Upplýsa ætti konur á leið í brjóstastækkun um möguleg veikindi

Nokkur fjöldi kvenna lætur fjarlægja brjósta­púða árlega vegna veikinda sem talin eru tengjast þeim. Ekki er hægt að segja með vissu hversu margar þær eru því lýta­læknar hafa, á grund­velli persónu­verndar­sjónarmiða og trúnaðar, neitað að veita landlækni upplýsingar sem gætu leitt það í ljós. Frumvarp sem á að styrkja heimild land­læknis til þess að krefjast upplýs­ing­anna á að fara fyrir haustþing.

Lögin veikari en reglugerðin
Lögin veik­ari en reglu­gerðin „Við höfum ekki viljað ganga hart fram af því að það þarf að styrkja laga­stoð­ina,“ segir Alma. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Landlækni berast reglulega fyrir­spurnir um brjóstapúða­veiki og ASIA-heilkenni, veikindi sem hafa komið upp hjá konum með sílíkon­púða í brjóstum, en hvorugt hefur verið skilgreint sem sjúkdómur af Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnuninni. Land­læknir sendi stofnuninni fyrir­spurn um slíka skilgreiningu í byrjun september.

Þó að veikindin hafi ekki verið skilgreind formlega sem sjúkdómur telur Alma Möller land­læknir að lýta­læknar ættu að upplýsa konur um það fyrir brjósta­stækkun að veikindi séu mögulegur fylgi­fiskur púðanna.

„Þú nátt­úrlega upplýsir samkvæmt þeirri vitneskju sem fyrir liggur á hverjum tíma,“ segir Alma. „Nú eru vísbendingar um að brjósta­púðar kunni að valda sumum konum veikindum.“ 

Það er ekki bara skortur á greiningar­skilmerkjum sem gerir kort­lagningu brjóstapúða­veiki erfiða heldur einnig takmarkað aðgengi að starfsemis­upplýsingum lýtalækna.

Þegar Alma tók við embætti í lok árs 2018 fékk hún í arf frá fyrirrennurum sínum um tíu ára gamlan ásteytingar­stein. Steinninn lá á milli embættisins og sérfræði­lækna, aðallega geðlækna og …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brjóstapúðaveiki

FréttirBrjóstapúðaveiki

Bumbu­boltakarlar sleppa með skrekkinn en ekki brjóstapúða­konur

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, segir fáránlegt að konur þurfi sjálfar að standa straum af kostnaði við að láta fjarlægja brjósta­púða sem eru að gera þær veikar. Ekki eigi að refsa fólki fyrir það að veikjast, sama hvaða ástæður liggja þar að baki. Aðgerð til þess að fjarlægja brjósta­púða kostar mörg hundruð þúsund krónur og er ekki niður­greidd af Sjúkra­tryggingum Íslands.
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Nýtt líf eftir að 500 milli­lítra sílíkon­púðar voru fjar­lægðir

Skömmu eftir að Klara Jenný H. Arnbjörns­dóttir ljósmóðir gekkst undir ristilnám kom í ljós að sílíkon­púðar í brjóstum hennar láku. Hún lét setja púðana í sig árið 2006, þegar hún var 19 ára, og að eigin sögn með lítið sjálfs­traust. Hún hefur glímt við veikindi frá árinu 2008. Nú hafa púðarnir verið fjar­lægðir og Klara Jenný segist hafa öðlast nýtt líf.
FréttirBrjóstapúðaveiki

Veik kona ætti að eiga skilyrðis­lausan rétt á hjálp

Konur sem rekja alvarleg veikindi til brjósta­púða hafa þurft að taka lán fyrir aðgerð þar sem púðarnir eru fjar­lægðir. Aðgerðin, sem kostar mörg hundruð þúsund krónur, er ekki niður­greidd af Sjúkra­tryggingum Íslands. Ónæmis­fræðingur telur að ekki ætti að láta konur gjalda þeirrar ákvörðunar að hafa farið í brjósta­stækkun, og segir að veikar konur ættu að eiga skilyrðis­lausan rétt á hjálp.
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Lá í dái í fjórar vikur

Guðrún Eva Jóns­dóttir fékk andnauðar­heilkenni og féll í dá í fjórar vikur síðasta sumar. Undanfari veikindanna voru síend­ur­teknar lungna­bólgur og sveppur sem fannst í lunga hennar árið 2020. Orsök veikinda hennar er á huldu en sjálf telur hún síli­kon­púð­unum um að kenna. Hún á ekki fyrir aðgerð til þess að láta fjarlægja þá. Sjúkra­tryggingar Íslands niður­greiða ekki aðgerðina. Hún kostar mörg hundruð þúsund.

Mest lesið undanfarið ár