Konur finni styrkinn sinn á hjólinu
Hjóla­garpur María Ögn Guð­munds­dóttir keypti sér hjól í verð­laun fyrir að ganga með barn árið 2008 og hefur ekki hætt að hjóla síðan þá.

Konur finni styrkinn sinn á hjólinu

Þegar María Ögn Guð­munds­dóttir byrj­aði að hjóla af miklum krafti fyrir 15 árum tók hún eftir því að fáar konur voru í íþrótt­inni. Hún ákvað að taka málin í sínar hendur og hefur staðið fyrir við­burðum til að hvetja konur til að hjóla. Fjöl­margar skemmti­legar hjóla­leiðir eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Heim­ildin skoð­aði nokkrar þeirra.

Á sumrin njóta hjól­reiðar tölu­verðra vin­sælda meðal Íslend­inga enda er íþróttin aðgengi­leg fólki á öllum aldri og hana er hægt að iðka víðs vegar um landið. María Ögn Guð­munds­dóttir byrj­aði að hjóla árið 2008 og starfar í dag sem hjóla­þjálf­ari hjá Icebike. „Ég var ófrísk 2007 og fékk hug­dettu að það væri snið­ugt að kaupa sér hjól í verð­laun fyrir að hafa verið ófrísk. Þannig að ég keypti mér fjalla­hjól og fór að hjóla.“

Þegar María byrj­aði að hjóla tók hún eftir því að fáar konur voru í  hjól­reiða­sam­fé­lag­inu. „Þegar ég kem inn í hjól­reiðar þá eru ekk­ert margar stelpur. Þá hugs­aði ég með mér að ég þyrfti að taka þetta í mínar hendur. Stelpur efl­ast svo þegar þær eru í kringum aðrar stelpur, þær verða svo kröft­ugar. Þannig að ég fór að vera með nám­skeið og sam­hjól, bara fyrir stelpur.“ 

María Ögn Guð­munds­dóttirAðstoðar konur við að iðka hjól­reiðar.

Efla konur til hjólreiða

María hefur staðið fyrir alls konar við­burðum fyrir konur í rúman ára­tug. Samhjól virkar þannig að hópur af konum hitt­ist til að hjóla og spjalla saman. Síðan er borðað.  „Á vorin vorum við á mal­biki þar sem öll hjól gátu mætt, svo var súpa og kaka eftir á. Þá var hægt að velja lengri og styttri leið. Á haustin voru þetta aðal­lega þær sem eiga fjalla­hjól og þá end­uðum við í burger og bjór. Það er góð stemn­ing að taka sauma­klúbb­inn á hjól­inu og fara kannski á kaffi­hús eða eitt­hvað svo­leiðis. Í þokka­bót er úti­veran frá­bær.“  Síð­ast­lið­inn mið­viku­dag stóð María, ásamt The W Collective, fyrir alþjóð­legu stelpu­sam­hjóli hér á Íslandi tengt erlendri móta­röð. „Það sner­ist um að efla konur til hjól­reiða og sýna þeim hvernig maður getur hjólað til að upp­lifa ævin­týri með sínum eigin krafti.“ 

Það er í miklu upp­á­haldi hjá Maríu að hjóla efst á Heið­merk­ur­vegi í átt að Hafn­ar­firði. „Þá er ég með borg­ina og hraunið á hægri hönd, nátt­úr­una fyrir framan mig og á vinstri hönd er Keilir og fjöllin. Ég fæ ekki leiða á því.“ Aðspurð hvers vegna sé gaman að hjóla segir María: „Fyrst og fremst er þetta úti­veran. Þú kemst yfir stór svæði og ég elska líka sam­fé­lagið í hjól­reiðum. Þetta er úti­veran, frelsið og sam­fé­lagið.“

Hjólað í nátt­úr­unniMaría mælir með að fólk fylgist með leiðum reynd­ari hjól­reiða­manna á Strava.

Fyrir ein­stak­linga sem eru að taka sín fyrstu skref í hjól­reiðum mælir María með því að fólk kynni sér góðar hjóla­leiðir með því að skoða appið Strava. „Fyrsta skrefið væri að kynna sér þær leiðir sem hjól­reiða­fólk er að nota í borg­inni.“ Þannig er hægt að læra inn á hent­ug­ustu svæðin fyrir hjól­reiðar þar sem minnst hætta er á bíla­um­ferð. 

Átta skemmtilegar leiðir

Heim­ildin tók saman hjóla­leiðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ekki eru sér­stakir hjóla­stígar á öllum leið­unum. Einnig er hverjum og einum frjálst að breyta þeim að vild.

Fyrir þau sem elska brekkur

Í Elliða­ár­dalnum í Árbæ er hægt að hjóla 10 kíló­metra hring umhverfis ána. Kjörið er að byrja á Raf­stöðv­ar­vegi, hjóla yfir brúna sem blasir við af bíla­stæð­inu hjá Hinu hús­inu og síðan upp í átt að stífl­unni. Hjólari heldur síðan áfram upp í móti þangað til komið er að brúnni sem skilur að Árbæ og Kópa­vogsbæ. Á leið­inni er merktur hjóla­stígur. Leiðin er til­valin fyrir þau sem vilja hjóla upp brattar brekkur í nátt­úru­feg­urð en þó innan borg­ar­innar. Einnig er hægt að byrja hring­inn hjá Árbæj­ar­laug og enda þar í sundi eða á fót­bolta­leik hjá íþrótta­fé­lag­inu Fylki. 

Stór stíflu­hringurHjólað um Elliða­árnar.

Mátulegi hring­ur­inn 

Fyrir þau sem vilja hjóla 5 kíló­metra leið með­fram sjónum er til­valið að hjóla um Gróttu á Sel­tjarn­ar­nesi. Hægt er að hefja ferð­ina hjá sund­laug­inni á Sel­tjarn­ar­nesi. Þaðan er hjólað með­fram strönd­inni og í átt að Gróttu­vita. Frá Gróttu­vita er síðan hjólað aftur í átt að sund­laug­inni nema hinum megin við nesið. Fyrir þá sem vilja lengja ferð­ina er hægt að hjóla Ægi­síð­una líka eða út á Granda og að lista­verk­inu Þúfu. Einnig geta hjólagarpar endað túr­inn í sundi eða á íþrótta­við­burði Gróttu, hafi þeir áhuga á því. Leiðin er ein­stak­lega fal­leg við sól­setur. Þá er líka hægt að taka nest­ispásu og tylla sér á strönd­ina ef logn er úti.

Nes­hring­ur­innEr stuttur en fal­legur.

Sjáv­ar­leiðin 

Hjól­reiða­túr með­fram sjónum getur verið afar skemmti­legur, sér­stak­lega þegar stillt er úti. Fínt er að byrja í Naut­hóls­vík og hjóla með­fram sjónum í átt að Kópavogi. Síðan er hjólað eftir göngu­stíg utan Kársness og alla leið að Sjálandi í Garðabæ. Þar er hægt að stoppa og fá sér hádegis- eða kvöld­mat. Svo er að sjálf­sögðu hægt að hjóla lengra með­fram strand­lengj­unni eða snúa við og enda í Naut­hóls­vík. Þá er leiðin tæpir 17 kíló­metrar. Á leið­inni má sjá fal­lega nátt­úru og bygg­ingar, meðal ann­ars Bessa­staði.   

Sjáv­ar­leiðinEr skemmti­leg fyrir fólk sem nýtur þess að vera í nálægð við hafið.

Listræni hjól­ar­inn 

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru fjöl­mörg lista­verk. List­unn­endur gætu haft gaman af því að hjóla að ýmsum lista­verkum Reykja­víkur. Hægt er að skoða lista­verk á bygg­ingum, eins og á Sjáv­ar­út­vegs­hús­inu. Aðrir staðir þar sem sjá má lista­verk eru Hljóm­skála­garð­ur­inn, Skerja­fjörður, Grandi og Naut­hóls­vík svo eitt­hvað sé nefnt. Hjólagarpar geta kynnt sér verkin með því að staldra aðeins við og lesa  skilti með upp­lýs­ingum um lista­verk. Hver og einn getur sniðið hjól­reiða­túr­inn að sínu áhuga­sviði. Það er einnig hægt að hjóla á milli íþrótta­leik­vanga, sund­halla, hverfa eða tjarna svo eitt­hvað sé nefnt.

Lista­verkÝmis lista­verk er hægt að finna á hjólarúnti um borg­ina.

Heimsókn til for­seta

Leiðin að Bessa­stöðum og um Bessa­staða­nes hentar þeim sem vilja kom­ast út úr hrað­anum sem oft ein­kennir borg­ina. Mikið fugla­líf er á Álfta­nes­inu og því kjörið að hafa fugla­bók í bak­pok­anum. Stað­setn­ingin veitir einnig nýtt sjón­ar­horn á byggð­ina á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Leiðin er frekar stutt. Ef byrjað er hjá hring­torg­inu við Bessa­staði, hjólað út að nesi, til vest­urs að byggð­inni og þaðan að hring­torg­inu á ný er leiðin um tveir kíló­metrar.

Bessa­staðirHægt er að kom­ast í kyrrð á Bessa­staða­nesi.

Svangi hjól­ar­inn

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru hund­ruð veit­inga­staða og kaffi­hús. Því getur verið skemmti­legt að velja sér stað og hjóla þangað. Þessi hjóla­ferð er til­valin ef bjóða á vinum með. Hér væri til dæmis hægt að hjóla í Laug­ar­dal­inn, setj­ast inn á kaffi Flóru og ganga síðan um Grasa­garð­inn áður en haldið er heim á leið. Svangir hjólarar sem elska brekkur geta líka gætt sér á mat á veit­inga­stað á Raf­stöðv­ar­vegi. Að sama skapi er veit­inga­staður á Gróttu fyrir sól­set­urselskendur. 

Laug­ar­dalurÍ Laug­ar­dal er fal­legt svæði ásamt ísbúð, kaffi­húsi, fris­bígolf­velli og grasa­garði.

Stóri hringur 

Lagt er af stað frá Vík­ings­heim­il­inu í Fossvogi. Þaðan er hjólað upp með­fram Elliða­ánni. Við brúna undan skilum Kópavogs og Reykja­víkur er haldið til vinstri og þaðan fram­hjá Rauða­vatni, Golf­klúbbi Reykja­víkur, niður að Úlf­ars­felli, inn í Mos­fellsbæ og þaðan með strönd Graf­ar­vogs til baka. Leiðin er ætluð lengra komnum enda tæpir 40 kíló­metrar með þónokkrum brekkum. Stóri hring­ur­inn er eins konar bland í poka þar sem hjól­ari fer í gegnum hverfi, nátt­úru, með­fram sjónum og í gegnum iðn­að­ar­hverfi.

Stóri hringurHann er hugs­aður fyrir þá sem vilja fara langan hjóla­túr.

Litli hringur

Þessi leið er styttri útgáfa af stóra hringnum hér að ofan. Þegar hjól­ari er kom­inn fram­hjá Golf­klúbbi Reykja­víkur er hjólað niður í Graf­ar­vogs­dal og þangað að Vík­ings­heim­il­inu á ný. Leiðin hentar vel fyrir hjóla­túr eftir vinnu eða þegar hjól­ari vill taka vel á í styttri tíma. 

Litli hringurHentar vel fyrir þau sem vilja hjóla um borg­ina.
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár