„Þú getur ekki falið þig fyrir hundunum“

Guðrún Katrín Jóhanns­dóttir og labrador­tíkin hennar, Líf, hafa leitað að bæði lif­andi og látnu fólki. Í tugi klukku­stunda mán­að­ar­lega í rúman ára­tug hafa þær æft sig í að leita, svo þær séu klárar þegar kallið kemur.

Teymi Guðrún með tíkurnar sínar tvær, Líf til vinstri og Vök til hægri. Bráðum tekur Vök við af Líf.

Þau hitt­ast á iðn­að­ar­svæðum, fela sig í ruslagámum og mæta í mið­bæ­inn að kvöldi til með leit­ar­hunda sér við hlið til þess að kynna þá fyrir flóru mann­lífs­ins. Allt til þess að mann­eskjan og leit­ar­hund­ur­inn geti orðið sterkara teymi. Fólkið og hund­arnir eru hluti af Björg­un­ar­hunda­sveit Íslands.

Þau verja mörg hver hund­ruðum klukku­stunda í starfið á ári hverju. Stór hluti sum­ar­frís­ins fer í æfingar og útköll og sum þeirra taka sér jafn­vel ólaunað leyfi úr vinnu til þess að leita að týndu fólki. Stundum verða þau fyrir tekju­missi af þessum sökum og í ofaná­lag eyða þau tugum, ef ekki hund­ruðum þús­unda í við­eig­andi útbúnað árlega. En það er allt þess virði, segja þau.

Hund­arnir sem fólkið þjálfar og vinnur með eru nauð­syn­legir í leitir. Þeir kom­ast yfir miklu stærra svæði en mann­fólkið og eiga auð­veld­ara með að leita í erf­iðu lands­lagi eins og karga­hrauni.

Þetta eru gjarnan …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár