Ný hætta inni í Grindavík: Gasmengun vegna kviku grunnt undir yfirborðinu

Gasmengun mæld­ist við vinnu ofan í brunnum innan Grinda­víkur og er ótt­ast að það teng­ist kviku sem gæti brot­ist upp á yfir­borðið fyr­ir­vara­laust.

Ný hætta inni í Grindavík: Gasmengun vegna kviku grunnt undir yfirborðinu

„Mjög mikil hætta“ er yfir­stand­andi í Grinda­vík og er í upp­færðu hættu­mati Veð­ur­stof­unnar til­greind önnur teg­und hættu en áður. Fyrir hefur verið metin mikil hætta á jarð­skjálftum, sprungum, hraun­flæði, sprungu­hreyf­ingum og gosopnun án fyr­ir­vara. Nú bæt­ist við hættu­leg gasmengun, sem ótt­ast er að sé „tengd því að kvika liggur mjög grunnt á svæð­inu“.

Þetta kemur fram í nýju hættu­mati Veð­ur­stof­unnar sem gildir frá klukkan 17 í dag og fram á 17 á næst­kom­andi föstu­dag. „Gasmengun mæld­ist við vinnu ofan í brunnum tengdum veitu­kerfi innan Grinda­víkur í gær. Veð­ur­stofan vaktar ekki stað­bundna gasmengun innan Grinda­víkur. Skoða þarf betur hvort gasmeng­unin er tengd því að kvika liggur mjög grunnt á svæð­inu. Það skal tekið fram að hættu­leg gasmengun er meðal þeirra atriða sem nefnd eru í hættu­mat­inu sem nú gildir fyrir Grinda­vík,“ segir í mat­inu.

Hættan í Grinda­víkSamkvæmt hættu­mat­inu er „mjög mikil hætta“ innan byggð­ar­innar í Grinda­vík og bæt­ast nú við áhyggjur af gasmengun vegna grunn­liggj­andi kviku.

Áréttað er í hættu­mat­inu að „hættur geta leynst utan til­greindra svæða“.

Enn heldur kviku­söfnun áfram undir Svarts­engi, norðan Grinda­víkur og nærri Bláa lón­inu. Líklegt er talið að hún muni leiða til eld­goss á næstu vikum.

„Skjálfta­virkni hefur verið væg yfir kviku­gang­inum síð­asta sól­ar­hring­inn. Samkvæmt reikni­lík­önum liggur kvika grunnt í suð­ur­enda kviku­gangs­ins, þar virð­ist landið vera mikið sprungið og kvikan eigi því auð­velt með að kom­ast upp á yfir­borðið. Áfram eru því líkur á að nýjar gossprungur opn­ist án fyr­ir­vara,“ segir í mati Veð­ur­stof­unnar.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár