Grindavík úr lofti, viku eftir rýmingu

Ljós­myndari Heim­ild­ar­innar fékk leyfi til að setja dróna á loft yfir Grinda­víkurbæ í dag. Miklar skemmdir blasa við í bænum. Sprungur hafa lengst og gliðnað undan­farna daga. Land í vestur­hluta bæjarins heldur áfram að síga um nokkra sentimetra á milli daga.

Í kvöld verður liðin vika frá því að Grind­víkingum var sagt að pakka í töskur og rýma bæinn sinn, í kjölfar kraft­mikillar skjálfta­hrinu og myndun kviku­gangs undir byggðar­laginu. Mikil óvissa er um hvað tekur við, hvort eldgos komi til með að hefjast í nágrenni bæjarins og hvort og þá hvenær íbúar geta snúið aftur til baka.

Fjöl­miðlar hafa nú fengið takmarkað leyfi til dróna­flugs yfir bænum og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd­skeiði sem ljós­myndari Heimildarinnar tók í Grindavík í dag er lands­lagið þar breytt. Sprungurnar sem opnuðust í bænum fyrir viku hafa stækkað og gliðnað eftir því sem dagarnir líða.

Land hefur sigið um meira en einn metra á stóru svæði í vestur­hluta bæjarins og samkvæmt GPS-mælingum Veður­stofunnar er sigdalurinn enn virkur og mælist sigið um 3-4 sentimetrar á milli daga. Mikið tjón, jafnvel altjón, hefur orðið á mörgum fasteignum í grennd við sprungurnar og við …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja nætur­langt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því

Frá og með morgun­deginum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyrir­tækjum í Grindavík heimilt að fara í bæinn og dvelja þar nætur­langt. Í nýlegri frétta­tilkynningu lögreglu­stjórans á Suðurnesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að innviðir bæjarins séu í lamasessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjósanlegur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár