Eigandi Icewear segir fyrirtækjareksturinn ekki alltaf sældarlíf

Ágúst Þór Eiríks­son, eig­andi Icewear, ætl­aði sér frá unga aldri að reka fyr­ir­tæki. Honum finnst sú upp­hæð sem hann borgar í skatt pass­leg og segir það hluta af því að taka þátt í þjóð­fé­lagi að gefa til baka. Ágúst segir fyr­ir­tækja­rekst­ur­inn ekki alltaf hafa gengið áfalla­laust fyrir sig.

Eigandi Icewear segir fyrirtækjareksturinn ekki alltaf sældarlíf
Ágúst Þór Eiríks­son Byrjaði Icewear með átta starfs­mönnum fyrir 15 árum en nú eru þau 340 tals­ins.

Í 78. sæti á list­anum yfir tekju­hæstu Íslend­ing­anna situr Ágúst Þór Eiríks­son, eig­andi Icewear, með 2.717.449 krónur í mán­að­ar­laun og heild­ar­árs­tekjur upp á 257.609.385 krónur, sem eru að uppi­stöðu vegna fjár­magnstekna. Hann segir það alltaf hafa verið draum­inn að verða atvinnu­rek­andi enda hefur hann lagt allt í söl­urnar fyrir Icewear síð­ustu ára­tugi. „Ég hef nátt­úr­lega ekki gert annað síðan ég hætti í skóla en að standa í þessu.“

Á 15 árum hefur starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins stækkað tölu­vert. Tveimur árum áður en fyrsta búðin var opnuð, árið 2010, voru átta starfs­menn innan fyr­ir­tæk­is­ins. Í dag telur starfs­fólkið 340 manns og eru útibú með vör­unum orðin 21 tals­ins. Ágúst segir búð­irnar vera eins og börnin sín, þess vegna sé erfitt að gera upp á milli þeirra. Hins vegar eigi búðin í Vík í Mýrdal stóran stað í hjarta hans. „Þetta er nátt­úr­lega stærsta búðin mín og við höfum byggt hana upp síðan 2012.“

Stærsta ár Icewear 

Ágúst Þór segir þó ýmis­legt geta gengið á í fyr­ir­tækja­rekstri. „Það brann hjá okkur árið 2018 og svo kom Covid. Það er eitt og annað sem hefur bjátað á en við höfum verið heppin að standa þetta af okkur og höfum í raun styrkst við hvert áfall. Þannig að þetta hefur ekk­ert alltaf verið sæld­ar­líf.“ 

Fyr­ir­tæk­is­eig­and­inn tekur því fagn­andi að ferða­þjón­ustan sé að ná meira flugi en fyrir heims­far­aldur enda finnur hann fyrir auk­inni eft­ir­spurn eftir vörum Icewear sam­hliða þeim vexti. „Fyr­ir­tækið er búið að vera að vaxa mikið og stækka vöru­lín­una. Við finnum alveg fyrir því að við erum komin í 2019 eins og það var fyrir Covid og reyndar tölu­vert meira en það. Við höfum nátt­úr­lega vaxið gríð­ar­lega núna á árinu 2022 og síðan það sem af er 2023.“ Ágúst spáir því að þetta verði stærsta ár Icewear hingað til. 

Aðspurður seg­ist Ágúst sáttur við þá upp­hæð sem fer í skatt­greiðslur hjá honum. „Mér finnst þetta bara pass­legt. Maður þarf nátt­úr­lega að borga til sam­fé­lags­ins ef það gengur vel og það er hluti af því að vera þátt­tak­andi í íslensku þjóð­lífi. Skattar eru sann­gjarnir finnst mér á Íslandi, alla­vega fyr­ir­tækja­skattar.“

„Maður þarf nátt­úr­lega að borga til sam­fé­lags­ins ef það gengur vel og það er hluti af því að vera þátt­tak­andi í íslensku þjóð­lífi“
Ágúst Þór Eiríks­son

Ágúst, hver eru þín mestu auð­æfi í líf­inu?

„Það er nátt­úr­lega fjöl­skyldan, börnin og konan mín.“ 

Þau trompa Icewear?

„Já. Icewear er nátt­úr­lega mik­il­vægt en það er bara annar hluti af mínu lífi og ég hef ekki þurft að velja neitt á milli,“ segir Ágúst. 

Hér er hægt að skoða hátekju­lista Heim­ild­ar­innar í heild sinni þar sem finna má upp­lýs­ingar um 3.320 tekju­hæstu Íslend­ing­ana.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Ójöfnuður ósanngjarn en samt nauðsynlegur
SagaHátekjulistinn 2023

Ójöfn­uður ósann­gjarn en samt nauð­syn­legur

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar á við­horfum íslensks almenn­ings til ójafn­aðar og félags­legs rétt­lætis sýna að stærstur hluti almenn­ings er óánægður með tekju­ó­jöfnuð og telur ójöfnuð við­hald­ast vegna þess að hinir ríku og valda­miklu hagn­ast á honum. Sami almenn­ingur vill hins vegar ekki útrýma ójöfn­uði með öllu vegna trúar á opin tæki­færi og verð­leika.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár