Fyrsta langreyðurin skotin tveimur skotum

Af myndum af dæma sem Heim­ildin hefur fengið af fyrstu lang­reyð­inni sem var dregin dauð á land í hval­stöð­inni í morgun þurfti tvö skot til að drepa hana.

Fyrsta langreyðurin skotin tveimur skotum
Tvö skot Að því best verður séð af þess­ari mynd sem tekin var í morgun voru tveir sprengiskutlar not­aðir til að drepa lang­reyð­ina, þá fyrstu sem veidd var á ver­tíð árs­ins. Mynd: Boris Niehaus/Hard To Port

Einn skut­ull í höfuð. Annar í síð­una. Lang­reyður sem Hvalur 8 kom með að landi í hval­stöð­inni í Hval­firði fyrir birt­ingu í morgun var skotin með tveimur sprengju­skutlum.

Þannig má gera ráð fyrir því að fyrsta skotið hafi geigað, ekki drepið dýrið og að end­ur­skot hafi verið nauð­syn­legt.

 

Arne Feu­er­hahn, fram­kvæmda­stjóri sjáv­ar­vernd­un­ar­sam­tak­anna Hard to Port, sam­taka sem annað sum­arið í röð fylgj­ast náið með veið­unum, segir við Heim­ild­ina að hann telji að um kven­dýr sé að ræða. „Á mynd­unum sést að annar skut­ull­inn hæfði höfuð dýrs­ins.“

Þegar skut­ull hæfir bein springur hann ekki inni í dýr­inu, líkt og hann er hann­aður til að gera þegar hann kemst í snert­ingu við hold.

TilbúnirStarfs­menn Hvals hf. stóðu til­búnir á hval­skurð­ar­plan­inu er lang­reyð­urin var dregin á land.

„Það hefur því þegar komið í ljós, sem er ekki óvænt í mínum huga, að veiði­að­ferðir Hvals hf. hafa ekki batnað að neinu leyti,“ segir Arne.

Báðir bátar Hvals hf., Hvalur 8 og Hvalur 9, héldu til veiða í fyrra­dag. Samkvæmt fréttum veiddi Hvalur 8 fyrstu lang­reyð­ina um hádeg­is­bil í gær. Hvalur 9 veiddi tvær í gær og er sá bátur vænt­an­legur að hval­stöð­inni í Hval­firði.

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra heim­il­aði hval­veiðar á ný um mán­aða­mótin og setti nýja reglu­gerð sem hafði það hlut­verk að „bæta umgjörð veiða á lang­reyðum“ líkt og sagði í fyrstu grein hennar. Skilyrði til veið­anna voru þrengd á ýmsa lund, m.a. má ekki veiða nema í dags­birtu, aðeins af innan við 25 metra færi og skulu ytri skil­yrði vera með þeim hætti að líkur séu til þess að aflífun fari fram sam­stundis. Skal í því til­liti líta til öldu­hæðar, veð­ur­skil­yrða og skyggnis.

NærmyndGulu lín­urnar eru fastar í skutl­unum. Sá fremri, dreg­inn fram með gulum kassa til útskýr­ingar, virð­ist hafa hæft höfuð dýrs­ins og þá mögu­lega bein.

Skot­vink­ill skal vera á bil­inu 45-135° miðað við lengdaröxul dýrs en víkja má frá færi og skot­vinkli „þegar skjóta þarf sært dýr fleiri en einu skoti til að tryggja sem skjótasta aflífun,“ segir í enn­fremur í reglu­gerð­inni. „Verklag skal vera til þess fallið að tryggja að lang­reyðar séu aflíf­aðar á þann hátt að það valdi dýrum sem minnstum sárs­auka og taki sem skemmstan tíma og séu ekki veiddar á þann hátt að valdi þeim óþarfa lim­lest­ingum eða kvölum.“

Eft­ir­lits­að­ilar, þ.e. Fiski­stofa og Mat­væla­stofnun, geta sam­kvæmt reglu­gerð­inni kraf­ist úrbóta á verk­lagi „sé það ekki til þess fallið að tryggja fram­an­greind skil­yrði“.

Hvalur hf. hefur heim­ild til veiða á 161 lang­reyði í ár. Í fyrra stóð ver­tíðin í hund­rað daga og lauk 28. Sept­em­ber. Á henni voru veidd 148 dýr. Mat­væla­stofnun gerði alvar­legar athuga­semdir við veið­arnar, m.a. að mörg dýr hafi verið skotin marg­sinnis, að sprengiskutlar hafi ekki sprungið og að sum dýr­anna hafi þurft að þola langt dauða­stríð og miklar kvalir.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár