Skýr afstaða gegn því að Gunnar Björnsson fái að þjónusta

Séra Gunnari Björns­syni hefur í tvígang verið meinað að jarð­syngja látið fólk á þessu ári. Séra Agnes M. Sigurðar­dóttir biskup tekur „skýra afstöðu með þolendum“ og hefur beitt sér gegn því að Gunnar fái að þjónusta. Helga Bjarna­dóttir, sem lýsti siðferðis­brotum Gunnars gegn sér árið 2019, gagnrýnir frétta­flutning um að með þessu sé brotið gegn Gunnari. Til umræðu er að svipta Gunnar hempunni.

Meinað að jarðsyngja vegna brota
Meinað að jarð­syngja vegna brota Séra Gunnari Björns­syni hefur í tvígang á þessu ári verið meinað að jarð­syngja. Ástæðan er ein­örð afstaða bisk­ups gegn því vegna frá­sagna af kyn­ferð­is­brotum Gunnars.

Helga Bjarna­dóttir, sem árið 2019 steig fram og lýsti kynferðislegri áreitni af hálfu séra Gunnars Björns­sonar, gagnrýnir harðlega frétta­flutning um kröfur þess efnis að séra Gunnari yrði veitt heimild til að jarð­syngja látna konu. Maður sem brotið hafi kynferðis­lega gegn fjölda kvenna og sem bæði úrskurðar­nefnd þjóð­kirkjunnar og siðanefnd Presta­félags Íslands hafi úrskurðað að hafi framið siðferðis­brot eigi enga heimtingu á að fá að þjónusta í kirkjum landsins. Biskup Íslands hefur tekið skýra afstöðu gegn því að séra Gunnar athafni í kirkjum þjóð­kirkjunnar á grund­velli þess að standa skuli með þolendum.

Í byrjun september birti Mannlíf frétt þess efnis að séra Gunnari Björns­syni, fyrr­verandi sóknar­presti, hefði verið neitað um að jarð­syngja konu í Hvera­gerði, þrátt fyrir óskir fjöl­skyldunnar þar um. Sóknar­prestur Hvera­gerðis­kirkju, séra Ninna Sif Svavars­dóttir, mun samkvæmt fréttinni hafa neitað beiðnum um að Gunnar fengi að þjónusta í kirkjunni og er sömuleiðis haft eftir konunni að Ninna …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Berglind Þórsteinsdóttir skrifaði
    Ég stend með þolendum þessa manns. Það er magnað hvað margir eru tilbúnir til að verja valdamikla perra sem áreita börn í störfum sínum og þjónustu.
    11
  • Guðmundur Sigurðsson skrifaði
    HRATT LÝGUR STUND
    Hér birtir Stundin bréf frá einhverjum Frey Rögnvaldssyni. Ekki kann ég að skýra hver þessi Freyr er en hann virðist vera einhver fulltrúi Agnesar biskups sem fyrirmunað virðist að koma frá sér sönnu orði.

    Bréfið í Stundinni fjallar um hvort skoðanir kirkjunnar eða Hæstiréttur Íslands hafi meira vægi í meintum brotamálum. Þar er fjallað um að séra Gunnar Björnsson hafi ekki fengið að jarða vinkonu sína í Hveragerði af því að kirkjan og Stundin séu ósammála Hæstarétti, hafi ég skilið rétt.

    Þessi Freyr fulltrúi Agnesar segir „Biskup hefur tekið skýra afstöðu gegn því að séra Gunnar athafni í Kirkjum þjóðkirkjunnar.“ Þetta er auðvitað hrein lygi ef marka má orð Agnesar sjálfrar sem sagði í pósti að þetta væri ákvörðun séra Ninnu Sifjar Svarsdóttur prests í Hveragerði og Guðrúnar Hafsteinsdóttur formanns sóknarnefndar Hveragerðiskirkju. En Guðrún þessi er nú alþingismaður og vonbiðill um ráðherradóm ef Jón Gunnarsson leyfir.

    Það skal tekið fram að Ninna Sif sagði ákvörðunina vera Þjóðkirkjunnar svo ekki er augljóst hvor segir ósatt en eðlilegt kannski að trúa biskupnum.
    Ninna Sif hefur ekki svarað margra vikna pósti um þetta mál og þá ekki heldur Guðrún sem fékk afrit af póstinum.

    Held líka að það sé mikill misskilningur hjá þessum Frey að einhverjar yfirheyrslur Stundarinnar hafi markvert vægi í svona umræðu.

    Fram kemur í þessu bréfi að ekki skipti máli hvort menn hafi verið dæmdir eða ekki.

    Hann hefur það eftir konu sem hann hefur líklegast rabbað við.
    Það er varla Stund eða blaður til að eltast við þetta bréf í Stundinni en samt ætti öllum að vera ljóst að það skiptir höfuðmáli hvort fólk hafi verið sýknað eður ei.

    Það er sorglegt að miðill sem hefur á að skipa fólki eins og Helga Seljan, Inga Frey Vilhjálmssyni og Aðalsteini Kjartanssyni skuli birta bréf frá svona mönnum eins og þessum Frey Rögnvaldssyni.

    Í bréfi Freys er haft eftir Pétri Markan blaðafulltrúa kirkjunnar að Agnes hafni öllu ofbeldi innan kirkjunnar. Það sem Kirkjuleg yfirvöld ekki skilja er að það er ofbeldi að meina séra Gunnar Björnssyni að jarðsyngja vinkonu sína.
    Það er illska og hatur sem ræður gjörðum Agnesar öðru fremur.

    Það gleðilega í þessu er að Pétur Markan sé fundinn, veit um fólk sem hefur verið að reyna að ná sambandi við hann.
    Það fólk hefur að vísu ekki lofað að falla á kné og kokgleypa.

    Þá finnst mér bréfritari ögn tala niður til Mannlífs í þessu undarlega bréfi sínu. Mannlíf er fréttamiðill Freyr, þess vegna eru þeirra skrif á annan hátt en bréfið þitt.
    -7
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Það er bara staðreynd að allar stofnanir og félagasamtök samfélaga sem samkvæmt skilgreiningum og yfirlýstum hlutverkum sem þeim er falið og hafa, samkvæmt þeim, með umsýslu, leiðbeiningu og gæslu viðkvæmra hópa að gera; hópa eins og barna, þroskaskertra og ýmissa annarra sem eru í tímabundinni eða langtíma neyð, hafa ávallt haft gríðarlegt aðdráttarafl fyrir einstaklinga sem haldnir eru barnagirnd og aðra er ásælast óeðlileg völd yfir öðrum á einhverjum annarlegum forsendum. Fréttir liðinna ára og áratuga eru uppfullar af hryllilegum frásögnum af slíku; Skátasamtökin, trúarfélög og -hópar og svo mætti lengi upp telja. Hver ætti svo sem að nenna slíkri tæmandi upptalningu því þetta eru svo viðbjóðsleg málefni?

    Fólk ætti síst af öllu að treysta slíkum félögum/stofnunum fyrir viðkvæmu fólki. Foreldrar ættu alls ekki að treysta kirkjustofnunum eða söfnuðum fyrir gæslu, umsýslu eða utanumhaldi um börnin sín. Sagan talar sínu ljóta máli og þarf ekki vitnanna við.

    Kirkjan er, í mínum huga, hreinn og ómengaður viðbjóður því að henni er ekki hægt að treysta eitt einasta augnablik. Hver segir það? Sagan segir og sýnir það augljóslega.
    1
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Mér finnst allt of langt gengið þegar sóknarbörnum er meinað að velja sér prest til að sinna einstökum prestsverkum með því að banna þeim afnot af kirkjunni.
    Eftir því sem kom fram í fjölmiðlum á sínum tíma fólust brot Gunnars í því að kyssa meinta brotaþola á kinnina og klappa þeim á bakið utan klæða. Hann var sýknaður á báðum dómsstigum.
    Ef einhver hefur undan alvarlegri brotum að kvarta þarf hann/hún að leita til dómstóla til að fá úr því skorið hvað í raun gerðist áður en áhrifin verða svona alvarleg. Annars er Ísland ekki réttarríki.
    -3
    • Heidrun Hauksdottir skrifaði
      Þekkir þú í alvöru ekki slóð Gunnars? Tókstu ekki eftir því hvernig hann lét í kennslustundum? Eða fannst þér það bara í lagi fyrst þú varst ekki tekinn fyrir?
      1
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Höldum börnum okkar frá kirkjunnar þjónum !!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Séra Gunnar

ViðtalSéra Gunnar

„Samfélagið trúði okkur ekki“

Mæðgurnar Lilja Magnúsdóttir og Helga María Ragnars­dóttir segja að samfélagið á Selfossi hafi snúið við þeim baki eftir að Helga María sagði 16 ára frá því sem hún upplifði sem kynferðis­lega áreitni séra Gunnars Björns­sonar í Selfoss­kirkju. Samsæris­kenningar um fyrir­ætlanir þeirra lifi enn góðu lífi í bænum. Tíu ár eru nú liðin frá því að Hæstiréttur sýknaði í máli Helgu og annarrar unglings­stúlku.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár