Bókmenntahátíð á Svalbarða – og nokkrir ísbirnir

Stella Soffía Jóhann­es­dóttir er fram­kvæmda­stjóri Alþjóð­legu bók­mennta­há­tið­ar­innar í Reykja­vík. Hún ferð­ast víða með bók­menntum, í ýmsum skiln­ingi, en nýverið fór hún til Sval­barða, ásamt Jóni Kalman og Sigríði Hagalín, til að stjórna umræðum með rit­höf­und­unum. Stella Soffía skrifar hér um bók­mennt­areis­una til Sval­barða; ísbirni, gleði­göngu og rit­höf­unda.

Bókmenntahátíð á Svalbarða – og nokkrir ísbirnir
Lítil byggð „Há fjöll blöstu við, þröngir firðir, lítið und­ir­lendi og svo kúrði þarna lítil byggð af fremur lágreistum en lit­ríkum húsum.

O Wow O Wow (How Wonderful She Is). Þetta lag af nýju plöt­unni með Nick Cave and the Bad Seeds hljóm­aði í eyrum mér þegar flug­vélin gerði sig lík­lega til að lenda á flug­vell­inum á Sval­barða. Einhvern veg­inn varð einmitt þessi lína úr lag­inu að leið­ar­stefi ferðar okkar hjóna þangað fyrstu daga síð­ast­lið­ins sept­em­ber­mán­aðar því þar er margt til að hríf­ast af og taka and­köf yfir. Ferðinni var heitið á Longye­ar­byen litt­era­t­ur­festi­val, á nyrstu bók­mennta­há­tíð heims, þangað sem mér var boðið frá Íslandi til þess að segja frá íslenskum bók­menntum og stjórna dag­skrá með rit­höf­und­unum Sigríði Hagalín Björns­dóttur og Jóni Kalman Stef­áns­syni.

Heimsins nyrsta …

Sval­barði er eyja­klasi sem að flat­ar­máli sam­svarar um 60% af stærð Íslands en stærsta eyjan er kölluð Spitzbergen („odd­hvöss fjöll“) því hol­lenska land­könn­uð­inum Willem Barentsz, sem kom eyj­unum á kortið, fannst það sér­lega lýsandi. Það er óhjá­kvæmi­legt að taka undir með Bartentsz, …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár