Okkar maður í vanda Fyr­ir­tæki sem íslenski kjör­ræð­is­mað­ur­inn í Hvíta-Rúss­landi, flutti á nafn dóttur sinnar, fær ekki aflétt fryst­ingu eigna sinna í Úkraínu. Eignir fyr­ir­tæk­is­ins voru kyr­settar og banka­reikn­ingar frystir á grund­velli laga um bann við hvers kyns fjár­hags­að­stoð við land­ráða­til­raunir. Ástæðan er sú Úkra­ínu­menn telja Hvít-Rússa þátt­tak­endur í inn­rás Rússa og telja því að þar­lend fyr­ir­tæki séu beint og óbeint fjár­hags­legur bak­hjarl inn­rás­ar­innar í landið.

Úkraína frysti eignir Moshensky-fjölskyldunnar

Úkraínsk yfirvöld eru sögð hafa kyrrsett eigur og fryst banka­reikninga fyrir­tækisins Santa Kholod í Kænugarði. Yfirvöld þar telja hvítrússnesk fyrirtæki fjármagna innrás Rússa með óbeinum hætti, vegna stuðnings einræðis­stjórnar Lukashenko. Santa Kholod er hluti af fyrirtækja­keðju Aleksanders Moshensky, kjör­ræðismanns Íslands, fisk­innflytjanda og ólígarka í Hvíta-Rússlandi. Sagður hafa skráð fyrirtæki á dóttur sína til að verjast þvingunum ESB.

Eigur Santa Kholod, eins af fyrir­tækjum Moshensky-fjöl­skyldunnar í Úkraínu, hafa verið kyrr­settar og banka­reikningar þess frystir. Upplýsingarnar um kyrr­setninguna komu fram í dóms­skjölum eftir að reynt var að fá yfirvöld í Úkraínu til að falla frá aðgerðunum gegn fyrir­tækinu, án árangurs. Frá þessu greinir Radio Free Europe í frétt á vef sínum.

Úkraínsk yfirvöld kyrrsettu eignir fyrir­tækisins 3. maí síðastliðinn en það flytur inn, selur og dreifir sjávar­afurðum í Úkraínu. Kyrr­setningin var, samkvæmt fréttum, framkvæmd á grund­velli ákvæðis úkraínskra hegningar­laga um bann við misnotkun stjórn­enda einka­fyrirtækis á eignum þess, þá helst með vísan til fjár­mögnunar aðgerða þar sem beita á valdi til að breyta stjórn­skipan, taka völd í landinu, breyta landa­mærum. Það er segja: fjármagna landráð.

Í umfjöllun fjölmiðla er vakin athygli á því að þetta ákvæði hafi verið notað í samskonar málum gegn öðrum hvítrússneskum fyrir­tækjum frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst, sem meðal annars …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

FréttirÓlígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­málamenn brugðust í vikunni harkalega við fréttum af því að ólígarki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita viðskipta­þvingunum, vegna tengsla hans við einræðis­stjórnina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræðis­manninn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­fulltrúi Belarús. Óásættanlegt er að hann sé fulltrúi Íslands, segir sérfræðingur.

9 mín. lestur

AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkraínskt orku­fyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffu­félag í Smáí­búða­hverfinu

Íslenskur banka­maður, Karl Konráðsson, er sagður hafa keypt helmings­hlut í úkraínsku orku­fyrirtæki nýverið af Aleksander Moshensky, kjör­ræðismanni Íslands og ólígarka í Belarús. Áður hafði Karl eignast breskt félag Moshenskys fyrir slikk. Þá og nú átti Moshensky á hættu að sæta viðskipta­þvingunum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir milljarða í skatta­skjól í gegnum Smáí­búða­hverfið

Kjör­ræðismaður Íslands í Belarús hefur á undan­förnum árum flutt tugi milljarða króna til dular­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heimahúsi Reykjavík. Um er að ræða ávinning af fisk­viðskiptum og sérkenni­legum lánveitingum til fyrir­tækja kjör­ræðis­mannsins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagnaði undan sköttum.

9 mín. lestur

FréttirÓlígarkinn okkar

Gagnrýndi stjórn­völd fyrir hræsni í málefnum Belarús

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir þingkona Pírata sakaði íslensk stjórn­völd og utan­ríkis­ráðherra um hræsni, í umræðum um baráttu lýðræðis­sinna í Belarús á Evrópu­ráðsþinginu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segjast styðja stjórn­andstöðu landsins, á sama tíma og þeir hefðu náinn samverka­mann einræðis­stjórnarinnar í embætti kjör­ræðismanns.
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólígarkinn okkar fasta­gestur í einka­þotum einræðis­herrans

Alexander Moshensky, kjör­ræðismaður Íslands í Hvíta-Rússlandi, hefur flogið hátt í þrjátíu sinnum með einka­þotum einræðis­stjórnar Lukashenko á síðastliðnum áratug, samkvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nánustu bandamenn Aleksanders Lukashenko nota þoturnar. Bæði þoturnar og flestir farþega hennar hafa verið sett í ferðabann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Mest lesið undanfarið ár