„Ef aðeins væru óverðtryggð lán í boði væru fáir sem gætu yfir höfuð keypt sér íbúð“

Ef verð­tryggð lán stæðu ekki til boða væru mögu­lega komnar fram tals­verðar verð­lækk­anir á íslenskum hús­næð­is­mark­aði og mögu­lega myndi hálf­gert frost ríkja á honum. Bankar hafa ekki lánað jafn lítið óverð­tryggt síðan sum­arið 2017.

„Ef aðeins væru óverðtryggð lán í boði væru fáir sem gætu yfir höfuð keypt sér íbúð“
íbúð­ar­lán Stór­aukin greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána, ásamt miklum verð­hækk­unum, hefur gert það að verkum að sífellt fleiri heim­ili sjá sér ein­ungis mögu­legt að taka verð­tryggð lán. Mynd: Shutterstock

Þrír stærstu bankar lands­ins lán­uðu íslenskum heim­ilum 2,9 millj­arða króna í óverð­tryggð lán í síð­asta mán­uði. Það er lægsta upp­hæð sem heim­ilin hafa tekið í slík lán hjá bönk­unum; Lands­bank­anum, Íslands­banka og Arion banka síðan í júní 2017. 

Lánin voru að uppi­stöðu bíla­lán eða það sem flokk­ast sem „önnur“ lán. Að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum voru óverð­tryggð lán til íbúð­ar­kaupa nei­kvæð um 323 millj­ónir króna. Það hefur ekki gerst, að hrein óverð­tryggð lán séu nei­kvæð, síðan í des­em­ber 2016. Og þau hafa ekki verið nei­kvæð upp á svo háa krónu­tölu síðan í októ­ber það ár. 

Til sam­an­burðar þá lán­uðu bank­arnir þrír 56,2 millj­arða króna í óverð­tryggð íbúða­lán í októ­ber 2020, þegar vextir voru sögu­lega lágir, og útlán í hámarki.

Þetta má lesa út úr nýbirtum hag­tölum Seðla­banka Íslands um útlán í íslenska banka­kerf­inu.

Helmingur íbúða kallar á greiðslubyrði yfir 400 þúsund

Ástæða þess að vin­sældir óver­tryggðra lána hafa dvínað blasir við. Kaup­máttur launa hefur dreg­ist saman tvo árs­fjórð­unga í röð, gengið hefur á sparnað margra heim­ila sem safn­að­ist upp í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og íbúða­verð hefur hækkað um 17,4 pró­sent síð­ast­liðið ár, þótt það hafi lækkað lít­il­lega milli mán­aða. Stærsta ástæðan er þó aukin vaxta­kostn­aður, eftir tíu stýri­vaxta­hækk­anir í röð sem hafa skilað stýri­vöxtum Seðla­banka Íslands í sex pró­sent. Nú eru lægstu óverð­tryggðu vext­irnir sem bjóð­ast hjá bönkum 7,6 pró­sent. 

Í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS), sem birt var í gær, kemur fram að ef fólk ætlar að taka óverð­tryggð lán fyrir 80 pró­sent af kaup­verði og hefur greiðslu­getu upp á 250 þús­und krónur á mán­uði komi ein­ungis 100 íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til greina. Áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á í byrjun árs 2020 gat slíkur hópur valið úr um 800 íbúðum sem voru skráðar til sölu á verð­lagi hvers tíma fyrir sig. Í maí 2020, þegar vextir höfðu verið lækk­aðir skarpt sem við­bragð við far­aldr­inum, var sá fjöldi íbúða 1.600. 

„Til þess að kaupa þær íbúðir á óverð­tryggðum vöxtum, og fá lánað fyrir 80 pró­sent af kaup­verð­inu, þarf að takast á við mán­að­ar­lega greiðslu­byrði sem er yfir 400 þús­und krónur á mán­uði.“

Í skýrsl­unni kemur fram að yfir helm­ingur íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 51,5 pró­sent þeirra, kosti nú 76 millj­ónir króna eða meira. Til þess að kaupa þær íbúðir á óverð­tryggðum vöxtum, og fá lánað fyrir 80 pró­sent af kaup­verð­inu, þarf að takast á við mán­að­ar­lega greiðslu­byrði sem er yfir 400 þús­und krónur á mán­uði. Þá eru ekki taldar með þær íbúðir sem eru ekki með ásett verð, en hægt er að ganga út frá því að þær selj­ist flestar á meira en 76 millj­ónir króna. 

Flótti í verðtryggð lán

Þeir sem ráða ekki við þessa greiðslu­byrði hafa þann kost að taka frekar verð­tryggð lán. Þá þarf að sætta sig við að verð­bætur vegna verð­bólgu, sem er 9,6 pró­sent um þessar mundir, legg­ist ofan á höf­uð­stól láns­ins. 

Það eru sífellt fleiri að gera. Í nóv­em­ber voru verð­tryggð lán 86 pró­sent af hreinum nýjum lánum til heim­ila. Þriðja mán­uð­inn í röð voru þau yfir sjö millj­arðar króna, en fara þarf aftur til sum­ars­ins 2017 til að sjá við­líka verð­tryggð útlán hjá bönkum til íbúð­ar­kaupa. 

Í síð­ustu mán­að­ar­skýrslu sinni á árinu 2022 sagði HMS að ef verð­bólgu­spá Seðla­bank­ans gangi eftir og vextir á hús­næð­is­lánum hald­ist óbreyttir þá borg­aði sig frekar að taka verð­tryggt lán en óverð­tryggð. Nú þegar óverð­tryggðir hafa hækkað enn frekar, vegna síð­ustu stýri­vaxta­hækk­unar Seðla­bank­ans, hefur mun­ur­inn auk­ist. 

Fjár­­­mála­­stöð­ug­­leika­­nefnd Seðla­­banka Íslands hafði lýst yfir áhyggjum af þess­­ari mög­u­­legu þróun í júlí síð­­ast­liðn­­­um. Í fund­­ar­­gerð hennar frá þeim tíma sagði að nefndin teldi þá auknar líkur á að heim­ilin væru að leita í verð­­­tryggð lán til að lækka greiðslu­­­byrði til skamms tíma. „Töldu nefnd­­­ar­­­menn að sú þróun gæti verið vara­­­söm. [...] Verð­­­bólgan legð­ist beint ofan á höf­uð­stól lán­anna sem gæti dregið veru­­­lega úr við­­­náms­­­þrótti skuld­­­settra lán­tak­enda.“

Umsvif lítil

HMS segir í skýrsl­unni sem birt­ist í gær að ef aðeins væru óverð­tryggð lán í boði væru fáir sem gætu yfir höfuð keypt sér íbúð. „Ríflega þriðj­ungur íbúða til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru með aug­lýst sölu­verð yfir 95 m.kr. sem jafn­gildir greiðslu­byrði upp á 590.000 kr. eða meira ef tekið er verð­tryggt lán fyrir 80 pró­sent af láns­upp­hæð­inni. Greiðslu­byrði af verð­tryggðu láni væri hins vegar aðeins 320.000 kr. en vegna nýrra við­miða í greiðslu­mati þyrfti greiðslu­getan að vera tæp­lega 450.000.“

Á móti komi að ör eigna­myndun íbúð­ar­eig­enda á und­an­förnum árum geti gert það að verkum að fólk þurfi ekki lán fyrir jafn háu hlut­falli af kaup­verði og áður, sem getur aukið mögu­leika þeirra á íbúð­ar­kaupum. „Það sem stendur þó eftir er að umsvif eru lítil og eft­ir­spurn virð­ist hafa dreg­ist veru­lega saman með vaxta­hækk­unum. Ef verð­tryggð lán stæðu ekki til boða væru mögu­lega komnar fram tals­verðar verð­lækk­anir og mögu­lega ríkti hér hálf­gert frost á fast­eigna­mark­aði.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁGS
    Ásgeir Grétar Sigurðsson skrifaði
    Það er fjallað um margar hliðar óverðtryggðra og verðtryggðra lána í þessari grein en hvergi nefndur stærsti ókostur þeirra verðtryggðu; það eru líka vextir á þeim.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár