Mynd: Heiða Helgadóttir

Einsemdin verri en hungrið

Systir Lalla Johns, sem óx upp úr sama jarð­vegi, fór í aðra átt, kláraði fjórar háskóla­gráður, en slapp ekki undan byrði bernsk­unnar. Rósa Ólöf Ólaf­íu­dóttir greinir frá slæmri með­ferð yfir­valda á fátæku fólki, þar sem hungrið var ekki versta til­finn­ingin.

Hún var á leið heim frá Mið­bæj­ar­skól­anum að morgni dags. Þetta var að vori, veðrið var gott og hún gekk í hægðum sínum upp Bjarg­ar­stíg­inn þegar þeirri hugsun laust skyndi­lega niður að héðan í frá ætti hún sig sjálf. Hún ætl­aði aldrei að eign­ast börn, en ef svo færi þá ætl­aði hún alla­vega ekki að vera vond við þau. Með þá hugsun í fartesk­inu nálg­að­ist hún heim­ili fjöl­skyld­unnar á Berg­staða­stræti 23, bleikt hús sem bræður hennar höfðu merkt hinum ýmsu tón­list­ar­mönnum með sprey­brúsa, svo mörgum að það var orðið erfitt að sund­ur­greina krotið á veggnum. Hún átti auð­vitað að vera í skól­anum, en hún var frels­inu fegin og kippti sér ekk­ert upp við að hafa verið rekin fyrir óspektir. Ekki frekar en að hún væri eitt­hvað að velta því fyrir sér að hún hefði ekki bað­ast í margar vikur, klædd­ist allt of stórri peysu af bróður sínum og hélt galla­bux­unum …

Kjósa
126
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    í Alþýðublaðinu árið 1929 (31. desember) segir til dæmis: „Kofar eins og Bjarnaborg og Pólarnir eru til ævarandi háðungar og glæpsamlegt að dyngja fólki inn í þá. Í siðuðu þjóðfélagi er morðingjum og stórbrotamönnum ekki boðið upp á slíkar vistarverur, hvað þá heiðvirðu fólki og börnum.“ Búið var í Pólunum mun lengur en upphaflega stóð til og voru þeir ekki rifnir fyrr en árið 1965.
    0
  • Kolbrún Karldsdóttir skrifaði
    Takk fyrir hugrekkið, takk fyrir kærleikann og takk fyrir að segja frá. Þetta er sagan okkar, þetta hefur verið í dvala skammar á röngum aðilum, gerendur hafa fengið frítt spil á meðan þolendur hafa mátt bera skömmina. Það þarf að taka allt upp á yrirborðið, viðurkenna, bæta fyrir eins og hægt er og breyta síðan með því að þeir sem hafa mátt þola fái virðingu og status aftur <3
    3
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Hér er kerfi sem mylur niður börn! :(
    3
  • Skelfilegt
    2
  • Gudrun Berg skrifaði
    Elsku Rosa min, mikid tekur a ad lesa thetta, er sorgmædd og hryggir mig ad svo illa var komid fram vid faktækt folk, og ad enn seu svipadar adferdir notadar. Finnst thu vera hetja ad komast tho vel fra thessum afstædum, enda mikil og fjølhæf kona. Knusss a thig.
    3
  • Sigurbjörg Eiríksdóttir skrifaði
    Vægast sagt hræðilegt. Vona að hún nái að fá frið í hjarta 💗💗
    1
  • Anna Sigurðardóttir skrifaði
    Ömurlegt líf hjá þessari konu og fjölskyldu hennar. Vonandi...er málum öðruvísi háttað núna...ég segi aftur...vonandi.
    1
  • BE
    Björg Eiríksdóttir skrifaði
    Þú ert frábær penni Ingibjörg Dögg !
    3
  • Sigrún M Vilhjálmsdóttir skrifaði
    Erfið lesning þvílík mannvonska og úræðaleysi😪eru hlutirnir betri í dag....🍀
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kostnaðurinn af fátæktinni

Skildu tvisvar og giftust þrisvar
ViðtalKostnaðurinn af fátæktinni

Skildu tvisvar og gift­ust þrisvar

Eftir að hafa alist upp í umhverfi þar sem hún var í sífellu fjar­lægð af heim­il­inu vegna fátæktar og þvælt á milli stofn­ana og fóst­ur­heim­ila hefur reynst Rósu Ólafar Ólaf­íu­dóttur erfitt að treysta, hleypa fólki að sér og við­halda nánum tengslum. Það er einn kostn­að­ur­inn af van­ræksl­unni. Eig­in­maður hennar, Stein­grímur Bergmann Gunn­ars­son, þekkir það af eigin raun, en þau hafa þrisvar sinnum gengið í hjóna­band.
Móðir svipt börnunum vegna fátæktar
FréttirKostnaðurinn af fátæktinni

Móðir svipt börn­unum vegna fátæktar

Ólafía Sig­ur­björns­dóttir, móðir Rósu, Ólafíu Ólaf­íu­dóttur, var ein­stæð­ingur með lítið sem ekk­ert bak­land, heilsu­lítil, í lág­launa­störfum og á hrak­hólum, ein með fimm börn og mann sem hélt henni í fjár­hags­legum skorðum. Í stað þess að veita við­eig­andi aðstoð voru börnin tekin af henni og send á vist­heim­ili, en hún hætti aldrei að berj­ast fyrir þeim.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár