Einn látinn eftir eldsvoða í fjölbýlishúsi í Vesturbænum

Einn er lát­inn og tveir aðrir slas­aðir eftir elds­voð­ann í Vesturbæ Reykja­víkur í morgun. Tækni­deild lög­regl­unnar rann­sakar elds­upp­tök.

Einn látinn eftir eldsvoða í fjölbýlishúsi í Vesturbænum
Lög­reglan rann­sakar nú upp­tök elds­ins. Mynd: Golli

Einn er lát­inn eftir að eldur kvikn­aði í íbúð fjöl­býl­is­húss í Vesturbæ Reykja­víkur í morgun, en til­kynn­ing um eld­inn barst rétt eftir tíu leytið að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þrír voru í íbúð­inni og voru fluttir á slysa­deild, en annar þeirra sem lifði slysið af er alvar­lega slas­aður. Tækni­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar nú elds­upp­tökin.

Gríð­ar­legur við­bún­aður slökkvi­liðs og lög­reglu var við fjöl­býl­is­hús við Hjarð­ar­haga í Reykja­vík í dag.

Mbl.is segir að um spreng­ingu hafi verið að ræða í hús­inu og að einn maður hafi komið alblóð­ugur út um glugga í kjall­ara. Um tölu­verðan eld hefði verið að ræða.

Lög­reglan seg­ist ekki geta gefið frek­ari upp­lýs­ingar í bili.

 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár