„Við höfum ekki tíma til að bíða“

Ahmad Al-Shaghanoubi er 26 ára gam­all. Hann er óvinnu­fær af kvíða, hann sagði upp vinn­unni sinni til tveggja og hálfs árs, því hann gat ekki svarað fjöl­skyld­unni sinni þegar hún hringdi auk þess sem hann gat ekki ein­beitt sér að vinn­unni vegna þess að hann var hættur að geta sofið og borðað. For­eldrar hans, bróðir hans og eig­in­kona eru föst á Gaza. Faðir hans er veikur og þarf lyf sem hann fær ekki.

„Við höfum ekki tíma til að bíða“
Pabbi hans Ahmad með afa­barnið sitt Mynd: Úr einkasafni

Ahmad Al-Shaghanoubi er 26 ára gam­all Palest­ínu­maður. Hann er svo kvíð­inn að hann þarf að nota svefn­lyf til þess að geta sofið en nær samt bara að festa svefn í eina til tvær klukku­stundir. Hann borðar eina mál­tíð á dag, meira getur hann ekki borðað fyrir kvíða og hann þurfti að hætta vinna vegna þessa. Ahmad sótti um dval­ar­leyfi á Íslandi fyrir mömmu sína Khitam, pabba sinn Muhammad, bróður sinn Musa og Mayu eig­in­konu sína á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar en þau eru öll föst á Gaza.Ahmad fannst óbæri­legt að geta ekki svarað fjöl­skyld­unni sinni þegar þau hringdu því hann var í vinn­unni, vegna þess og vegna þess hve kvíð­inn hann var orð­inn, hætti hann að vinna.

„Ég get ekki sinnt vinn­unni, ég geri ekk­ert, ég er bara heima kvíð­inn. Konan mín hringir í mig dag­lega og grætur og ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég segi henni að …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Ögmundardóttir skrifaði
    Og svarið sem stjórnvöld hérlendis hafa er að það sé svo erfitt og flókið að bjarga fólki frá Gaza... þvílíkur fyrirsláttur. Það eru bara vanhæfir embættismenn sem væla svona. Sinnið skyldum ykkar, kjörnir fulltrúar!
    5
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Íslensk stjórnvöld: Sýnið þessu fólki einhverja vorkunn!
    Hræðilegt að lesa þetta viðtal.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Föst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mannorð sjálfboðaliða
FréttirFöst á Gaza

Sema segir engar mútur hafa verið greiddar – Ráðamenn reyni að sverta mann­orð sjálf­boða­liða

Stofn­andi og for­seti Solaris, sem hefur unnið að því að koma dval­ar­leyf­is­höfum frá Gaza til Íslands, segir það „gjör­sam­lega sturlað“ að fylgj­ast með ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands, stofn­unum og þing­fólki sem ýji ítrekað að því að hún og aðrir sjálf­boða­liðar séu að brjóta af sér „og jafn­vel fremja lög­brot í við­leitni okkar til að koma fólki undan þjóð­ern­is­hreins­unum.“
Dvalarleyfishafar senda kvörtun til umboðsmanns Alþingis
FréttirFöst á Gaza

Dval­ar­leyf­is­hafar senda kvörtun til umboðs­manns Alþingis

Móðir og þrjú börn hafa fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu á Íslandi en sitja enn föst á Gaza. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn er dval­ar­leyf­is­hafi á Íslandi. Lög­fræð­ingur fjöl­skyld­unnar hefur sent inn kvörtun til umboðs­manns Alþingis. Er þar haldið fram að íslenska ríkið fari á mis við laga­á­kvæði og alþjóð­legar skuld­bind­ingar með aðgerða­leysi sínu við að forða fólki frá stríðs­hrjáðum svæðum á Gaza.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár