Sér sóknarfæri fyrir „alvöru vinstri rödd“

Svandís Svav­ars­dóttir telur að þörf sé á að sterk vinstri rödd heyr­ist á Alþingi og treystir sér til þess að hafa þá rödd VG sterka. Hún segir að Sam­fylk­ingin hafi pakkað sterkum vinstri­málum saman og að í því felist sókn­ar­færi fyrir VG. Svandís telur stærstu áskor­anir sam­tím­ans ekki þannig vaxnar að kap­ít­al­ism­inn sé svarið – ef fjár­magn sé eina hreyfi­aflið í sam­fé­lag­inu séum við ekki á réttri leið.

Sér sóknarfæri fyrir „alvöru vinstri rödd“

Svandís Svav­ars­dóttir verður kjörin for­maður Vinstri grænna eftir rúma viku, nema eitt­hvað óvænt komi upp, en hún hefur boðið fram krafta sína til emb­ætt­is­ins. Í við­tali við Heim­ild­ina ræðir hún auk ann­ars rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og stöðu og erindi Vinstri grænna í íslenskum stjórn­málum. 

Blaða­maður hitti Svandísi í inn­við­a­ráðu­neyt­inu á mið­viku­dag og hóf á að spyrja hana út í til­lögu um stjórn­ar­slit sem tekin verður fyrir á lands­fundi VG sem fram fer um aðra helgi, 4.–6. októ­ber. Að henni standa níu ein­stak­lingar úr gras­rót Vinstri grænna sem telja að kom­inn sé tími á að stíga frá sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hvernig vill Svandís að lands­fund­ur­inn með­höndli þessa til­lögu?

„Mér finnst mjög mik­il­vægt að við ræðum sam­starfið, að því leyt­inu til teldi ég skrítið ef það væri ekki nákvæm­lega svona til­laga í far­vatn­inu. Ég sé það líka á lands­fund­ar­dag­skránni að það er gert ráð fyrir klukku­tíma umræðu um rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og stjórn VG hefur tekið …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Þvílík hræsni! VG búið að hjálpa til að leggja þjóðfélagið í rúst!!!
    0
  • HR
    Hilmar Ragnarsson skrifaði
    Hélt hún væri búin að brenna allar brýr að baki með arfaslakri frammistöðu í bæði heilbrigðis- og matvælaráðuneytinu, ætti fyrir löngu síðan að vera búinn að segja af sér og slíta stjórnarsamstarfi.
    1
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Þetta er skemmdur flokkur og á að leggja niður. Strax!
    1
  • Þór Saari skrifaði
    Algert froðusnakksviðtal frá upphafi til enda. Úff! Atkvæðir greit VG er atkvæði greitt Sjálfstæðisflokki og stöðnun.
    1
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    VG hefur aldrei átt neitt erindi í íslenska pólitík !
    Svik og prettir ! Núna er spurningin hvers vegna ?
    -1
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Gripið í rassinn… allt, allt of seint, a.m.k. að mínu mati.

    Aldrei Vg!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár