Verðbólga versnar og vextir hækkaðir um 0,75% í dag

Verð­bólga og hag­vöxtur aukast, sam­kvæmt nýrri yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans. Hækkun meg­in­vaxta Seðla­bank­ans leiðir af sér tug­þús­unda hækkun á greiðslum af dæmi­gerðu óverð­tryggðu hús­næð­is­láni.

Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri talaði fyrir mikilli vaxtalækkun eftir að hann kom til embættis, en hefur í kjölfar verðbólgubylgju tekið ákvarðanir ásamt peningastefnunefnd bankans um að hækka þá jafnt og þétt.

Tug­þús­unda hækkun getur orðið af mán­að­ar­greiðslu óverð­tryggðs hús­næð­is­láns með breyti­lega vexti, í kjöl­far þess að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans ákvað á fundi sínum í dag að hækka vexti bank­ans um 0,75%. 

Með þessu fara meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, úr 4,75% í 5,5%. 

Vegna „þrótt­meiri einka­neyslu og hrað­ari bata í ferða­þjón­ustu“ er fyr­ir­séð að hag­vöxtur á Íslandi verði 6% í ár, frekar en 4,7% eins og spáð hafði verið í síð­ustu þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans í maí.

„Verð­bólgu­horfur hafa áfram versnað. Verð­bólga jókst í júlí og mæld­ist 9,9%. Gert er ráð fyrir að hún nái hámarki undir lok árs­ins í tæp­lega 11%. Verri verð­bólgu­horfur end­ur­spegla kröft­ugri umsvif í þjóð­ar­bú­skapnum en gert var ráð fyrir í maí og þrá­lát­ari hækk­anir á hús­næð­is­mark­aði auk meiri alþjóð­legrar verð­bólgu. Þá hafa verð­bólgu­vænt­ingar hækkað enn frekar á flesta mæli­kvarða,“ segir í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar.

Fyrirséð er að vextir muni halda áfram …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár