Söngur Sama
Mikil áhrif Hrein­dýra­hirðirinn John Kristian Jama lítur út í átt að vind­myllum í Storheia vind­garð­inum, einum stærsta vind­garði Evrópu á landi, í sveit­ar­fé­lag­inu Afjord í Noregi þann 7. des­em­ber 2021. Mynd: Mynd: Jonathan NACKSTRAND / AFP

Söngur Sama

Áhrif vind­myllu­garða á líf og menn­ingu Sama í Noregi.

Sápmi fyrir Sama!“ hljóma loka­orð ljóðs­ins Sámi soga lávlla (sem þýða má á íslensku sem Söngur Sama). Ljóðið var samið af Isak Saba, fyrsta samíska þing­manni Noregs, árið 1906 og vísar texti þess til þeirrar bar­áttu sem Samar hafa háð fyrir varð­veislu menn­ing­ar­arf­leifðar sinnar og lifn­að­ar­háttum í heima­landi sínu, Sápmi. Ljóðið er í dag þjóð­söngur allrar samísku þjóð­ar­innar. 

Tengsl Sama við umhverfið og landsins gæði 

Samar eru frum­byggja­þjóð sem er að megn­inu til búsett á því svæði sem kall­ast Fennóskandía og nær til norð­ur­hluta Noregs, Sví­þjóðar og Finn­lands ásamt hluta af Kóla­skaga í Rúss­landi. Heima­land Sama kall­ast Sápmi og spannar það um 400.000 fer­kíló­metra, sem er um það bil fjórum sinnum stærð Íslands. Engin opin­ber skrán­ing er til um íbúa­fjölda Sápmi en sam­tals eru Samar lík­lega á bil­inu 75.000 til 100.000 tals­ins. Samar rekja búsetu sína á svæð­inu aftur um árþús­und en talið er að for­feður þeirra hafi verið hirð­ingjar sem komu fyrst til Fennóskandíu við lok síð­ustu ísaldar, eða fyrir um 11.000 árum. Samfélag Sama í Fennóskandíu skipt­ist upp í mörg menn­ing­ar­lega og félags­lega ólík sam­fé­lags­brot sem hvert hefur sína sér­stöðu hvað varðar hefðir, siði og tungu­mál. Þó eru sumar venjur og hug­myndir sem sam­eina flest, ef ekki öll, samísk sam­fé­lög og má þar til að mynda nefna tengsl Sama við nátt­úr­una og umhverfi sitt. Virðing gagn­vart umhverf­inu er meðal grunn­gilda samískra sam­fé­laga og er mik­il­vægi lands­ins og auð­linda þess fyrir líf og menn­ingu Sama óum­deil­an­legt. Samísk sam­fé­lög hafa til að mynda löngum stundað hjarð­bú­skap með hrein­dýr á svæð­inu og nýta mörg þeirra þannig lands­ins gæði sér til lífs­við­ur­væris. 

Óréttlæti gagnvart Sömum af hálfu norskra yfirvalda 

Samar og Norðmenn eiga sér langa sögu sam­búðar á því svæði sem í dag til­heyrir Noregi. Sú sam­búð hefur þó oft og tíðum ein­kennst af yfir­læt­is­semi og grimmd norskra stjórn­valda gagn­vart Sömum. Má þar helst nefna hina svoköll­uðu norsku­væð­ingu samískra sam­fé­laga sem hófst um miðja 19. öld og var ekki form­lega afnumin fyrr en seint á fimmta ára­tug síð­ustu aldar. Norsku­væð­ingin var opin­ber aðlög­un­ar­stefna norska rík­is­ins sem sner­ist fyrst og fremst um að gera Sama að „sönnum“ Norð­mönnum og aðlaga þannig samísk sam­fé­lög að þeim norsku. Samar voru látnir taka upp norska tungu og menn­ingu og í raun lifa að mestu leyti líkt og Norðmenn. Jafn­framt var þeim bannað að tala sín samísku tungu­mál og iðka ákveðna samíska siði. Dæmi eru um að börn Sama hafi verið tekin frá fjöl­skyldum sínum og sett í fóstur til norskra fjöl­skyldna með það að mark­miði að þau lærðu norska tungu­málið og ælust upp innan um norska menn­ingu. Þrátt fyrir að yfir­völd í Noregi hafi opin­ber­lega lagt niður aðlög­un­ar­stefnu sína fyrir um 70 árum má enn gæta áhrifa hennar og afleið­inga fyrir samísk sam­fé­lög í Noregi og finna Samar enn í dag fyrir for­dómum og van­virð­ingu í sinn garð. Ein birt­ing­ar­mynd þess órétt­lætis eru þau áhrif sem upp­bygg­ing vind­myllu­garða í Noregi hafa haft á líf og menn­ingu Sama þar í landi. 

Áhrif vindmyllugarða á samfélög Sama í Noregi 

Upp­bygg­ing Øyfjellet vind­myllu­garðs­ins nálægt bænum Mosjøen í Nordland-fylki Noregs er dæmi um vind­myllu­garð sem hefur haft, og hefur enn, nei­kvæð áhrif á líf Sama, einkum og sér í lagi hjarð­bú­skap þeirra með hrein­dýr. Vind­myllu­garð­ur­inn, sem sam­anstendur af 71 vind­myllu á um 40 fer­kíló­metra land­svæði, er stað­settur í miðju beit­ar­landi og mik­il­vægri far­leið hrein­dýra­hjarðar suður-samíska sam­fé­lags­ins Jillen Njaarke, sem stundað hefur hjarð­bú­skap á svæð­inu frá því á 17. öld. Strax við upp­haf leyf­is­veit­ing­ar­fer­ils­ins lýstu Jillen Njaarke-Samar yfir áhyggjum sínum af því að upp­bygg­ing vind­myllu­garðs­ins myndi hafa slæmar afleið­ingar í för með sér fyrir búskap þeirra og brjóta þar af leið­andi í bága við rétt þeirra til að við­halda samískri menn­ingu sinni. Þegar norska olíu- og orku­mála­ráðu­neytið gaf sitt leyfi fyrir verk­efn­inu árið 2016 var það með því skil­yrði að hafnar yrðu við­ræður við Jillen Njaarke-sam­fé­lagið og að kom­ist yrði að sam­komu­lagi. Í dag, eftir að upp­bygg­ingu vind­myllu­garðs­ins er lokið og vind­myll­urnar hafa verið teknar í notkun, hefur ekki enn náðst sam­komu­lag milli fram­kvæmda­að­ila og Jillen Njaarke-sam­fé­lags­ins.

„Vind­myllu­garð­ur­inn, sem sam­anstendur af 71 vind­myllu á um 40 fer­kíló­metra land­svæði, er stað­settur í miðju beit­ar­landi og mik­il­vægri far­leið hrein­dýra­hjarðar“

Annað dæmi um upp­bygg­ingu vind­myllu­garða sem haft hefur nei­kvæð áhrif á líf Sama er Fosen Vind-verk­efnið á Fosen-skag­anum í Trøndelag-fylki Noregs. Verk­efnið sam­anstendur af upp­bygg­ingu sex aðskil­inna vind­myllu­garða og er eitt það stærsta sinnar gerðar í Evrópu. Líkt og með Øyfjellet-vind­myllu­garð­inn eru tveir vind­myllu­garðar Fosen-verk­efn­is­ins, Roan og Storheia, stað­settir innan mik­il­vægra beit­ar­landa og far­leiða hrein­dýra­hjarða samísku sam­fé­lag­anna Sør-Fosen og Nord-Fosen. Samar komu því fljótt á fram­færi við norsk yfir­völd að fram­kvæmd­irnar myndu brjóta á laga­legum rétti þeirra til að njóta eigin menn­ingar. Þeirri stað­hæf­ingu var hins vegar hafnað af olíu- og orku­mála­ráðu­neyti Noregs árið 2013 og í kjöl­farið var málið lagt fyrir hæsta­rétt Noregs. Þrátt fyrir að málið væri í ferli innan dóm­stóla­kerf­is­ins fengu fram­kvæmda­að­ilar samt sem áður leyfi til að hefja upp­bygg­ingu vind­myll­anna sem voru til­búnar til notk­unar á áætl­uðum tíma árið 2020. Í áliti sínu á mál­inu leit hæsti­réttur Noregs fyrst og fremst til þess hvort upp­bygg­ing Roan og Storheia-vind­myllu­garð­anna bryti í bága við rétt­indi hrein­dýra­hirða sam­kvæmt ákvæði 27. greinar alþjóða­samn­ings um borg­ara­leg og stjórn­mála­leg rétt­indi. Í ákvæð­inu er kveðið á um að ein­stak­lingum sem til­heyra þjóð­ernis-, trúar- eða tungu­mála­minni­hluta­hópi skuli ekki meinað að fram­fylgja rétti sínum til að njóta eigin menn­ingar. Það er óum­deil­an­legt að hrein­dýra­bú­skapur Sama er vernduð menn­ing­ar­arf­leifð og því, í októ­ber 2021, dæmdi hæsti­réttur Noregs leyfið fyrir upp­bygg­ingu áður­nefndra vind­myllu­garða ógilt. Þegar hæsti­réttur gaf út úrskurð sinn í mál­inu voru vind­myllur Roan og Storheia-garð­anna hins vegar þegar komnar í gang og þar sem ekki var mælt fyrir um sér­stakar aðgerðir í úrskurði hæsta­réttar eru vind­myllu­garð­arnir tveir enn í dag starf­andi. 

Órétt­lætiSissel Stormo Holtan situr við hlið hrein­dýrs fyrir utan heim­ili sitt í Namdalseid, sem er hluti af Troendelag-fylki í Noregi, 7. des­em­ber 2021.

Noregur er lýð­ræð­is­ríki sem ein­kenn­ist af traustu vel­ferð­ar­kerfi, félags­legum jöfn­uði, öfl­ugri almanna­þjón­ustu og almennri inn­gild­ingu ólíkra sam­fé­lags­hópa. Í því skyni búa Samar yfir ákveðnum stjórn­ar­skrár­bundnum rétt­indum sem frum­byggjar Noregs og þá hafa norsk yfir­völd einnig tekið upp og inn­leitt ýmsar alþjóð­legar sam­þykktir og reglu­gerðir er varða rétt­indi frum­byggja. Noregur var til að mynda fyrsta ríkið í heim­inum til að inn­leiða 169. sam­þykkt Alþjóða­vinnu­mála­stofn­un­ar­innar sem fjallar um frum­byggja og ætt­flokka í sjálf­stæðum ríkjum. Þá var Noregur einnig meðal þeirra ríkja sem sam­þykktu yfir­lýs­ingu Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi frum­byggja árið 2007. Réttindi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttur Sama í Noregi nýtur því ítar­legrar laga­legrar verndar en þrátt fyrir það virð­ast mögu­leikar samískra sam­fé­laga til póli­tískra áhrifa, enn sem komið er, ófull­nægj­andi. Það er til að mynda ljóst að þegar kemur að leyf­is­veit­ingum fyrir upp­bygg­ingu vind­myllu­garða innan þeirra land­svæða sem samísk sam­fé­lög nýta til hrein­dýra­bú­skapar hafa rétt­indi Sama ítrekað verið brotin og álit þeirra hunsað. Í bæði Fosen og Øyfjellet-mál­unum höfðu vind­orku­fyr­ir­tækin fengið sam­þykki fyrir upp­bygg­ingu vind­myllu­garð­anna umræddu áður en gildi leyf­is­ins var tekið fyrir innan rétt­ar­kerf­is­ins, áhrif þeirra á líf og menn­ingu Sama voru athuguð til hlítar og sam­þykki fékkst frá þeim samísku sam­fé­lögum er málin vörð­uðu. 

Mikilvægi inngildingar minnihlutahópa 

Inn­gild­ing minni­hluta­hópa, sér­stak­lega í ferli mála er þá varða, er nauð­syn­leg fyrir varð­veislu ólíkra menn­ing­ar­arf­leifða sem og jafn­rétti í sam­fé­lag­inu almennt. Inn­gild­ing samískra sam­fé­laga í leyf­is­veit­inga­ferli og upp­bygg­ingu vind­myllu­garð­anna þriggja var ófull­nægj­andi. Ekki var tekið mark á þeirri gagn­rýni sem Samar komu á fram­færi og áhyggjur þeirra af mögu­legum nei­kvæðum áhrifum á samísk sam­fé­lög voru ekki virtar við­lits. Framkoma stjórn­valda og fram­kvæmda­að­ila í garð samískra sam­fé­laga í Noregi í tengslum við upp­bygg­ingu títt­nefndra vind­myllu­garða grefur undan þeirri bar­áttu sem Samar hafa háð fyrir til­veru­rétti sínum á svæð­inu. Það er von höf­undar að sú bar­átta muni að end­ingu öðl­ast þá við­ur­kenn­ingu sem hún á skilið, að inn­gild­ing samískra sam­fé­laga, sem og ann­arra minni­hluta­hópa um heim allan, í ákvarð­ana­töku­ferli mála verði full­nægj­andi og að Sápmi verði í raun fyrir Sama.


Þessi pist­ill er útdráttur úr BA-rit­gerð höf­undar sem fjallar um áhrif vind­myllu­garða á líf og menn­ingu Sama í Noregi út frá hug­myndum hreyf­inga lofts­lags­rétt­lætis, gagn­rýn­inna kyn­þátta­kenn­inga og eft­ir­lendu­stefnu.

 

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár