Þórdís Kolbrún: „Við erum alltaf að tala um 70 milljarða plús“

Á blaða­manna­fundi skuld­batt rík­i­s­tjórnin sig til þess að eyða óviss­unni um það hvað verður um fjár­muni sem bundnir eru í íbúð­ar­hús­næðum í Grinda­vík. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að heild­ar­pakk­inn muni kosta meira en 70 millj­arða króna.

Ráðherrar á blaðamannafundi þar sem kynntar voru aðgerðir stjórnvalda fyrir Grindvíkinganna til lengri og skemmri tíma

„Það sem tekur við núna er vinna við að skoða þessar ólíku leiðir, það er að segja ann­ars vegar upp­kaupa leið­ina og hins vegar þá leið að ríkið greiði Grind­vík­ingum eigið fé,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra í sam­tali við Heim­ild­ina. Hún segir að ef Grind­vík­ingum yrði greitt eigið fé hefði ríkið milli­göngu með lán­veit­endum, sem eru líf­eyr­is­sjóðir og bankar.  Hún segir að frum­varpið megi vænta ein­hvern­tím­ann í febr­úar. 

Á blaða­manna­fundi sem haldin var skömmu eftir hádegi kynntu ráð­herrar úr rík­is­stjórn­inni aðgerð­ar­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar fyrir íbúa Grinda­víkur. Á fund­inum skuld­batt rík­i­s­tjórnin sig til þess að eyða óviss­unni sem Grind­vík­ingar hafa einir setið uppi með frá því í nóv­em­ber í fyrra. 

Kynntar voru aðgerðir til skamms tíma, sem rík­is­stjórnin hefur nú þegar sam­þykkt að ráð­ast í. Ber þar helst að nefna fram­leng­ingu á fram­færslu- og hús­næð­is­stuðn­ingi til Grind­vík­inga og upp­kaup á fleiri íbúðum með Bríet leigu­fé­lagi og íbúða­fé­lag­inu Bjarg. 

Þá var rætt um tvær hugs­an­legar leiðir sem rík­is­stjórnin gæti farið til þess að eyða óviss­unni sem ríkir meðal Grind­vík­inga um það hvað verður um hús­næði þeirra og fjár­mun­ina sem eru bundnir í þeim. Annars vegar upp­kaup allra íbúða í Grinda­vík og hins vegar ein­hvers­konar upp­gjör í sam­starfi við banka og líf­eyr­is­sjóði lands­ins.  

70 milljarðar plús

Katrín Jak­obs­dóttir segir aðgerð­irnar verða fram­kvæmdar að hluta til með fjár­magni úr nátt­úru­ham­fara­trygg­inga­sjóði og að hluta af lán­veit­endum ásamt rík­is­sjóði. Farið verður í aðgerðir til að hindra þrýst­ing á verð­bólgu segir Katrín. „Þetta eru tugir milj­arðar sem um ræðir. Ég met það líka svo að við sem sam­fé­lag erum í fullum færum til að fara í svona stóra aðgerð.“ 

Þá segir Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í sam­tali við Heim­ild­ina að heild­ar­pakk­inn muni sam­tals vera upp á tugi millj­arða króna. „Við erum alltaf að tala um 70 millj­arða plús í svona heildar áhrif,“ segir Þórdís. Þá segir hún að heild­ar­kostn­að­ur­inn ráð­ist að miklu leyti að útfærslu aðgerð­anna.

En nið­ur­staðan mót­ast af sam­spili ólíkra hag­að­ila á borð við Nátt­úru­ham­fara­trygg­inga Íslands, rík­is­ins, fjár­mála­stofn­ana og sveit­ar­stjórna og Grind­vík­inga sjálfra. „Það sam­tal er hafið og ég leyfi mér að vera bjart­sýn varð­andi það að við finnum ein­hverja lausn á því. Enda átta sig allir á þvi að þetta er sam­eig­in­legt verk­efni,“ segir Þórdís.  

Þverpólitísk samráðsnefnd 

Spurð út í nán­ari upp­lýs­ingar um sam­ráðs­nefnd­ina sem fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra mun leiða, segir Þórdís að hún skynji sterkan þverpóli­tískan vilja fyrir því að mæta þörfum og vanda Grind­vík­inga. Ljóst er að vand­inn sé mik­ill og kostn­aður verður gríð­ar­legur. „Við erum að taka eitt pró­sent af land­inu, í raun nýjan inn á hús­næð­is­markað. Á hús­næð­is­markað sem er þröngur fyrir og með vaxt­ar­stigið eins og það er,“ segir Þórdís.

Hins vegar segir ráð­herra þetta vera „raun­veru­leik­inn eins og hann blasir við og þá verður maður bara að vinna með það. Það er oft ágætt að gera það þannig að þú fáir sem flest sjón­ar­mið á meðan það er gert.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Við sem erum busettir Suður með Sjo a Suðurnesjum erum rum 30.000 ibuar og okkar 1 Alþjoðaflugvöllur er Keflavikurflugvöllur ja við hugsum með hrillingi til þess ef Gos lamaði starfsemi Virkjuninar við Svarseingi eða lögn sem flytur heitt vatn i Miðlunar Tanka a Njarðvikurfitjum rofnar. Svartasta mindin i Brunagaddi um havetur er Flugvöllurinn lokaður og 30.000 mans i kulda með engan Hita. Þetta gæti gerst i næsta Gosi. Malið er að það vantar vara Lögn ur Reykjavik lagða i Öxl Reykjanesbrautar a Njarðvikur fitjar.
    Hitaveita Suðurnesja var stofnuð i Þorshamri Husi Alþingis við Austurvöll eftir 1970
    Rikisjoður atti rum 40% og Sveitarfelög a Suður nesjum attu hinn partin. Illa gekk þa að semja við Landeigengur i Grindavik svo for að Hafið var samningaferli við Hitaveytu Reykjavikur um utvegun a heitu vatni og Lögn kæmi suður a Fitjar i öxl Reykjanesbrautar. þa Gafu landeigendur sig. Samið var við Bandariska Flotan i USA um kaup a Heitu vatni fyrir Herstöðina þar spilaði Þóroddur Th. Sigurðsson. vatnsveitustjori i Reykjavik stærsta Hlutverkið. 50% af heitu vatni voru seld USN. þeir sem vilja fræðast um þetta geta Lesið Bok um sögu Hitaveitu Suðurnesja. I Dag leggur Rikistjornin Alla sina Aheirslu a Grindavik það er gott mal. En samhliða þvi þarf að koma fyrir 20 tommu Lögn i Öxl Reykjanesbrautar a Njarðvikur Fitjar ur hafnafirði er su vegaleingd 35 kilometrar
    Að sjalfsögðu þarf Orkuveitan að auka sina Heitavatns byrgðir með Borun. Lögn a Heitavats Lögn a Fitjar er nokkura manuða vinna með Storvirkum Vinnuvelum og Efnisflutningur. Borun er meira mal. VARA LÖGN A HEITU VATNI A FITJAR ER LIFSNAUÐSIN Fyrir Suðurnes. Það Oöryggi sem i dag er Buið við er OÞOLANDI MEÐ ÖLLU. Rikistjornin þarf strax að hefjast handa með Aform um Varalögn a Suðurnes
    Teflt er a tæpasta Vað meðan hun er ekki til staðar. Reykjavikurflugvöllur getur ekki leyst Keflavikurflugvöll af nema með miklum TAKMÖRKUNUM.
    0
  • Hjalti Þórisson skrifaði
    húsnæðum
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár