Auður Bjarna­dóttir Hefur stundað jóga í þrjá­tíu ár og kennt í rúm tutt­ugu. Mynd: Mariana Borau

Jóga er að koma heim úr heimi á yfirsnúningi

„Við erum yfir­leitt alltaf á undan okkur eða að reyna að end­ur­gera for­tíð­ina og missum af núinu. Og lífið er alltaf núna,“ segir jóga­kenn­ar­inn Auður Bjarna­dóttir. Hún rekur Jóga­setrið þar sem boðið er upp á alls kyns teg­undir jóga. Auður útskýrir út á hvað jóga gengur og hvernig hreyf­ingin hjálp­aði henni að bera virð­ingu fyrir sjálfri sér.

„Jafnvægi, að vera sátt í eigin skinni og vera frjáls­ari frá hlutum og hlut­verkum,“ segir Auður Bjarna­dóttir, eig­andi Jóga­set­urs­ins, aðspurð að því hvað hún hafi lært af því að stunda jóga. Þrjátíu ár eru síðan Auður byrj­aði að iðka jóga og lauk hún fyrsta jóga­kenn­ara­námi sínu um alda­mótin. 

„Ég var ball­er­ína og lík­am­inn var svo­lítið far­inn að kvarta þannig að jóga varð mín heilun, bæði lík­am­lega og and­lega.“ 

Í gegnum jóga öðl­að­ist Auður aukna sjálfs­virð­ingu en hún man eftir að hafa grátið í fyrstu tímunum. „Ég held ég hafi bara alltaf grátið af því að ég mátti hlusta á lík­amann minn og þurfti ekki að keyra hann áfram,“ segir Auður, sem naut þess að bera virð­ingu fyrir lík­am­anum og hlusta á hvað hann hefði að segja henni. 

Hvað er jóga?

Fyrir rúmum 23 árum bjó Auður í Banda­ríkj­unum þar sem hennar beið starf við kennslu eftir að hún hafði nýlokið kenn­ara­námi í Kali­forníu. Hún gat þó ekki tekið við starf­inu enda orðin barns­haf­andi og þjáð­ist af mik­illi ógleði. „Ég var bara rúm­liggj­andi og gat ekki þegið þessa kennslu sem ég átti að fá.“ Þegar heilsan varð örlítið betri skráði Auður sig í með­göngu­jóga. 

Hún lýsir fæð­ing­unni sinni sem magn­aðri, þökk sé jóg­anu, og fann löngun til að miðla reynslu sinni á Íslandi eftir að hafa lokið við jóga­kenn­ara­nám. Auður byrj­aði að kenna með­göngu­jóga í Kram­hús­inu en opn­aði svo Jóga­setrið í Borg­ar­túni 2002 og flutti svo í Skip­holtið fyrir átta árum síðan. 

Auður lýsir jóga sem aðferð til að tengja huga og lík­ama saman. „Sumir halda að þetta sé bara að teygja og vera lið­ugur. En upp­runa­lega er þetta svo miklu meira en það. Jóga þýðir sam­ein­ing og teng­ing, að tengja huga og lík­ama saman. Finna ein­ing­una innra með okkur.“

Auður í jógaMeð jóga teng­ist Auður sjálfri sér og æðri mætti.

Þau sem fara djúpt í jóga­fræðin finna að með jóga minnkar sam­an­burður og sam­keppni. „Það er hluti af jóg­anu að vakna til vit­undar um hver ég er. Ég er ekki litla hrædda sjálfið heldur er eitt­hvað meira og æðra. Þessi vit­und, það er jóga,“ segir Auður og heldur áfram. „Ég tengi við mig sjálfa og við æðri vit­und, og þess vegna við allt líf.“

Í gegnum tíð­ina hafa jóga­stöður verið einkar karllægar enda eru þær komnar frá karl­mönnum sem fóru í her­inn og vildu kenna ungum piltum að standa réttir og beinir. Auður stendur upp úr sóf­anum í Jóga­setr­inu og sýnir stöð­una Stríðs­mann­inn. „Nú er kom­inn tími á kven­lega jóga sem þýðir að stundum fer ég að staldra við, losa um og finna hvað minn lík­ami vill gera.“ Hún losar um stöð­una og hreyfir mjöð­mina. „Ég fer úr form­inu og inn í ork­una.“ 

Fyrir þau sem fara enn dýpra í jógað er hugs­an­lega hægt að nýta það til að losa um sárs­auka. „Ef við tökum það aðeins lengra þá getur það verið að losa um djúpan sárs­auka og jafn­vel áföll sem setj­ast inn í kropp­inn.“ 

Auður lauk kenn­ara­rétt­indum í jóga­þerapíu og er útskrifuð með diplóma­gráðu úr dáleiðslu­tækni. Hún segir allt sem við mann­verur upp­lifum en tjáum ekki setj­ast ein­hvers staðar í lík­amann og mynda stíflaða orku. „Og situr þar þangað til að við erum til­búin að finna það, heyra það, hlusta og bjóða vel­komið að fara í gegn.“

„Jóga þýðir sam­ein­ing og teng­ing, að tengja huga og lík­ama saman“
Auður Bjarna­dóttir

Róar öldur hugans

Fyrsta lög­mál jóga er, núna byrjar jóga. Annað lög­málið snýst um að jóga lægi öldur hug­ans. „Þetta lík­am­lega kom svo seinna,“ segir Auður. „Upp­runa­lega er það svo mikið and­legt, að róa öldur hug­ans. Það er eig­in­lega aðal­at­riðið.“

Röddin er notuð í jóga til þess að óma, syngja og fara með mön­trur. Auður segir frá áhrifum þess að beita rödd­inni á Vagustaug­ina, stærstu taug lík­am­ans. „Ef ég syng, óma eða geri haf­öndun þá er ég að styrkja Vagustaug­ina. Auk þess ertu að end­ur­taka góða hugsun ef þú end­ur­tekur mön­tru.“

„Þú hægir á önd­un­inni. Þá hæg­irðu á hug­anum, tengir við lík­amann og núið. Við erum yfir­leitt alltaf á undan okkur eða að reyna að end­ur­gera for­tíð­ina og missum af núinu. Og lífið er alltaf núna,“ Auður brosir vin­gjarn­lega. „Þannig að jóga er líka, getum við sagt, núvit­unda­ræf­ing. Þú ert alltaf að koma heim inn í núið.“

Auður í öld­unumJóga snýst um að róa öldur hug­ans.

Það eru ekki bara full­orðnir sem geta notað hug­leiðslu og jóga til að öðl­ast ró. Jóga fyrir börn hefur færst í vöxt síð­ustu ár og stýrði Auður um tíma liðnum Krakka­jóga í Stund­inni okkar auk þess að gefa út mynddisk undir sama nafni.

Auður bendir á bók sem situr á hillu í Jóga­setr­inu. Hún heitir Heilla­stjarna og er skrifuð af Stefaníu Ólafs­dóttur. „Stefanía fer í skóla og kennir börnum hug­leiðslu og er með nám­skeið.“ 

Sjálf hefur Auður fundið hvernig jóga getur tengt saman for­eldra og börn. Nýverið var kona í jóga hjá Auði sem á barn í Hjalla­stefn­unni. „Hún bað mig að syngja ákveðna mön­tru og fór svo heim þar sem hún söng mön­tr­una með barn­inu sínu sem lærði það í skól­anum. Þau tengd­ust þar,“ segir Auður.  

„Þú ert alltaf að koma heim inn í núið“
Auður Bjarna­dóttir

ÁST

Í Jóga­setr­inu standa alls kyns tímar til boða, þar á meðal karla­jóga. Tímarnir eru vel sóttir af stórum hópi karla sem njóta návistar hver ann­ars. „Karl­arnir vita að þeir eru svo sann­ar­lega vel­komnir í alla tíma nema með­göngu- eða mömmu­jóga. En það er bara eitt­hvað …“ segir Auður hugsi og klárar svo setn­ing­una. „Þeim finnst svo gott að koma saman.“

Tekið er mið af þörfum þess hóps sem er í jóga hversu sinni í Jóga­setr­inu. Til að mynda geta konur á aldr­inum 60–70 ára notað stóla í jóga. „Það er létt­ara fyrir við­kvæm hné. Þá eru þær í stól­unum eða í kringum þá og við spilum það eftir ástand­inu.“

Jóga­tímar hjá Auði njóta sér­stakra vin­sælda meðal óléttra kvenna og segir Auður sjálf að með­göngu­jógað sé blómið hennar. Það veitir henni gleði að sjá konur finna aukið sjálfs­traust í tímunum. Sumar koma hræddar í fyrstu tím­ana en labba svo út með til­hlökkun fyrir fæð­ingum sínum. „Það er svo gaman. Þetta er svo nátt­úru­legt af því að fæð­ing er nátt­úru­leg og eðli­leg. Það skiptir öllu máli hvernig við stillum okkur inn á hana.“ 

Ein af þeim mön­trum sem Auður kennir konum er ÁST. Hún gengur út á að anda inn í lífið, slaka inn í lífið og treysta líf­inu. „Það er ást til barns­ins,“ segir Auður hlý­lega og bendir á maga blaða­konu þar sem lítil stelpa fer ört vax­andi. „Þetta er svo ein­falt.“ 

Í gegnum tíð­ina hafa Auði borist sögur frá konum sem nota ást­ar­mön­tr­una í fæð­ingum sínum og finna greini­legan mátt hennar. Auður end­ur­tekur mön­tr­una.„Ég ætla að anda inn í fæð­ing­una, slaka og treysta. Það er bara ást til barns­ins, til lífs­ins. Við getum gert þetta allan dag­inn, að velja að vera ekki í ótta heldur í ást. Að vera ekki í ótta heldur í trausti.“ 

„Ljós­mæður hafa sagt mér að þær halda að konur í með­göngu­jóga fái minna fæð­ing­ar­þung­lyndi.“ Auður gerir sér í hug­ar­lund að teng­ing sé á milli þess og að mæður læra sjálfs­virð­ingu og hlustun í jóga­tímunum. „Ef þú ferð í kulnun og krassar, þá ertu að valta yfir þig og þú heyrir ekki í varn­ar­nöglum.“

Hún segir lík­amann alltaf láta okkur vita ef við erum að fara okkur um of og að nútíma­sam­fé­lagi fylgi mik­ill hraði og áreiti. „Jóga er mik­il­vægt fyrir of hratt líf og hraðan huga. Við þurfum að hægja á. Ég segi stundum að heim­ur­inn þurfi haf­öndun,“ segir Auður og dregur djúpt inn and­ann. 

„Ég ætla að anda inn í fæð­ing­una, slaka og treysta“
Auður Bjarna­dóttir

Auður hvetur fólk sem langar til að stunda jóga til þess að mæta og prófa. Fyrir lengra komna er einnig hægt að fara í jóga­kenn­ara­nám. „Ég kalla námið mitt, að koma heim til þín. Það er það sem við þurfum að gera því að heim­ur­inn er á yfir­snún­ingi. Það er jóga, að koma heim.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár