Flokkur

Þekking

Greinar

Úttekt

Fjölgun ferða­manna gæti þurrkað út ávinn­ing af raf­væð­ingu bíla­leigu­bíla

Rík­is­stjórnin áformar að veita millj­arð í styrki til bíla­leiga vegna raf­bíla­kaupa. Raun­veru­leg fram­för eða tákn­ræn aðgerð? Jukka Heinonen, pró­fessor við Háskóla Íslands, segir að aðgerðin þurfi að vera hluti af stærri aðgerð­ar­pakka til að draga úr losun frá ferða­þjón­ustu ef hún eigi að skila árangri. Sá pakki er ekki til.
Úttekt

Undra­verk auka ham­ingju og heil­brigði

Að horfa á sól­ar­lag, virða fyrir sér fjallstinda og rýna í hvers kyns lista­verk vekur ekki aðeins sterkar til­finn­ingar í augna­blik­inu heldur getur hrein­lega aukið ham­ingju og bætt heilsu okkar. Til að kalla fram þessi jákvæðu áhrif ætti mark­visst að leita uppi í hvers­dags­líf­inu til­komu­mikil, stór­kost­leg og mik­il­feng­leg undra­verk nátt­úr­unnar og lista­fólks – þau sem kalla fram gæsa­húð og jafn­vel tár á hvarmi.
Vettvangur

Upplifun og reynsla mótar tengsl við borg­ar­lands­lag

Dr. Ólafur Rastrick, pró­fessor í þjóð­fræði við Háskóla Íslands, og Snjólaug G. Jóhann­es­dóttir, dokt­or­snemi í þjóð­fræði, eru að rann­saka hvernig fólk gefur sögu­legu umhverfi borg­ar­innar gildi og merk­ingu. Þá eru þau einnig að rann­saka hvernig áhrif og til­finn­ingar móta sam­band fólks við staði með því að senda fólk í göngutúr í mið­bænum.

12 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár