Páll Vilhjálmsson dæmdur fyrir ærumeiðingar

Hér­aðs­dómur sak­felldi Pál Vil­hjálms­son fyrir að hafa í bloggi sínu farið með æru­meið­andi aðdrótt­anir um blaða­menn. Voru bæði ummælin sem Páli var stefnt fyrir ómerkt.

Páll Vilhjálmsson dæmdur fyrir ærumeiðingar
Dæmdur Ummæli Páls voru ómerkt í fyrir dómi og honum gert að greiða bæði bætur og máls­kostnað.

Páll Vil­hjálms­son fram­halds­skóla­kenn­ari og blogg­ari var í dag sak­felldur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir að hafa farið með æru­meið­andi aðdrótt­anir um Arnar Þór Ing­ólfs­son blaða­mann og Þórð Snæ Júl­í­us­son rit­stjóra.

Þeir Þórður og Arnar stefndu Páli fyrir að hafa haldið því fram á blogg­síðu sinni að þeir hefðu átt „aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skip­stjóra Stein­gríms­sonar og stuldi á síma hans“. Umrædd bloggskrif Páls, á blogg­svæði mbl.is, tengd­ust umfjöllun blaða­mann­anna um svo­kall­aða „skæru­liða­deild“ Samherja á Kjarn­anum. Þeir Arnar og Þórðu starfa nú báðir, eftir sam­ein­ingu Stund­ar­innar og Kjarnans, á Heim­ild­inni.

Umræddar fréttir voru birtar á Kjarn­anum í maí árið 2021. Í þeim var fjallað um hvernig hópur fólks sem tengd­ist Samherja hafði með sam­blæstri gætt hags­muna fyr­ir­tæk­is­ins með óeðli­legum hætti.

Páll Vil­hjálms­son skrif­aði fjöl­margar blogg­færslur um málið, þar sem hann meðal ann­ars sak­aði blaða­menn­ina tvo um að hafa komið að því að stela síma Páls skip­stjóra og byrla fyrir honum. 

„Mátti stefnda, sem kveðst vera blaða­maður, vera þetta ljóst.“
úr dóms­orði, um að ekki verði fall­ist á að rétt­ar­vernd blaða­manna sé minni en ann­arra þegar kemur að frið­helgi einka­lífs.

Páli var boðið að draga aðdrótt­anir sínar til baka. Því hafn­aði hann og var í kjöl­farið stefnt og ómerk­ingar kraf­ist á tvennum ummælum Páls:

Arnar Þór Ing­ólfs­son og Þórður Snær Júl­í­us­son, blaða­menn á Kjarn­anum, [...] eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skip­stjóra Stein­gríms­sonar og stuldi á síma hans.

og

Sak­sókn­ari mun gefa út ákæru á hendur blaða­mönnum RSK-miðla, lík­lega í sept­em­ber.

Í dóms­orði kemur fram að ekki sé hægt að fall­ast á því stað­hæf­ingu sem Páll hélt á loftu undir rekstri máls­ins, að þeir Þórður og Arnar hefðu með skrifum sínum um „skæru­liða­deild“ Samherja svipt sig veirri vernd sem lög um með­ferð saka­mála tryggi sak­born­ingum, svo og frið­helgi einka­lífs. Hélt Páll því fram að blaða­menn­irnir hefðu vitað eða mátt vita að skrif þeirra myndu kalla á hörð við­brögð. Í dómnum segir að ekki verið fall­ist á að rétt­ar­vernd blaða­manna eigi að vera minni en ann­arra þegar kemur að frið­helgi einka­lífs. „Mátti stefnda, sem kveðst vera blaða­maður, vera þetta ljóst.“

Þá segir í dóms­orði að af gögnum máls­ins verði ekki séð að þeir Arnar og Þórður liggi undir grun um aðild að meintri byrlun Páls Stein­gríms­sonar eða stuldi á síma hans. Stað­hæf­ing Páls Vil­hjálms­sonar þar um á sér því „enga stoð í gögnum máls­ins“. 

Hér­aðs­dómur ómerkti bæði ummælin sem kærð var fyrir, og gerði Páli að greiða þeim Þórði og Arnari 300 þús­und krónur í skaða­bætur hvorum, með drátt­ar­vöxtum. Þá var honum gert að greiða hvorum þeirra 750 þús­und krónur í máls­kostnað.

Fyr­ir­vari um hags­muni: Í frétt­inni er fjallað um atburði sem tengj­ast Heim­ild­inni og starfs­mönnum fjöl­mið­ils­ins beint.

 

Kjósa
49
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    300.000 á hvorn er allt of lítið í miskabætur. 1.000.000 hefði verið lágmark að
    mínu mati. Annars fagna ég þessari niðurstöðu. Páll er botninn.
    8
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Gott mál. Verst að þurfa að nota tíma og orku í svona vitleysingar eins og Pál. Moggabloggið er orðið eins og geitungabú af Trumpistum,Pútínistum og anti bólusetningafólki,geðslegur búsmali það allt saman.
    2
  • GE
    Guðmundur Einarsson skrifaði
    Er þetta ekki misritun "300 krónur" ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár