Matvælaráðherra lítur slysasleppingar í laxeldi alvarlegum augum

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra segir að nú standi yfir vinna sem gengur út á að end­ur­skoða laga- og reglu­verk með lax­eldi í sjó­kvíum á Íslandi. Hún segir að einnig sé til skoð­unar hvort heppi­legt sé að mik­ill meiri­hluti hluta­bréfa í íslenskum lax­eld­is­fyr­ir­tækjum sé í eigu erlendra aðila. Svandís segir að lax­eldi hafi haft jákvæð áhrif á byggða­þróun á Íslandi en að vanda þurfi til verka.

Regluverk laxeldis í endurskoðun
Reglu­verk lax­eldis í end­ur­skoðun Reglu­verk með lax­eldi í sjó­kvíum á Íslandi er nú í end­ur­skoðun, segir Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra. Mynd: Pressphotos

„Ráðherra lítur strok úr eld­iskvíum mjög alvar­legum augum, sér­stak­lega í ljósi þeirrar hættu sem getur stafað af erfða­blöndun við villta laxa­stofna og ógn við líf­fræði­lega fjöl­breytni,“ segir Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra aðspurð um slysa­slepp­ingar á eld­is­löxum úr sjó­kvía­eldi á Íslandi. 

Stundin greindi frá því í ágúst að laxar sem lík­lega væru eld­is­laxar hefðu veiðst í Mjólká í Arn­ar­firði í sumar. Mat­væla­stofnun greindi svo frá því að 16 af þeim 32 löxum sem veidd­ust í ánni hefðu verið eld­is­laxar og að lík­lega hefðu þeir sloppið úr sjó­kvíum hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­laxi. 

Laxinn í Mjólká var veiddur af starfs­mönnum Mjólk­ár­virkj­unar, í árstubbi sem rennur frá virkj­un­inni og niður í sjó. Steinar Jónasson, stöðv­ar­stjóri í Mjólk­ár­virkjun, sagði við Stundina að það hefði áður veiðst tals­vert af eld­is­laxi í ánni. „Það væri ekki að veið­ast svona mikið í ánni nema fyrir eld­is­fisk­inn. Við vitum ekki hvaðan hann kemur.“ Svör Steinars …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Á sínum tíma sagði Svandís að stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn kæmi ekki til greina. Nú hefur hún svikið það tvisvar.Þjónkun við auðvaldið hefur nú forgang. Og alvarleg augu. Hú gerir væntanlega jafn mikið í málunum og Geir Hallgrímsson
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár