Skuggar, skilnaður og upprisa

Á und­an­förnu ári hefur leik­stjór­innn Þor­leifur Örn Arnarson þurft að horfast í augu við sjálfan sig í kjöl­far skiln­aðar, ná tökum á líf­inu á ný og rísa upp úr lægð­inni. Hann segir hér frá því hvernig hann hefur áður þurft að rísa upp úr erf­iðum aðstæðum til að geta blómstrað.

Skuggar, skilnaður og upprisa
Óbeit á yfir­valdi Þor­leifur: Ég týnd­ist. Ákveðin óbeit á yfir­valdi hefur alltaf verið rík í mér og ég er að end­ur­upp­lifa það gegnum son minn. Mynd:Golli Mynd: Golli

Hann hefur verið klapp­aður upp. Hann hefur verið púaður niður. Þor­leifur Örn Arn­ars­son leik­stjóri, sem fyrir nokkrum árum var val­inn leik­stjóri árs­ins í Þýska­landi, ræðst ekki á garð­inn þar sem hann er lægstur. Hann hefur tek­ist á við mörg af stærstu verkum leik­bók­mennt­anna og um síð­ustu jól frum­sýndi Þjóð­leik­húsið upp­setn­ingu hans byggða á Eddu­kvæðum, Edduna. Leiðin á topp­inn var þó ekki vörðuð leið­andi ljósum en ung­lings­árin, sem ein­kennd­ust af stjórn­lausri neyslu áfengis og vímu­efna, kröfð­ust djúp­stæðrar og óhjá­kvæmi­legrar sjálf­skoð­unar. Tvítugur lagði hann flösk­una á hill­una. Um leið og hann lok­aði á flótta­leiðir neysl­unnar opn­uð­ust dyr inn í heim leik­list­ar­innar þar sem Þor­leifur Örn fann sinn sama­stað.

Mikil umbrot hafa verið í lífi Þorleifs Arnar und­an­farin ár en hjóna­skiln­aður og ADHD-grein­ing leiddu til þess að hann þurfti að takast á við lífið á nýjum for­sendum. Þá kom listin sterk til leiks, þar sem hans per­sónu­lega end­ur­reisn varð sam­stíga upp­setn­ingu hans …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár