Evrópa kýs sér 720 þingmenn

Dagana 6. til 9. júní fara fram kosn­ingar til Evr­ópu­þings­ins. Kosið er á fimm ára fresti í aðild­ar­ríkj­unum sem nú eru 27 og íbú­arnir um 450 millj­ónir. Áhugi fyrir kosn­ing­unum virð­ist meiri en oft áður.

Evrópa kýs sér 720 þingmenn
Sækist eftir áfram­hald­andi setu Á meðal þeirra sem eru í fram­boði í kosn­ing­unum framundan er Ursula von der Leyen, núver­andi for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Þar er hún odd­viti Evrópska þjóð­ar­flokks­ins, sam­starfs­vett­vangs kristi­legra demókrata og ann­arra mið­hægri­flokka í álf­unni. Mynd: AFP
Hlustaðu 08:47 · Eitt og annað

Evr­ópu­sam­bandið, Evr­ópu­ráðið, Evr­ópu­þingið, fram­kvæmda­stjórn ESB, Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu, ráð­herra­ráð ESB, dóm­stóll Evr­ópu­sam­bands­ins, leið­toga­ráð ESB. Allt kunn­ug­leg orð sem oft má heyra og sjá í fjöl­miðlum en valda stundum rugl­ingi.

Í þess­ari grein verður ekki reynt að fjalla um þessar stofn­anir allar, hlut­verk þeirra og starf­semi, slíkt er efni í heila bók.

Eins og fram kom í inn­gangi fara í næstu viku fram kosn­ingar til Evr­ópu­þings­ins. Þá verða kosnir 720 þing­menn, sumir þeirra sem eru í fram­boði eru núver­andi full­trúar aðild­ar­ríkj­anna 27 en aðrir nýliðar á þessum vett­vangi.

Ræðustóll Evrópu

Það er ekki að ástæðu­lausu að Evr­ópu­þingið er stundum kallað ræðu­stóll Evrópu. Þar ræða Evr­ópu­þing­menn­irnir fram og til baka, og deila jafn­vel hart, um öll mögu­leg mál sem varða aðild­ar­ríkin og reyndar margt fleira. Málefni land­bún­aðar í Evrópu, umhverf­is­mál og mál­efni flótta­fólks hafa tekið mik­inn tíma á kjör­tíma­bil­inu sem nú er að ljúka.

„Tæplega 400 þús­und manns reyndu að kom­ast til landa Evr­ópu­sam­bands­ins á síð­asta ári, eftir „óhefð­bundnum leiðum““

Tæplega 400 þús­und manns reyndu að kom­ast til landa Evr­ópu­sam­bands­ins á síð­asta ári, eftir „óhefð­bundnum leiðum“, stærsti hóp­ur­inn á alls kyns fleytum yfir Mið­jarð­ar­hafið. Þótt þetta sé stór hópur er hann þó aðeins um fjórð­ungur þeirra sem það ár, 2023, leit­uðu hælis í Evrópu, stærsti hluti hæl­is­leit­enda og flótta­fólks kom þangað eftir hefð­bundnum leiðum. Þessar upp­lýs­ingar eru frá Frontex, landamæra­stofnun Evrópu.

Evr­ópu­þingið var stofnað árið 1952, sama ár og Kola- og stál­banda­lag Evrópu, sem síðar varð að Evr­ópu­sam­band­inu. Evr­ópu­þingið var í fyrstu ráð­gjaf­ar­þing og þing­full­trú­arnir, sem í upp­hafi voru 78, komu frá þjóð­þingum aðild­ar­ríkj­anna. Þessu fyr­ir­komu­lagi var breytt árið 1979 og frá þeim tíma hefur verið kosið beint til Evr­ópu­þings­ins á fimm ára fresti í öllum aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Í kosn­ing­unum 2019 var 751 þing­maður kjör­inn, en það er hámarks­fjöldi þing­manna sam­kvæmt sam­komu­lagi sem tók gildi 1. des­em­ber 2009, Lissabon-sátt­mál­anum svo­nefnda. Við útgöngu Breta úr ESB fækk­aði þing­sætum en eftir kosn­ing­arnar núna í júní verða þau 720. Hlutfall karla á þing­inu er 59,4 pró­sent en kvenna 40,6%.

Hlutverk

Völd Evr­ópu­þings­ins hafa auk­ist tals­vert með árunum í takti við þá við­leitni sam­bands­ins að auka lýð­ræð­is­lega ábyrgð og gagn­sæi varð­andi stefnu­mótun Evr­ópu­sam­bands­ins. Hlutverk Evr­ópu­þings­ins er þrí­þætt. Það sam­þykkir lög í sam­vinnu við leið­toga­ráðið (sam­starfs­vett­vang þjóð­ar­leið­toga aðild­ar­ríkj­anna), það deilir fjár­veit­inga­vald­inu ásamt leið­toga­ráð­inu og hefur úrslita­vald við afgreiðslu fjár­lag­anna og sinnir jafn­framt lýð­ræð­is­legu eft­ir­liti með öllum stofn­unum ESB.

Þingið hefur ekki frum­kvæði að laga­setn­ingu en getur hvatt fram­kvæmda­stjórn­ina til að leggja fram til­lögur sem þingið telur mik­il­vægar. Samþykki Evr­ópu­þings­ins er skil­yrði við skipan nýrrar fram­kvæmda­stjórnar ESB. Í eft­ir­lits­hlut­verk­inu felst að Evr­ópu­þingið getur með 2/3 hluta atkvæða lýst van­trausti á fram­kvæmda­stjórn ESB, sem þá yrði að segja af sér.

Kosningar og flokkahópar

Eins og fram kom í inn­gangi verður kosið til Evr­ópu­þings­ins dag­ana 6.–9. júní. Kosið er á lands­vísu, fyr­ir­komu­lagið er þannig að fámenn­ari aðild­ar­ríki fá hlut­falls­lega fleiri þing­sæti en þau fjöl­menn­ari. Flestir núver­andi þing­manna eru frá Þýska­landi, 96 tals­ins, en fæstir frá Möltu, þeir eru 6. Í kosn­ing­unum 2019 var kosn­inga­þátt­taka í heild­ina 50,6% en mjög mis­mun­andi eftir löndum, mest í Belgíu og Lúx­em­borg (þar er kosn­inga­skylda) en minnst í Slóvakíu.

„Enginn einn flokka­hópur hefur til þessa haft meiri­hluta á þing­inu en mikil hefð er fyrir mála­miðl­unum milli hinna ólíku flokka­hópa á þing­inu“

Þingmenn á Evr­ópu­þing­inu skipa sér í hópa á grund­velli hug­mynda­fræði. Flokka­hóp­arnir á núver­andi þingi eru sjö og innan þeirra full­trúar 203 stjórn­mála­flokka. Enginn einn flokka­hópur hefur til þessa haft meiri­hluta á þing­inu en mikil hefð er fyrir mála­miðl­unum milli hinna ólíku flokka­hópa á þing­inu.

Um flokka­hópana eru reglur í þing­sköpum Evr­ópu­þings­ins, þannig þarf að lág­marki 25 þing­menn frá að minnsta kosti fjórð­ungi aðild­ar­ríkj­anna. Hver flokka­hópur hefur for­mann og rekur skrif­stofu. Kostn­aður við starf flokka­hópa er greiddur úr sam­eig­in­legum sjóði þings­ins, sam­kvæmt reglum sem um slíkt gilda. Þingmenn geta ein­ungis verið í einum flokka­hópi, en geta skipt um flokk eða verið utan hópa sem óháðir. Hlutverk flokka­hópanna er meðal ann­ars að taka afstöðu til laga­frum­varpa sem unnið er að í fasta­nefndum, sem eru 20 og gera breyt­ing­ar­til­lögur ef svo ber undir. Í hverri nefnd sitja ekki færri en 20 þing­menn og ekki fleiri en 81. 

720 þingmenn og 24 tungumál

Eins og gefur að skilja getur reynst snúið að ná sam­komu­lagi í 720 manna hópi þar sem töluð eru 24 tungu­mál. Eins og tíðkast á flestum þjóð­þingum eru innan Evr­ópu­þings­ins fjöl­margar nefndir, lofts­lags­nefnd, nefnd um mál­efni innri mark­aðar og svo fram­vegis. Þegar fram­kvæmda­stjórnin leggur fram frum­varp um til­tekið mál er það tekið til með­ferðar í við­kom­andi nefnd, sem svo skilar áliti. Þegar þingið hefur orðið sam­mála, oft eftir margar breyt­ingar og langar umræður, fer frum­varpið aftur til fram­kvæmda­stjórn­ar­innar.

Forseti Evr­ópu­þings­ins er full­trúi þess út á við og gagn­vart öðrum stofn­unum ESB. Hann hefur jafn­framt yfir­um­sjón með þing­stör­f­unum. Forseti er kjör­inn á tveggja og hálfs árs fresti.

Brussel, Strassborg og Lúxemborg

Segja má að starf­semi Evr­ópu­þings­ins fari fram í þremur borgum. Aðal­skrif­stofa þings­ins er í Lúx­em­borg, þar starfa um 2.200 manns, opin­bert aðsetur Evr­ópu­þings­ins er hins vegar í Strass­borg og þar eru starfs­menn um 300. Þunga­miðja starfs­ins fer fram í Brussel, starfs­menn þar eru um 5.000 og  loks starfa 300 á öðrum stöðum. Samtals eru þetta 7.800 manns. Þetta fyr­ir­komu­lag, að skipta starf­sem­inni milli þriggja borga, hefur iðu­lega sætt mik­illi gagn­rýni og ætíð heyr­ast raddir sem vilja að allt þing­haldið verið flutt til Brussel. Þessi eilífi „ferðasirkus“ eins og sumir hafa kom­ist að orði kostar mikla pen­inga og tekur tíma. Að flytja starf­sem­ina alfarið til Brussel mega Frakkar ekki heyra minnst á og þar við situr.

Útlit fyrir meiri kosningaþátttöku en oft áður

Líkt og áður sagði var þátt­taka í kosn­ing­unum fyrir fimm árum 50,6% sem var meira en verið hafði frá árinu 1994. Margt bendir til að meiri áhugi sé fyrir kosn­ing­unum að þessu sinni en oft áður, þótt það komi ekki í ljós fyrr en eftir að þeim lýkur 9. júní. Stjórn­mála­skýrendur telja að þrjár ástæður öðrum fremur valdi því að áhugi fyrir kosn­ing­unum virð­ist meiri nú. Í fyrsta lagi að margir Evr­ópu­búar telji brýnni nauð­syn nú en oft áður að standa saman og þeir líti á Evr­ópu­sam­bandið og stofn­anir þess sem eins konar „útvörð Evrópu“ á við­sjár­verðum tímum, í öðru lagi sýni ungt fólk kosn­ing­unum auk­inn áhuga og í þriðja lagi auk­inn stuðn­ingur við hægri öfl víða í álf­unni. Sú stað­reynd hvetji íbúa álf­unnar til að nýta atkvæð­is­rétt­inn, þá sem aðhyll­ast ákveðna hægri stefnu í von um að auka fylgið á þeim væng stjórn­mál­anna og svo hina sem vilja standa gegn slíku.

Í þess­ari grein hefur ekki verið fjallað um póli­tík­ina innan Evr­ópu­þings­ins, það væri efni í aðra grein.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EK
    Elísabet Kjárr skrifaði
    Gaman að nefna að Evrópskir Píratar eiga fjóra þingmenn á fráfarandi þingi. Píratar eru nefnilega eini flokkurinn sem er til víða um heiminn, meira að segja í Japan ☺️
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár