Laxeldiskvótakóngarnir sem hafa grætt á sjókvíaeldi á Íslandi

Nú stendur yfir þriðja bylgja lax­eldis á Íslandi en hinar tvær til­raun­irnar fóru út um þúfur á árum áður. Þessi til­raun til að koma lax­eldi á hér á landi hefur gengið betur en hinar. Fyrir vikið hafa nokkrir fjár­festar selt sig út úr lax­eld­is­iðn­aðnum fyrir metfé eða halda nú á hluta­bréfum sem eru mjög mik­ils virði.

Laxeldiskvótakóngarnir sem hafa grætt á sjókvíaeldi á Íslandi
Íslenskir lax­eld­isk­vóta­kóngar Í fyrsta skipti í sögu íslensks lax­eldis virð­ist þessi atvinnu­grein ætla að kom­ast almenni­lega á kopp­inn hér á landi. Nú þegar hafa nokkrir íslenskir og erlendir kaup­sýslu­menn hagn­ast vel á við­skiptum með hluta­bréf í íslensku lax­eldi. Þetta eru þau Sigurður Pét­urs­son, Gísli Guð­munds­son, Guð­mundur Gíslason, Jerzy Malek, Einar Örn Ólafsson, Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir, Kjartan Ólafsson, Kári Þór Guð­jóns­son og Neil Shiran Þórisson. Mynd: Samsett mynd

Með sölu þriggja hlut­hafa í ísfirska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish fyrir 13,7  millj­arða bæt­ist í þann til­tölu­lega fámenna, en stækk­andi hóp, sem grætt hefur veru­lega á fjár­fest­ingum í lax­eldi á Íslandi. 

Kalla má þennan hóp íslenska lax­eld­isk­vóta­kónga með til­vísun í þá svoköll­uðu kvóta­kónga í íslenskum sjáv­ar­út­vegi með villtan fisk sem orðið hafa til í þeirri atvinnu­grein eftir að kvóta­kerf­inu var komið á kopp­inn á níunda ára­tugnum. Orðið kvóta­kóngur hefur bæði verið notað um þá ein­stak­linga sem eiga hluta­bréfin í útgerð­ar­fyr­ir­tækj­unum sem halda á kvót­anum og eins um þá sem hafa selt hluti sína í fyr­ir­tækj­unum eða skipin og kvót­ann. 

Virði lax­eld­is­fyr­ir­tækja liggur í fram­leiðslu­kvót­unum á eld­is­laxi sem þau eiga. Þessi kvóti gengur kaupum og sölum í Noregi fyrir há verð, rétt eins og kvóti sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi gerir.  Íslenska ríkið fær hins vegar ekki neitt greitt fyrir þennan kvóta þrátt fyrir að hann byggi á afnotum af íslenskri nátt­úru og sé strax orð­inn mik­ils virði um leið og lax­eld­is­fyr­ir­tækin hafa fengið hann afhentan. 

„Menn höfðu aldrei heyrt um fjár­fest­ingar sem þurfti að verja og geyma í svona langan tíma“
Sigurður Pét­urs­son, stofn­andi Arctic Fish

Um er að ræða ein stærstu ein­stöku við­skipti með hluta­bréf í íslensku lax­eld­is­fyr­ir­tæki í sög­unni. Það er útgerð­ar­fé­lagið Síld­ar­vinnslan sem kaupir bréfin af kýp­versku fyr­ir­tæki í eigu pólska fjár­fest­is­ins Jerzy Malek og íslensku eign­ar­halds­fé­lagi í eigu stofn­anda Arctic Fish og beint af Neil Shiran Þór­is­syni. Kaup­verðið fyrir rúm­lega þriðj­ungs­hlut í Arctic Fish er 13,7 millj­arðar króna.  Þar af renna renna um 11,5 millj­arðar króna til fyr­ir­tækis Jerzy Malek á Kýpur. 

Sigurður: Enginn vildi fjárfesta

Sigurður Pét­urs­son hefur lýst því í við­tölum hversu erf­ið­lega það gekk að koma Arctic Fish á kopp­inn með fjár­mögnun frá fjár­festum eftir banka­hrunið. Ástæðan er sú hversu langan tíma það tekur yfir­leitt að græða pen­inga á lax­eldi. „Ég fór út um allt, en þegar ég útskýrði að það þurfi svona mikið fjár­magn og það þurfi að vera þol­in­mótt í 7 til 10 ár, þá er svarið oft­ast: gleymdu því. Menn höfðu aldrei heyrt um fjár­fest­ingar sem þurfti að verja og geyma í svona langan tíma áður en menn gætu séð fram á að ávaxta stofn­fram­lagið. En þetta skilja Norðmenn. Ég held að aldrei hafi verið stofnað lax­eld­is­fyr­ir­tæki í Noregi í eldi sem hefur verið að skila arð­semi fyrr en eftir svona tíu ár. Það er með­göngu­tím­inn. Hér sögðu menn bara: Siggi þetta er ekki hægt. Það er búið að reyna þetta oft,“ sagði hann í við­tali fyrr á árinu. 

Nú hefur Sigurður sjálfur hins vegar hagn­ast ágæt­lega á fjár­fest­ingu sinni í Arctic Fish. 

Þriðja tilraunin til að koma laxeldi á koppinn

Það lax­eldi sem nú er stundað í sjó­kvíum við Ísland er í reynd þriðja til­raunin til að koma þessum mat­væla­iðn­aði á kopp­inn hér á landi. Hinar til­raun­irnar gengu ekki upp af ýmsum ástæðum.  Ein helsta ástæðan fyrir því að lax­eldi á Íslandi hefur gengið brös­ug­lega í gegnum tíð­ina er veð­ur­farið á Íslandi yfir vetr­ar­tím­ann: Kuldinn og vind­ur­inn sem valdið hefur miklu tjóni.

„En tjónið fyrir þá var þannig að þeir urðu gjald­þrota og hættu starf­semi“
Gísli Jónsson, yfir­dýra­læknir fiski­sjúk­dóma hjá MAST

Þar af leið­andi má segja að eng­inn hafi hingað til hagn­ast á íslensku lax­eldi í gegnum tíð­ina, fyrr en núna í þess­ari bylgju sem hófst eftir banka­hrunið árið 2008.  

Meðal ann­ars varð aldauði hjá einu eld­is­fyr­ir­tæk­inu, Sæbergi, fyrir 30 árum, þegar Gísli Jónsson, yfir­dýra­læknir fiski­sjúk­dóma hjá Mat­væla­stofnun (MAST) var að byrja þar. Fáir hafa meiri þekk­ingu á sögu lax­eldis á Íslandi en Gísli þar sem hann hefur unnið svo lengi hjá stofn­un­inni sem hefur eft­ir­lit með lax­eldi í sjó hér við land. Gísli hefur sagt við Stundina:  „Þegar ég var að byrja hjá MAST fyrir 30 árum man ég eftir tveimur eld­is­stöðvum inni á Eski­firði, Sæberg  og Aust­firð­ingur, sem misstu rosa­lega mikið. Þetta voru 25 tonn sem Sæberg missti, allt úr kví­unum. Það er ekki hægt að bera þetta saman. En tjónið fyrir þá var þannig að þeir urðu gjald­þrota og hættu starf­semi.“

En núna hefur gengið betur hjá fyr­ir­tækj­unum að koma þess­ari starf­semi á kopp­inn. Núna eru þrjú stór lax­eld­is­fyri­tæki  á Íslandi: Arnarlax og Arctic Fish á Vest­fjörðum og Laxeldi Aust­fjarða á Aust­fjörðum. Að öllum lík­indum munu Arnarlax og Arctic Fish svo sam­ein­ast á næst­unni eftir að móð­ur­fé­lag fyrr­nefnda félags­ins keypti móð­ur­fé­lag hins síð­ar­nefnda. 

Nú hefur fram­leiðsla lax­eld­is­fyr­ir­tækja á Íslandi rúm­lega  tífald­ast frá árinu 2015. Það ár voru fram­leidd rétt rúm­lega 3.200 tonn en árið 2020 voru tonnin  34 þús­und. Með þess­ari fram­leiðslu og auknum leyfum til að fram­leiða eld­is­lax í sjó­kvíum sem íslenskar rík­is­stofn­anir veita þessum fyr­ir­tækjum verða til verð­mæti inni í þeim sem hægt er að selja, aðal­lega til norskra lax­eld­is­fyr­ir­tækja en nú einnig til íslenskra útgerð­ar­fé­laga, fyrir háar fjár­hæðir. 

Hinir sem hafa hagnast á laxeldi í sjókvíum

Aðrir sem hafa hagn­ast á sölu lax­eld­is­fyr­ir­tækja eða hækkun á virði hluta­bréfa í þeim í þess­ari bylgju lax­eldis í sjó hér við land eru nokkrir aðilar. 

Fyrstu fjár­fest­arnir til að hagn­ast veru­lega á sölu hluta­bréfa í íslensku lax­eldi voru þau Einar Örn Ólafsson, Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir og Kári Þór Guð­jóns­son í gegnum félagið Fiski­sund. Þau seldu fyr­ir­tækið Fjarða­lax á Vest­fjörðum til Arnarlax árið 2016 og fengu greitt fyrir í reiðufé og með hluta­bréfum í hinu sam­ein­aða félagi. Þau seldu hluta­bréfin í fyr­ir­tæk­inu svo árið 2019. Í heild­ina fékk Fiski­sund um þrjá millj­arða króna fyrir hluta­bréfin sem það seldi á þessum árum. 

Einn af eig­endum Fiski­sunds, Kári Þór Guð­jóns­son, hefur lýst því í við­tali hversu erf­ið­lega gekk að selja Fjarða­lax árið 2013, þegar fyr­ir­tækið var í eigu fjár­fest­ing­ar­bank­ans Straums, og að eng­inn hafi viljað kaupa það. Kári kom að til­raunum til að selja fyr­ir­tækið sem full­trúi selj­enda en end­aði svo á því að kaupa það sjálfur þegar ekki gekk að koma því í verð.  „Fyr­ir­tækið var í sölu í næstum því heilt ár áður en það var selt en það tókst ekki að selja það. [...] Á end­anum sting ég upp á þessum við­skiptum og eig­endur sam­þykkja það að það megi reyna þessa leið og sam­þykkja það ...“ 

Þessi fjár­fest­ing átti hins vegar eftir að koma sér vel fyrir eig­endur Fiski­sunds. Rétt eins og Sigurður Pét­urs­son lýsti í við­tal­inu sem vitnað er í hér að ofan tóku eig­endur Fiski­sunds áhættu sem á end­anum borg­aði sig þegar fáir höfðu áhuga á því að fjár­festa í lax­eldi. 

Feðgarnir Guð­mundur Gíslason og Gísli Guð­munds­son, sem yfir­leitt er kenndur við bíla­söl­una B&L, hafa einnig ávaxtað pund sitt vel í lax­eldi á Aust­fjörðum. Guð­mundur er stofn­andi, for­stjóri og stór hlut­hafi í  Laxeldi Aust­fjarða og hefur unnið með fjár­fest­ing­una um ára­bil.  Feðgarnir eiga hluta­bréf í móð­ur­fé­lagi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins, Ice Fish Farm, sem var um 6.7 millj­arða króna virði árið 2020.  

Þá hefur stjórn­ar­for­maður Arnarlax, Kjartan Ólafsson, selt hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu fyrir háar upp­hæðir. Meðal ann­ars nærri hálfan millj­arð króna árið 2020 eftir að hafa fengið kúlu­lán hjá norsku móð­ur­fé­lagi Arnarlax, Salmar. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár