Ríkisstjórn mynduð utan um hræðslu við að mæta kjósendum
Blendnar til­finn­ingar Bjarni Bene­dikts­son er him­in­lif­andi með að verða orð­inn for­sæt­is­ráð­herra að nýju. Aðrir ráð­herrar virð­ast ekki deila þeirri fölskvalausu gleði með honum. Mynd: Golli

Ríkisstjórn mynduð utan um hræðslu við að mæta kjósendum

Skoðað var hvort hægt yrði að kjósa til þings í næsta mán­uði, áður en for­seta­kosn­ing­arnar færu fram. Þreif­ingar við Viðreisn um að koma inn í rík­is­stjórn sem vara­dekk fyrir Vinstri græn hófust fyrir páska, og þar með tölu­vert áður en Katrín Jak­obs­dóttir til­kynnti um for­seta­fram­boð. Stjórn­ar­flokk­arnir vilja alls ekki fara í kosn­ingar í sumar eða næsta haust, þrátt fyrir að vera ekki sam­mála í stórum málum sem þarfn­ast úrlausnar, þar sem þeir eru að mæl­ast afleit­lega í könn­unum og litlar líkur á að sú staða muni lag­ast á næstu mán­uðum.

Annað ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar var kynnt á mið­viku­dag, í því sem varla verður lýst öðru­vísi en sem bak­her­bergi á efstu hæð Hörpu. Fjöl­miðla­fólki var vísað inn í lyftu í and­dyr­inu sem flutti það upp á fimmtu hæð og inn á það sem virt­ist vera bak­sviðs­gangur aust­ast á hæð­inni. 

Þrír hljóð­nemar stóðu þar við gler­vegg­inn sem vís­aði út á höfn­ina. Þangað sá þó eng­inn. Þoka hafði safn­ast þar saman, svo þétt að hlað­inn hafn­ar­kant­ur­inn rétt neðan við Hörpuna var ekki einu sinni sjá­an­legur.

Mitt í því sem blaða­menn rýndu í þok­una og reyndu eftir mætti að eygja það sem fyrir utan var, gengu þrír menn inn þröngan gang­inn. Þrír menn sem hver um sig leiðir stjórn­mála­flokk, sem saman mæl­ast með  31,1 pró­sent fylgi, voru þarna að kynna nýja rík­is­stjórn. Þessi nýja átti að hverf­ast um stöð­ug­leika, líkt og þær sem sömu flokkar mynd­uðu 2017 og 2021. Þegar leið­tog­arnir þrír höfðu allir …

Kjósa
59
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Drauga-ríkisstjórn Bjarna Ben gjöri þið svo vel.
    1
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Það sem vekur mesta athygli á þessari grein er hversu hún er illa skrifuð málfarslega. Er ekkert til sem heitir prófarkalestur í blaðamennsku í dag?
    0
    • FJR
      Frosti Jón Runólfsson skrifaði
      Ef það er það sem vekur mesta athygli þína þá ert þú í toppmálum.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár