Velkomin í vestrið villt Mynd: Golli

Ég verð ekki afmáður

Bashar Murad hefur upp­lifað afmennskun í ummælum almenn­ings í tengslum við þátt­töku sína í Söngvakeppn­inni. En þrátt fyrir hatur er líka mikil ást, segir hann. Og leitar í arab­íska orðið Samud eða stað­festu, að þrátt fyrir alla þján­ing­una sé hann verð­ugur og verði ekki afmáður.

Skringi­lega ein­kennd­ist upp­lifun Bashar Murad af því að stíga á stóra sviðið á laug­ar­dag­inn af friði og ró. Hann fann fyrir þakk­læti að standa á þessu sviði „í sam­hengi þjóð­ar­morðs­ins sem á sér stað heima“. Hann kemur frá Palest­ínu. 

Íslend­ingar fréttu snemma af þátt­töku hans, þegar því var lekið að palest­ínskur flytj­andi myndi taka þátt í Söngvakeppn­inni, áður en þáttak­endur voru kynntir til leiks. 

Hann var rólegur á svið­inu, því hann vissi að hann væri að nota „tólin sem alheim­ur­inn gaf mér til að segja eitt­hvað mik­il­vægt“. Röddina og tón­list­ina. „Að geta gert þetta einmitt núna, í þessu sam­hengi, er sturlað. Vinir mínir heima, líf þeirra er í algerri bið­stöðu, eng­inn getur hugsað einn dag fram í tím­ann. Fólkið á Gaza hugsar sek­úndur fram í tím­ann.“

Hann upp­lifði frið því hann var þess full­viss að hann og teymið á bak við hann höfðu gert allt sem í …

Kjósa
54
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Góð grein!
    Enn þarf að endurtaka að Eurovision, sem tekur inn þjóðir frá ýmsum heimshornum, ætti að breyta um nafn og kallast VISION - sem samaeini allar þjóðir í hlutleysi og söng.
    Ef ekki, þá hætta þessum ......
    2
  • Anna Wessman skrifaði
    Frábær og vel skrifuð grein. Bashar er flottur, réttlátur og samkvæmur sjálfum sér. Megi þér vegna sem best Bashar.
    5
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Vel skrifuð grein. Mikið vona ég heitt og innilega að ekki hafi verið átt við úrslit söngvakeppninnar í pólitískum eða rasiskum tilgangi. Það fyndist mér óbærilega sárt. Það er afar mikilvægt að málið sé rannsakað ofan í kjölin og sannleikanum náð fram. Bashar, þú ert stórkostlegur, fannst lagið þitt og flutningur mjög góður og ég gaf þér mörg atkvæði og vona heitt og innilega að þau hafi ratað öll til þín.
    10
  • Lísa Valgerður Saga skrifaði
    Ég er svo viss um að ef ekki hefðu komið inn villumeldingar - alveg með ólíkindum - og atkvæði á öðrum kosningarleiðum flust á milli þá hefði Bashar unnið einvígið. Hvernig sem fer þá hlýtur hann að vera sigurvegari í augum þeirra sem horfa á réttlæti - og það er besti sigurinn.
    8
  • Þóra Leósdóttir skrifaði
    Frábær grein - TAKK
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár