátt fyrir gjald­þrot. 

Var skapmikið barn 

Lína Birgitta var svo skap­stórt barn að hún var farin að taka reiði­köst tveggja ára. „Ég á rosa góða mömmu. Hún leyfði mér að klára köstin, svo fór ég beint í fangið á henni, alveg búin á því, og steinsofn­aði. Það var mikið skap í mér þar til ég varð ung­lingur.“

Þegar hún er spurð um fyrstu æskuminn­ing­una seg­ist hún muna vel eftir því þegar hún lærði að hjóla. Annars man hún lítið eftir æsk­unni og segir að það teng­ist áfalla­við­brögðum.

Þrá­hyggja kom snemma í ljós, en Lína forð­að­ist að ganga á sam­skeytum …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár