Spænska feðraveldið molnar: „Þessi hegðun á bara ekki heima í fótboltanum og hvergi“

Fót­bolta­heim­ur­inn hefur logað síðan að Spán­verjar unnu heims­meist­ara­mót kvenna og Luis Rubiales, for­seti spænska knatt­spyrnu­sam­bands­ins, kyssti marka­skorar­ann Jenni Hermoso. Vanda Sig­ur­geirs­dóttir for­maður KSÍ segir svona hegðun ekki í boði. Sótt er að Rubiales úr öllum áttum sem neitar að segja af sér en hann er nú í 90 daga banni frá knatt­spyrnu­tengdum störfum.

<span>Spænska feðraveldið molnar:</span> „Þessi hegðun á bara ekki heima í fótboltanum og hvergi“
Luis Rubiales og Vanda Sig­ur­geirs­dóttir Forseti spænska knatt­spyrnu­sam­bandss­ins seg­ist fórn­ar­lamb þeirrar gagn­rýni sem hann hefur sætt fyrir að kyssa lands­liðs­konu Spánar. Vanda Sig­ur­geirs­dóttir segir svona hegðun ekki í boði.

Ímyndaðu þér að þú sért 33 ára fót­bolta­kona. Þú varst að vinna stærsta titil fer­ils­ins þíns með lands­lið­inu og í þokka­bót skoraðir þú sig­ur­markið. Á verð­launa­pall­inum ertu heiðruð með medalíu, knúsum, hrósum og ham­ingju­óskum frá hátt­settu fólki innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar. Þegar þú kemur að 46 ára gömlum for­seta knatt­spyrnu­sam­bands þíns heima­lands tekur hann utan um þig og endar sam­skiptin svo með kossi á munn­inn. Þig lang­aði ekki að þessi koss ætti sér stað. Þú lætur vita á sam­fé­lags­miðlum enda er fólk farið að spyrja spurn­inga. Þá kemstu líka að því að for­set­inn greip um pung sinn í stúkunni þegar þið unnuð mótið. For­set­inn afsakar sig með því að segj­ast hafa hugsað til þín eins og dóttur sinnar þegar hann kyssti þig, en að hann ætli sko alls ekki ætla að segja af sér! Í stað­inn heldur hann ræðu um að verið sé að fremja mann­orðs­morð á honum því hann heldur að leik­ur­inn endi eins og flestir leikir hingað til: Spænska feðra­veldið 1, konur 0.

Nema hvað að feðra­veldið virð­ist ekki ætla að vinna að þessu sinni. Úreltar afsak­anir, léleg hegðun og karl­rembur eiga ekki heima á knatt­spyrnu­völlum árs­ins 2023. For­set­inn hefur meira að segja fengið rauða spjaldið frá spænskum almenn­ingi sem mót­mælir hástöfum þessa dag­ana og krefst afsagnar hans.

Fólk út um allan heim sýnir nú Jenni Hermoso stuðn­ing eftir að Luis Rubiales, for­seti spænska knatt­spyrnu­sam­bands­ins, kyssti hana á verð­launa­af­hend­ing­unni þegar spænska kvenna­lands­liðið vann sinn fyrsta heims­meist­ara­titil. Viðbrögð knatt­spyrnu­sam­bands Spánar við mál­inu hafa einnig verið gagn­rýnd harð­lega. 

Hvað gerðist eiginlega?

Hermoso er ein fremsta knatt­spyrnu­kona heims enda mik­ill marka­skor­ari. Hún spilar fyrir CF Pachuca í Mexíkó en hefur áður spilað með Barcelona, Atletico Madrid og Paris Saint-Germain. Hermoso á ekki langt að sækja knatt­spyrnu­á­huga sinn þar sem afi hennar var mark­vörður Atletico Madrid á árum áður. Hún hefur unnið fjölda titla og spilað fyrir lands­liðið í 11 ár. 

Jenni HermosoSkoraði sig­ur­markið í úrslita­leik heims­meist­ara­móts­ins.

Rubiales er sjálfur fyrrum leik­maður á Spáni og hefur gengt stöðu for­seta spænska knatt­spyrnu­sam­bands­ins í fimm ár. Hann er líka einn af vara­for­setum UEFA. Stuttu eftir atvikið baðst Rubiales afsök­unar í mynd­bandi sem birt­ist á sam­fé­lags­miðlum. Þar sagði hann meðal ann­ars: „Ég sé eftir einu atviki, því sem gerð­ist á milli mín og eins leik­manns liðs­ins. Við eigum gott sam­band, eins og ég á við aðra leik­menn. Ég gerði mis­tök og verð að gang­ast við þeim. Það var ekk­ert illt á bak­við það sem átti sér stað á þessu til­finn­inga­þrungna augna­bliki. Það sem gerð­ist, gerð­ist og hugs­ana­gangur minn er fremur hvat­vís.“ Rubiales sagð­ist harma það að þetta atvik dragi athygli frá því stóra afreki sem liðið náði. 

Við­brögðin við afsök­un­ar­mynd­band­inu létu ekki á sér standa. Mótmæli héldu áfram og for­sæt­is­ráð­herra Spánar, Pedro Sánchez, taldi afsök­un­ar­beiðn­ina ekki nógu góða og sagði leið­ina langa í átt að jafn­rétti á Spáni. „Það sem við urðum vitni af er óásætt­an­leg hegðun,“ sagði Sánchez við fjöl­miðla. 

Þær raddir sem kröfð­ust afsagnar Rubiales urðu hávær­ari með hverjum deg­inum sem leið. Forseti UEFA, Aleksander Ceferin, kall­aði hegðun sam­starfs­fé­laga síns óvið­eig­andi en sagði það undir alþjóða knatt­spyrnu­sam­tök­unum FIFA að ákveða við­eig­andi refs­ingu fyrir Spán­verj­ann. Óþarfi væri að tvær stofn­anir refsuðu Rubiales.

Spænska knatt­spyrnu­sam­bandið hélt svo neyð­ar­fund þegar mót­mælin urðu ákaf­ari þar sem Rubiales bað drottn­ingu Spánar afsök­unar á að hafa gripið um pung sinn, en sagð­ist ekki ætla að segja af sér. „Finnst ykkur í alvöru að ég eigi þessar norna­veiðar skilið?“ spurði Rubiales áhorf­endur hneyksl­aður. „Ég mun ekki segja upp,“ end­ur­tók for­set­inn við lófatak áhorf­enda í salnum. 

Hermoso svarar

Hermoso birti yfir­lýs­ingu á miðl­inum X, áður Twitter, um atvikið og við­brögð Rubiales. Þar ítrek­aði Hermoso að ekk­ert sam­þykki hefði verið gefið fyrir koss­inum og því væri hún þol­andi kyn­ferð­is­legrar áreitni. „Ég var ber­skjölduð og fórn­ar­lamb hvat­vísrar hegð­unar sem bygg­ist á kynja­mis­rétti og kom eins og þruma úr heið­skíru lofti án þess að ég veitti sam­þykki,“ segir í til­kynn­ingu Hermoso. Spænska knatt­spyrnu­sam­bandið brást við yfir­lýs­ingu Hermoso með því að íhuga kæru á hendur henni fyrir ósann­indi.

Mót­mæl­andi á SpániAlmenn­ingur á Spáni hefur mót­mælt því að for­seti knatt­spyrnu­sam­bands Spánar segi ekki af sér.

Viðbrögð sam­bands­ins köll­uðu á enn harð­ari þrýst­ing á afsögn Rubiales frá almenn­ingi og knatt­spyrnu­fólki. Yfir 80 knatt­spyrnu­konur, þar af allt lands­liðið, og einn leik­maður karla­lands­liðs­ins neita að spila fyrir Spán þangað til að Rubiales segir af sér. Þá hót­aði knatt­spyrnu­sam­bandið því að lög­sækja leik­menn­ina fyrir að vilja ekki spila. Fjöldi spænskra leik­manna og þjálf­ara hefur tekið opin­bera afstöðu með Hermoso í mál­inu, til dæmis með því að bera fána inn á leik­velli með orð­unum: „Við stöndum með þér Jenni.“ 

Umdeildi landsliðsþjálfarinn Vilda

Þjálfari kvenna­lands­liðs­ins, Jorge Vilda, gagn­rýndi hegðun Rubiales en hann á sjálfur undir högg að sækja vegna fram­komu í garð knatt­spyrnu­kvenna. Á síð­asta ári neit­uðu 15 knatt­spyrnu­konur að spila fyrir lands­liðið á meðan að Vilda væri þjálf­ari vegna slæmra áhrifa hans á lík­am­lega og and­lega heilsu þeirra. Vilda var ekki sagt upp störfum, þvert á móti þjálf­aði hann kvenna­liðið áfram og fór með þeim á HM. Þrjár af þeim 15 sem neit­uðu að spila á síð­asta ári voru í lið­inu. Á mót­inu sjálfu á Vilda að hafa gripið um brjóst eins starfs­manns kvenna­liðs­ins. 

Hingað til hafa Rubiales og Vilda staðið þétt við bakið á hvor öðrum en vina­sam­bandið virð­ist vera að slitna ef marka má nýj­ustu sögu­sagnir. Spænska knatt­spyrnu­sam­bandið íhugar nú að segja Vilda upp störfum. Auk þess hefur næstum allt starfs­fólk kvenna­lands­liðs­ins sagt upp vegna máls­ins en þau segj­ast hafa verið þvinguð til að klappa með Rubiales á neyð­ar­fund­inum og sitja í fremstu röð áhorf­enda. 

Viðbrögð FIFA voru að senda Rubiales í 90 daga bann á meðan málið er skoðað enn frekar. Hann má hvorki aðhaf­ast í fót­bolta­tengdri starf­semi né hafa sam­band við Jenni Hermoso á þeim tíma. Þetta reynd­ist móður Rubiales ofviða en hún ákvað að fara í hung­ur­verk­fall í mót­mæla­skyni og sat inni í kaþ­ólskri kirkju í tvo daga áður en hún var færð á sjúkra­hús og síðar heim. 

Stjórn­mála­fólk á Spáni og aðrir hátt­settir með­limir spænska knatt­spyrnu­sam­bands­ins hafa nú kallað eftir afsögn Rubiales sem gæti átt yfir höfði sér mála­ferli vegna brota á íþrótta­lögum. Frændi Rubiales gagn­rýndi hann fyrir fram­komu í garð kven­fólks og sagð­ist hafa orðið vitni af vafa­samri hegðun hans.

Farið langt yfir strikið

Vanda Sig­ur­geirs­dóttir er for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands og var á úrslita­leiknum. „Mér finnst leið­in­legt að þetta hafi skyggt á þetta frá­bæra mót og frá­bæra frammi­stöðu spænska lands­liðs­ins. Hugur minn er hjá leik­mönnum spænska liðs­ins og Jenni Hermoso af því að umræðan ætti að vera um þær og stór­kost­legan upp­gang kvennaknatt­spyrnu á Spáni og um allan heim. En í stað­inn er fók­us­inn á þessa mjög svo óvið­eig­andi hegðun þar sem að er farið langt yfir strikið.“

Vanda Sig­ur­geirs­dóttirVar á úrslita­leiknum þegar atvikið átti sér stað.

Vanda segir það jákvætt hve hörð við­brögðin við hegðun Rubiales hafa verið. „Það bara sést núna svart á hvítu að þetta er ekki í boði.“ Formaður KSÍ hrósar leik­mönnum spænska liðs­ins fyrir sam­stöð­una sem þær hafa sýnt síð­ustu daga ásamt tugum ann­arra. „Mig langar líka að hrósa FIFA fyrir þessi við­brögð að hann stígi til hliðar á meðan að rann­sókn fer fram.“ Vanda segir ákvörð­un­ina sýna að verið sé að taka málið alvar­lega. „Þessi hegðun á bara ekki heima í fót­bolt­anum og hvergi.“

„Þessi hegðun á bara ekki heima í fót­bolt­anum og hvergi.“
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir

Hún vonar að tekið verði stærra skref í átt að jafn­rétti í kjöl­far atburða­rás­ar­innar en sjálf er Vanda for­maður knatt­spyrnu­sam­bands innan UEFA. „Þar er verk að vinna í jafn­rétt­is­málum. Ég vona að þessi nei­kvæðu við­brögð verði til þess að opna augu þeirra sem þar stjórna enn frekar að það er þörf á breyt­ingum.“

Á árum áður spil­aði Vanda fót­bolta og hefur hún því fylgst með þróun mála í langan tíma. „Það er hægt að tala um að þetta skyggi fyrir og skemmi og allt það. En það er líka hægt að tala um þetta að þessi við­brögð og skýru skila­boð um að svona gerir maður ekki og að þetta er ekki í boði, ef þetta var ein­hvern tím­ann í boði þá er það alla­veg­ana ekki árið 2023 og ég er bara ótrú­lega ánægð með það.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár