Einfaldara líf eftir ferðalag um bláu svæði heimsins

Guðjón Svansson og Vala Mörk ferð­uð­ust ásamt yngri sonum sínum tveimur um heim­inn og upp­götv­uðu leynd­ar­dóma bláu svæð­anna svoköll­uðu, svæða þar sem lang­lífi og góð heilsa hald­ast í hendur. Ferða­lagið var skemmti­legt, erfitt, for­vitni­legt og lær­dóms­ríkt. Og breytti lífi þeirra.

Einfaldara líf eftir ferðalag um bláu svæði heimsins
Styrk­leikar heims­ins Hjónin Gaui og Vala segja ferð­uð­ust um bláu svæði heims­ins þar sem góð heilsa og lang­lífi hald­ast í hendur. Þau segja alla getað til­einkað sér lífs­venjur bláu svæð­anna, eina sem þarf að gera er að finna hvar styrk­leikar manns liggja. Mynd: Golli

Ein­fald­leik­inn er oft lyk­ill­inn að til­gang­inum.

Það er einn af fjöl­mörgum lær­dómum sem hjónin Guðjón Svansson og Vala Mörk drógu á ferða­lagi fjöl­skyld­unnar um svoköll­uðu bláu svæði heims­ins fyrir fimm árum. 

Hugtakið, Bláu svæðin (e. Blue zones), er hug­ar­smíði Dan Buettner, blaða­manns hjá National Geographic. Buettner hefur ferð­ast víða og tók eftir á flakki sínu um heim­inn að á ákveðnum svæðum var tíðni lang­vinnra sjúk­dóma lægri en ann­ars staðar og lang­lífi ein­kenndi íbúa. Um alda­mótin 2000 lá leið hans til Okinawa í Japan þar sem hann rann­sak­aði lang­lífi eyja­skeggja. 

Í kjöl­farið lagð­ist hann í rann­sókn­ar­vinnu ásamt teymi vís­inda­manna og lýð­fræð­inga sem rann­sök­uðu hvað þessi svæði áttu sam­eig­in­legt. Til urðu Bláu svæðin, fimm afmark­aðir staðir í heim­inum sem eiga það sam­eig­in­legt að lang­lífi og góð heilsa hald­ast í hendur. Bláu svæðin eru Loma Linda í Kali­forníu, Nicoya-skag­inn í Kosta Ríka, jap­anska eyjan Okinawa, ítalska eyjan Sardinía og …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigtryggur Jónsson skrifaði
    Allt gott og blessað að öðru leyti en því að það er afar langt frá því að nokkurt þessara svæða sé nálægt miðbaug.
    1
    • Arnljótur Sigurjónsson skrifaði
      Til HAMINGJU !
      0
    • Arnljótur Sigurjónsson skrifaði
      Til HAMINGJU !
      0
    • Arnljótur Sigurjónsson skrifaði
      Til HAMINGJU !
      0
    • PH
      Pétur Hilmarsson skrifaði
      Það er búið að taka miðbauginn út úr vefútgáfunni en fólk getur lesið þetta á pappírsútgáfunni. Einnig var sagt (sem hefur líka verið tekið út úr vefútgáfunni) að þessi svæði væru "harðbýl" líkt og Ísland!!
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár