„Á Íslandi get ég andað“

Syst­urnar Zahraa og Yasaeen Hussein flúðu heima­land sitt ásamt móður sinni og bræðrum, eftir að faðir þeirra var pynt­aður og myrtur. Fjöl­skyldan flúði frá Írak til Grikk­lands og þaðan til Íslands í von um vernd, öryggi og frið. Íslensk stjórn­völd neit­uðu því ítrekað og fluttu þau svo með lög­reglu­valdi aftur til Grikk­lands. Þar höfðu þau áður verið nán­ast alls­laus og án hús­næðis.

„Á Íslandi get ég andað“
„Hún er sálin mín“ Hussein syst­urnar eru mjög nánar enda hafa þær gengið í gegnum hörm­ungar saman. Þær segja að slík reynsla gæti auð­veld­lega sundrað fjöl­skyldum en í þeirra til­viki hefur það gert alla fjöl­skyld­una sam­heldn­ari. Til vinstri er Yasameen og Zahraa til hægri. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þegar ég spurði syst­urnar Zöhruu og Yasameen Hussein hvernig þær myndu lýsa hvor annarri sneri Zahraa sér að systur sinni og sagði: „Hún er sálin mín,“ því næst lagði hún hönd sína á hönd systur sinnar og greip þétt utan um hana. „Hún er systir mín, blíða, góða systir mín,“ sagði Yasameen þá. Þær sitja þétt saman, eig­in­lega alveg upp að hvor annarri, báðar með hendur í skauti og horfa beint fram. Sjá­an­lega stress­aðar og þreyttar. Þær eru enda nýkomnar til Íslands, aftur, eftir að hafa verið brott­vísað héðan til Grikk­lands fyrir rúmum mán­uði síðan ásamt mömmu sinni, Maysoon, og bræðrum, þeim Hussein og Sajjad.

Fjöl­skyldan hafði verið hér í tvö ár áður en lög­reglan sótti þau með valdi og flutti upp í flug­vél sem flaug með þau burt. Syst­urnar voru byrj­aðar í mennta­skóla, búnar að kynn­ast nýjum vinum og farið að líða eins og þeim væri loks borgið.

…
Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Skömm íslenskra stjórnvalda er MJÖG STÓR í máli fjölskyldunnar. Það versta er að hinir ábyrgu kunna ekki að skammast sín.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár