Þetta er hálfgerður öskurgrátur

Þetta er hálfgerður öskurgrátur

Reynir Hauksson gít­ar­leik­ari, sem þekktur er sem Reynir del norte, eða Reynir norð­urs­ins, hefur elt ævin­týrin um heim­inn og hikar ekki við að hefja nýjan feril á full­orð­ins­árum. Hann flutti til Spánar til að læra flamenco-gít­ar­leik, end­aði á íslenskum jökli og er nú að hefja mynd­list­ar­nám á Spáni. Hann hefur þurft að takast á við sjálfan sig, ástir og ást­ar­sorg og lent oftar en einu sinni í lífs­háska.

Hann er hávax­inn og með sítt, dökkt hár. Situr á efstu hæð í Gamla bíói þar sem óperu­söngur hljóm­aði í hús­inu um ára­bil. Gítarinn er í tösku á bak við hann. Hann er í stuttu stoppi á Íslandi. Heimili hans er á Spáni en flamenco-tón­listin tog­aði í hann á sínum tíma.

Áður er hann segir frá því talar hann um æsk­una – hávaxni, íslenski flamenco-gít­ar­leik­ar­inn sem þekktur er undir nafn­inu Reynir del norte; Reynir norð­urs­ins.

Reynir á fjögur eldri systk­ini og seg­ist hafa fundið fyrir afbrýði­semi þegar litli bróðir hans kom í heim­inn. „Ég var rúm­lega eins árs þegar hann fædd­ist. Ég fann strax líka fyrir ábyrgð­ar­til­finn­ingu af því að ég var hræddur við það alla barn­æsk­una mína að hann myndi drepa sig; detta á haus­inn og rot­ast. Ég var bara skít­hræddur um hann og ég reyndi að passa mikið upp á hann.“ 

Fjöl­skyldan bjó á Hvann­eyri …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár