Bræður í níunda og tíunda sæti: Seldu hlut í stórútgerðinni HG

Bræðurnir Guðmundur Annas og Kristinn Þórir Kristjáns­synir voru með samtals tvo og hálfan milljarð króna í tekjur á síðasta ári eftir að hafa selt sig út úr Hrað­frysti­húsinu Gunnvöru ásamt tveimur öðrum systkinum sínum.

Tvö systkinanna fjögurra sem seldu hluti sína í stór­útgerðinni HG í fyrra, bræðurnir Guðmundur og Kristinn Kristjáns­synir eru í 9. og 10. sæti yfir tekju­hæstu Íslendingana á síðasta ári. Hvor um sig var með ríflega 1.200 milljónir í tekjur á síðasta ári. 

Kristinn Þórir Krist­jáns­sonTíundi tekju­hæstur og sjón­ar­mun á eftir bróður sínum, Guðmundi Annas.

Báðir áttu stóra hluti í útgerðinni HG í Hnífsdal sem þeir seldu um leið og samtals 16% hlutur í útgerðinni var keyptur af Jakobi Valgeiri Flosasyni, útgerðar­manni í Bolungarvík. Auk bræðranna seldu þá systkini þeirra, þau Ólöf Jóna og Steinar Örn, hluti sína í fyrir­tækinu við sama tilefni. Kaup­verðið nam í heildina um fimm milljörðum króna, samkvæmt frétt Vísis. Systkinin höfðu verið í hópi stærstu hluthafa í fyrir­tækinu, frá því þau tóku við hlut foreldra sinna í Hrað­frysti­húsinu í …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár