Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Að ljá táningsstúlkum rödd

Sara Gunn­ars­dótt­ir var til­nefnd fyr­ir bestu stuttu teikni­mynd­ina, fyr­ir My Ye­ar of Dicks, á Ósk­ar­s­verð­laun­un­um sem af­hent voru síð­ustu helgi. Hún hlaut ekki stytt­una að þessu sinni en ætl­ar að halda áfram að ein­beita sér að því sem hún er góði í: „Mér finnst ógeðs­lega gam­an að geta ljáð tán­ings­stúlk­um rödd. Þannig að ég ætla bara að leyfa þessu að koma til mín.“

Að ljá táningsstúlkum rödd
Á Óskarsverðlaunahátíðinni Sara Gunnarsdóttir vissi lítið um teiknimyndir þegar hún byrjaði í masersnámi í California Institute of the Art en var tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár fyrir bestu stuttu teiknimyndina, My Year of Dicks. Í kvikmyndaheiminum er kvikun (e. animation) ljóðlist fyrir Söru og henni finnst skemmtilegast að fjalla um tilfinningar. Mynd: afp

„Ég elska að nota kvikun (e. animation) til að tjá stórar tilfinningar. Sögulega hafa teiknimyndir verið barnaefni, en það er sem betur fer mikið að breytast. Í gegnum tíðina hefur verið svo erfitt að gera teiknimyndir, því þarf svo mikla peninga og mannafla til. En nú er fullt af kvikunarlistamönnum sem þurfa ekkert leyfi eða peninga, og eru að gera ótrúlega fallega list heima hjá sér, af því við erum með After Effects og öll þessi kvikunarforrit. Nú er komin ný kvikunarlist sem er mögnuð. Þetta hefur kannski mest verið í litlum hópum á netinu, en þetta er hægt og rólega að brjótast í gegn,“ segir Sara Gunnarsdóttir og bætir við: „Í kvikmyndaheiminum er kvikunin ljóðlistin fyrir mér. Mér finnst skemmtilegast að fjalla um tilfinningar.“

Houston 1991„Ég elska að nota kvikun (e. animation) til að tjá stórar tilfinningar“
Sjóræningi ástarinnarRúmenskur trukkabílstjóri í Kanada sendir frá sér ástaróð sem …
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu