Loftkastali kaupfélagsstjórans í Djúpinu

Stein­steypta húsið í kastalastil sem stendur við veginn í Ísafirði vekur bæði undrun og hrifningu margra ferða­langa sem keyra niður í Djúpið. Húsið er einstakt í íslenskri sveit og á sér áhuga­verða sögu sem hverfist um Sigurð Þórðarson, stórhuga kaup­félags­stjóra í fátæku byggðar­lagi á Vestfjörðum, sem reyndi að endur­skrifa sögu kastalans og kaup­félagsins sem hann stýrði.

Fjölskylda Halldórs eignaðist húsið
Fjöl­skylda Halldórs eign­að­ist húsið Fjöl­skylda Halldórs Jóns­sonar bónda á Arn­gerð­ar­eyri eign­að­ist „kast­al­ann“ eftir að Kaup­fé­lag Naut­eyr­ar­hrepps varð gjald­þrota. Sonur hans, Baldvin Hall­dórs­son og eig­in­kona hans, Vigdís Páls­dóttir sjást hér leiða Pál Baldvin Bald­vins­son son sinn en með þeim á mynd­inni er Guðrún Hann­es­dóttir frænka Vigdísar. Myndin er lík­lega tekin árið 1955 þegar Páll Baldvin var þriggja ára.

„Er það þessi kastali?“ spurði tæplega fimm ára gömul dóttir mín, Steinunn Ragna, þegar við stoppuðum við gamla íbúðar­húsið á Arngerðar­eyri í Ísafirði í lok júlí árið 2022. „Kastalinn“ birtist allt í einu niðri við sjóinn þegar keyrt er inn í faðm Ísafjarðar­djúpsins eftir að vegfarandinn hefur farið yfir Steingríms­fjarðar­heiði.

Dóttir mín hafði aldrei séð þetta hús áður, hvorki í eigin persónu né á mynd. Fyrsta orðið sem kom upp í huga hennar var þetta: kastali, eins og í ævintýrunum. Við ákváðum að kíkja á húsið af því amma mín og nafna dóttur minnar, Ragna Halldórs­dóttir, var dóttir hjónanna sem bjuggu í því um miðbik síðustu aldar.

Húsið sem vekur svo mikla athygliHúsið á Arn­gerð­ar­eyri vekur athygli margra sem fara um Ísafjörð og Djúpið. Hér sést mynd­skeið af Áslaugu Helgu Inga­dóttur að leik í fjör­unni á Arn­gerð­ar­eyri um sum­arið 2022.

Glæsilegt …

Kjósa
58
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Var húsið ekkert notað eftir 1956? Mig minnir að fólk hafi getað beðið þarna inni eftir Fagranesinu/Djúpbátnum sirka 1975.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Það eru til margar skemmtilegar sögur af Sigurði. Hann var samt ekki sá eini sem gaf
    Sigvalda Kaldalóns flygilinn, þar voru líka þrír aðrir bændur úr sókninni með í för.
    8
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Já þau er mörg skítseyðin í söguni sem hafa mergsogið landann.
    Bara af því að þau (skítseyðin), komust upp með það.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár