Kína segir Taívan hafa val um tvær leiðir: „Frið eða stríð, velsæld eða hrörnun“

Kín­verjar hóta Taívan í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna um helg­ina. Naumt er á milli for­seta­fram­bjóð­end­anna þriggja en það sem ber þeim helst á milli eru sam­skipti við Kína. Bæði Banda­ríkin og Kína fylgj­ast grannt með, en Kína hótar afleið­ingum ef að sjálf­stæð­is­sinnar vinna end­ur­kjör.

Kína segir Taívan hafa val um tvær leiðir: „Frið eða stríð, velsæld eða hrörnun“
Barn veifar taí­vanska fán­anum Lýðræðið í Taívan er ungt, en virkt, eins og sjá má af þessum unga þátt­tak­anda á kosn­inga­við­burði Kuom­in­tang 12. jan­úar. Mynd: AFP

Á því kjör­tíma­bili sem nú er að líða í Taívan var núver­andi for­seta lands­ins, Tsai Ing-Wen, oft velgt undir uggum af yfir­völdum í Kína, sem héldu þrisvar stríðs­leika í kringum eyj­una á síð­ustu tveimur árum. Á þeim síð­ustu, í sumar á síð­asta ári, var tugum her­þota flogið inn í loft­helgi Tavíans og fjöldi her­skipa fylgdi inn í land­helg­ina. Fjórar her­flug­vél­anna eru af teg­und sem fær er um að bera kjarn­orku­vopn. Síðan hafa kín­verskar her­þotur nán­ast dag­lega flogið inn í loft­helgi Taívan, eða allt að 103 orr­ustu­þotur á einum degi í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Kosningarnar val um „frelsi og lýðræði“

Tsai var fyrst kjörin for­seti 2016 og vann end­ur­kjör árið 2020 með einum besta árangri síðan að kosn­ingar hófust í land­inu árið 1996, eða átta af þeim fjórtán millj­ónum atkvæða sem greidd voru. Nið­ur­stöður kosn­ing­anna sagði hún snú­ast um val á „frelsi og lýð­ræði,“ en flokk­ur­inn hennar, Democratic Progressive Party, …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár