„Grindavík er mjög hættulegur staður í augnablikinu“

Jörð í Grinda­vík færð­ist um einn metra í nótt og nýjar sprungur mynd­uð­ust. Mynd er að kom­ast á þróun goss­ins.

Hraun nálgast veginn Hraunrennslið séð frá Grindavíkurvegi um 11 í morgun.

Svæðið við Grinda­vík er nú ham­fara­svæði og lætur nærri því að um „inn­an­bæj­ar­gos“ sé að ræða, en aðeins tveir þétt­býl­is­bær á land­inu geta orðið fyrir slíku. Nýtt gosop opn­að­ist rétt í þessu skammt frá byggð­inni í Grinda­vík.

„Þetta hraun mun renna í átt að Grinda­vík. Þetta er bara smá­spotti að nyrstu byggð,“ segir Kristín Jóns­dóttir hjá Veð­ur­stofu Íslands. 

Hraunið úr fyrstu gossprung­unni stefnir hins vegar úr  núna í átt að Grinda­vík­ur­vegi, með­fram varn­ar­garði, og er meg­in­straumur hrauns­ins norðan megin varn­ar­garðs en minna kemur upp sunnan hans, Grinda­vík­ur­megin.

Lík­leg­asta atburða­rásin núna er að í stað langrar gossprungu verði eitt til þrjú gosop virk. „Það er stóra málið hvar þeir gígar enda með að vera,“ segir Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna, í sam­tali við RÚV. Skömmu eftir að þau orð féllu opn­að­ist nýtt gosop rétt upp við byggð­ina, nokkra tugi metra frá nyrstu húsum.

Nyrðri gossprungan er nú um 850 metra löng. …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár