Viggo berst fyrir Vespasianus, eða Jóhannes Haukur fyrir Anthony Hopkins

Sjón­varps­s­ería er í vændum þar sem okkar maður, Jóhannes Haukur Jóhann­es­son, leikur einn af skylm­inga­þrælum Róm­ar­keis­ara. En hver var sá keis­ari?

Viggo berst fyrir Vespasianus, eða Jóhannes Haukur fyrir Anthony Hopkins

„Eftir að allt hafði verið eins og á rúi og stúi í Róm­ar­ríki í langan tíma og þrír keis­arar rænt völdum en síðan týnt lífi hver af öðrum, þá kom Flaví­usa­rættin loks á röð og reglu á ný.“

Þannig hóf róm­verski sagna­rit­ar­inn Sueton­ius ævi­sögu­þátt sinn um keisar­ann Flavius Vespasi­anus sem sat á æðsta valda­stóli í Róma­veldi, öfl­ug­asta stór­veldi forn­ald­ar­innar, frá 79 til 89 eftir upp­haf tíma­tals okkar. Og það má vel orða það svo að Vespasi­anus hafi stillt til friðar, þótt með harð­neskju væri. Ærsla­belg­ur­inn Nero hafði að lokum gengið svo fram af Róm­verjum að honum var í raun steypt af stóli og neydd­ist til að fremja sjálfs­morð árið 78. Eftir það börð­ust her­stjórar grimmi­lega um völdin í rúmt ár, uns Vespasi­anus varð óum­deildur keis­ari. Ríkti svo friður inn­an­lands um skeið.

Nú hefur þýski leik­stjór­inn Roland Emmerich boðað sjón­varps­s­eríu sem ger­ist á valda­tíð Vespasi­anusar og kann það að …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Er ekki svipađ uppi á teningnum hjá hinum rómuđu bandaríkjamönnum, einstaklega kurteisir og greiđviknir en ná samt ađ framleiđa, selja og nota vopn mest af öllum í þessu sólkerfi. Kannski er það auður og völd.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár