Fengu áheyrn eftir 28 ára bið

Tíu þús­und og fimm hund­ruð dögum eftir snjó­flóðið í Súðavík fengu aðstand­endur þeirra sem fór­ust loks áheyrn Alþingis á til­finn­inga­ríkum nefnd­ar­fundi. „Loksins hlustað á okkur.“ Líklegt að til­laga um rann­sókn­ar­nefnd verið til­búin fyrir jól.

Fengu áheyrn eftir 28 ára bið

Flest bendir til þess að Alþingi skipi rann­sókn­ar­nefnd vegna snjó­flóðs­ins í Súðavík árið 1995 fyrir jól. Vaxandi líkur eru á því að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd geri til­lögu að skipan slíkrar nefndrar. Þetta sagði for­maður nefnd­ar­innar eftir fund með aðstand­endum fórn­ar­lamba flóðs­ins á Alþingi í morgun. 

Tíu þúsund og fimm hundruð dagar 

„Þetta hafa verið 28 ár í bið, bráðum 29 ár,“ segir Haf­steinn Númason, þar sem hann situr á bið­stofu nefnd­ar­sviðs Alþingis.

Í dag mánu­dag­inn 16. októ­ber, eru 10.500 dagar síðan snjó­flóð féll á byggð­ina í Súðavík með þeim afleið­ingum að fjórtán manns lét­ust, þar af átta börn. Haf­steinn og Berglind Krist­jáns­dóttir, þáver­andi eig­in­kona hans, áttu þrjú þess­ara barna. Og það er ekki síst þeirra vegna sem Haf­steinn er mættur hingað í húsa­kynni Alþingis.

Með honum eru þær Maya Hrafn­hild­ar­dóttir og …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Súðavíkurflóðið

Alþingi skipar rannsóknarnefnd um Súðavíkurflóðið
FréttirSúðavíkurflóðið

Alþingi skipar rann­sókn­ar­nefnd um Súða­vík­ur­flóðið

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur sam­þykkt beiðni aðstand­enda þrettán þeirra sem fór­ust í snjó­flóð­inu í Súðavík í jan­úar árið 1995 um að fram fari opin­ber rann­sókn á aðdrag­anda og eft­ir­málum flóðs­ins. Málið fer til þing­for­seta og svo þings­ins í heild. Alls lét­ust fjórtán þegar snjó­flóð féll á byggð­ina í Súðavík snemma morg­uns 16. jan­úar, þar af átta börn.
Stíga fyrstu skrefin vegna mögulegrar rannsóknarnefndar vegna Súðavíkurflóðsins
FréttirSúðavíkurflóðið

Stíga fyrstu skrefin vegna mögu­legrar rann­sókn­ar­nefndar vegna Súða­vík­ur­flóðs­ins

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis ákvað í morgun að hefja gagna­öflun vegna mögu­legrar rann­sókn­ar­nefndar á vegum Alþingis vegna aðdrag­anda og eft­ir­mála snjó­flóðs­ins sem féll árið 1995 í Súðavík. Nið­ur­staða þeirrar vinnu verður grund­völlur ákvörð­unar um hvort leggja eigi til skipun rann­sókn­ar­nefndar.
Katrín bendir þinginu á að rannsaka aðdraganda og eftirmál Súðarvíkurflóðanna
FréttirSúðavíkurflóðið

Katrín bendir þing­inu á að rann­saka aðdrag­anda og eft­ir­mál Súð­ar­vík­ur­flóð­anna

Í bréfi sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sendi Þórunni Svein­bjarn­ar­dóttur, for­manni stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, seg­ist hún telja að rann­sókn­ar­nefnd á vegum Alþingis væri til þess fallin að skapa traust um nið­ur­stöður rann­sóknar á aðdrag­anda og eft­ir­málum snjó­flóð­anna í Súðavík 1995. Flóðin hafi verið reið­ar­slag fyrir íslenskt sam­fé­lag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár