Bauð kjörnum fulltrúa fjárhagsaðstoð í skiptum fyrir pólitískan stuðning

Leó Árnason, fjár­festir og for­svars­maður fast­eigna­fé­lags­ins Sigtúns á Selfossi, gerði bæj­ar­full­trúa til­boð árið 2020. Bæj­ar­full­trú­inn, Tómas Ellert Tómasson, átti að beita sér fyrir því að sveit­ar­fé­lagið hætti við að kaupa hús Lands­bank­ans. Tilboðið fól í sér að Sigtún myndi greiða fyrir kosn­inga­bar­áttu Mið­flokks­ins.

Bauð kjörnum fulltrúa fjárhagsaðstoð í skiptum fyrir pólitískan stuðning
Ætlaði að greiða fyrir kosn­inga­bar­áttu Mið­flokks­ins Leó Árnason, fjár­festir og for­svars­maður Sigtíuns þró­un­ar­fé­lags á Selfossi, gerði bæj­ar­full­trúa Mið­flokks­ins til­boð á fundi í nóv­em­ber árið 2020 og varp­aði því upp á skjá á vegg. Tilboðið gekk út á að sveit­ar­fé­lagið Árborg myndi falla frá því að kaupa Lands­banka­húsið í bænum svo Sigtún gæti keypt það. Tómas fékk leyfi til að taka mynd af til­boð­inu og Leó. Mynd: Tómas Ellert Tómasson / Heimildin

Leó Árnason, fjár­festir og eig­andi fast­eigna­fé­lags­ins Sigtúns, bauð þáver­andi bæj­ar­full­trúa Mið­flokks­ins í Árborg fjár­hags­legan stuðn­ing í skiptum fyrir póli­tíska fyr­ir­greiðslu árið 2020. Skil­yrðið fyrir stuðn­ingnum var að Mið­flokk­ur­inn ynni að því að Árborg félli frá kaupum á húsi Lands­bank­ans á Selfossi. Tilboðið var sett fram í nóv­em­ber árið 2020 eftir að Lands­bank­inn hafði aug­lýst húsið til sölu og að ljóst var að sveit­ar­fé­lagið átti hæsta til­boðið. Sigtún bauð líka í Lands­banka­húsið og átti næst­hæsta til­boðið. Þetta segir bæj­ar­full­trú­inn fyrr­ver­andi, Tómas Ellert Tómasson, í við­tali við Heim­ild­ina.

„Leó bað mig að hitta sig á fundi. Í upp­hafi fund­ar­ins kom fram að erindið var Lands­banka­húsið. Það kemur í ljós að hann var að gera mér til­boð ef ég myndi vinna að því að sveit­ar­fé­lagið myndi falla frá kaup­unum. Það fer ekk­ert á milli mála hvað var að ger­ast á þessum fundi: Leó var að reyna að kaupa sér stuðn­ing kjör­ins full­trúa, …

Kjósa
58
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Nú er sem sagt komin opinber umfjöllun um þetta mál. Ætlar lögreglan eða embætti héraðssaksóknara að bregðast við?
    1
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Einmitt. Þannig gerast kaupin á Eyrinni. Þetta eru mútur og ber að fara með sem slíkt.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Leyndin um innanhússdeilurnar í Sjálfstæðisflokknum í Árborg
SkýringSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Leyndin um inn­an­húss­deil­urnar í Sjálf­stæð­is­flokknum í Árborg

Dramat­ísk atburða­rás átti sér stað í Árborg í lok maí þegar frá­far­andi bæj­ar­stjóri, Fjóla Krist­ins­dóttir, sagði sig úr flokknum þegar hún átti að gefa eftir bæj­ar­stjóra­starfið til Braga Bjarna­sonar. Deil­urnar á milli Fjólu og Braga ná meira en tvö ár aftur í tím­ann til próf­kjörs­bar­áttu í flokknum fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.
Tómas boðaður í skýrslutöku vegna tilboðs Leós
FréttirSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Tómas boð­aður í skýrslu­töku vegna til­boðs Leós

Tómas Ellert Tómasson, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi í Árborg, hefur verið boð­aður í skýrslu­töku hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna frétta af til­boði sem hann fékk sem kjör­inn full­trúi. Tilboðið kom frá Leó Árnasyni fjár­festi og for­svars­manni Sigtúns þró­un­ar­fé­lags. Tómas segir að erindi skýrslu­tök­unnar sé að ræða um „mögu­legt mútu­brot“.
Svona eignast útgerðarmaður bæ
ÚttektSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Svona eign­ast útgerð­ar­maður bæ

Nýr mið­bær hefur risið á Selfossi á síð­ustu árum og stendur til að stækka hann enn frekar. Á bak við fram­kvæmd­irnar eru Leó Árnason athafna­maður og Kristján Vil­helms­son, stofn­andi Samherja. Umsvif þeirra á Selfossi eru mun meiri og snúa meðal ann­ars að áformum um bygg­ingu 650 íbúða í bænum. Bæj­ar­full­trúi minni­hlut­ans, Arna Ír Gunn­ars­dóttir, segir erfitt fyrir sveit­ar­fé­lagið að etja kappi við fjár­sterka aðila og lýð­ræð­is­hall­inn sé mik­ill.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár