Félag Samherja sem átti útgerðina í Namibíu seldi kvóta sinn á Íslandi

Eignarhalds­félagið sem Samherji notaði til að halda utan um rekstur sinn í Namibíu seldi fisk­veiðikvóta sinn á Íslandi til íslensks dóttur­félags Samherja árið 2020. Þetta fyrirtæki, Sæból fjár­festingar­félag, var í 28. sæti yfir stærstu kvóta­eigendur á Íslandi um vorið 2019. Í ársreikningi félagsins kemur fram hvernig reynt hefur verið að skera á tengsl þess við Ísland í kjölfar Namibíu­málsins.

Á ekki lengur kvótann
Á ekki lengur kvót­ann Félagið sem Samherji hefur notað til að halda utan um rekstur félags­ins í Namibíu hefur selt fisk­veiði­kvóta sinn á Íslandi. Félagið var í 28. sæti yfir stærstu kvóta­eig­endur á Íslandi árið 2019. Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja. Mynd: Davíð Þór

Sæból fjár­festingar­félag, sem hélt utan um rekstur íslenska útgerðar­félagsins Samherja í Namibíu, seldi fisk­veiðikvóta sinn á Íslandi til annars félags í Samherja­stæðunni árið 2020. Sæból var um mitt ár í 28. sæti yfir stærstu kvóta­eigendur á Íslandi með tæplega 3.200 tonn, í þorski og grálúðu. Um var að ræða 0,75 prósent af heildar­kvótanum við Ísland. Nú er félagið hins vegar ekki lengur kvóta­eigandi hér á landi. Dóttur­félag Samherja, Útgerðar­félag Akureyringa, keypti þennan kvóta félagsins fyrir tæplega 13,1 milljón dollara árið 2020 eða sem nemur rúmlega 1.664 milljónum króna.

Sæból, sem áður hét Polaris Seafood, hafði fyrir þetta haldið á verulegum afla­heimildum við Ísland fyrir Samherja um margra ára skeið.

Þetta sama félag hélt svo meðal annars utan um eignar­hluti Samherja í annarri Afríku­útgerð, Kötlu Seafood sem veiddi aðallega í Marokkó og Máritaníu fram til ársins 2013. Sæból á tvö dóttur­félög á Kýpur, Esju Seafood og Esju Shipping, sem saman áttu eignir upp á tæplega 150 milljónir dollara í árslok 2020, eða 19 milljarða króna í árslok 2020, samkvæmt ársreikningi Sæbóls.

„Mik­il­vægir hags­muna­að­ilar sem félagið á í sam­skiptum við, bankar, birgjar og stórir við­skipta­vinir hafa haldið tryggð við félagið“
Úr árs­reikn­ingi Sæból fjár­fest­ing­ar­fé­lags

Um söluna á kvótanum til Útgerðar­félags Akureyringa segir í ársreikningnum: „Félagið seldi rekstrar­fjármuni sína í árslok 2020 til Útgerðar­félags Akureyringa ehf., sem er dóttur­félag Samherja hf.“ Með rekstrar­fjármunum er átt við afla­heimildir, kvóta.

Samhliða því að Sæból seldi kvóta sinn á Íslandi til annars Samherja­félags þá hætti eignar­hald þess að vera á hendi íslensks félags. Í upphafi árs var félagið í eigu Samherja Holding ehf., sem meðal annars á hlutabréf Samherja­samstæðunnar í Eimskipa­félagi Íslands, en í lok árs var félagið komið í hendur fyrir­tækis í Hollandi sem heitir Alda Seafood Holding BV.  Stundin hefur áður greint frá flutningi eigna í samstæðu Samherja til Hollands. 

Félagið til rannsóknar frá árinu 2019

Rekstur Samherja í Namibíu hefur verið til rann­sóknar hjá namibískum og íslenskum yfir­völdum frá því í lok árs 2019 eftir að greint var frá mútu­greiðslum útgerðarinnar til áhrifa­manna í Namibíu í Kveik, Stundinni, Wikileaks og Al Jazeera. Í ársreikningi Sæbóls fjár­festingar­félags kemur fram, líkt og raunar áður hefur verið sagt frá opinber­lega ítrekað, að Samherji hafi lagt reksturinn í Namibíu af eftir að greint var frá þessum upplýsingum.

Lítið hefur spurst út um gang rann­sóknarinnar á Íslandi en Stundin hefur áður greint frá yfirheyrslum á hendur nokkrum starfs­mönnum og fyrr­verandi starfs­mönnum Samherja. Eftir því sem næst verður komist er rann­sóknin í fullum gangi en COVID-19 faraldurinn hægði á henni, meðal annars vegna örðug­leika á samskiptum og samvinnu við yfirvöld í Namibíu. 

Tala ennþá um „ásak­anir" Jóhann­esarSamherji stillir rann­sókn Namib­íu­máls­ins upp þannig að um sé að ræða „ásak­anir" Jóhann­esar Stef­áns­sonar.

Um rann­sóknina og þessa aflögðu starfsemi segir í ársreikningi Sæbóls: „Í október 2019 sakaði fyrr­verandi starfs­maður erlends dóttur­félags Samherja Holding [Jóhannes Stef­ánsson] félagið og starfs­menn samstæðunnar um lögbrot. Félagið tók þessar ásakanir alvarlega og réð stjórn félagsins strax til sín alþjóð­legu lögmann­stofuna Wikborg Rein til að framkvæma ítarlega rannsókn á starfsemi dóttur­félaga sem tengdust starfseminni í Namibíu.

Rannsókn Wikborg Rein var mjög yfirgrips­mikil og voru niður­stöður hennar kynntar stjórn félagsins í júlí 2020. Ásakanirnar eru til rann­sóknar hjá yfir­völdum í Namibíu og á Íslandi en ekki hefur verið höfðað mál á hendur félaginu. Félagið hefur mótmælt öllum ásökunum um lögbrot og gert grein fyrir sjónar­miðum sínum opinber­lega. Það hefur fjallað ítarlega um hvað fór úrskeiðis í rekstrinum í Namibíu og hvers vegna. Gripið hefur verið til víðtækra ráðstafana til að koma í veg fyrir að slík atvik geti hent á ný. Mikil­vægir hagsmuna­aðilar sem félagið á í samskiptum við, bankar, birgjar og stórir viðskipta­vinir hafa haldið tryggð við félagið. Starfsemi dóttur­félaga í Namibíu var lögð niður í árslok 2019 og hefur verið lögð áhersla á að dóttur­félög í landinu muni uppfylla skyldur gagnvart namibískum yfir­völdum.“

Eitt af því sem er áhugavert við þessi orð um að „mikil­vægir hags­munaðilar“ hafi haldið tryggð við félagið er að þau eru ekki alveg sönn. Eins og greint var frá í fjöl­miðlum hætti meðal annars DNB-bankinn norski að þjónusta Samherja í kjölfar Namibíu­málsins auk þess sem fyrir­tækið skipti um endur­skoðanda hér á landi. 

Kröfur í Nambibíu og Færeyjum

Í ársreikningi Sæbóls er einnig fjallað um það að stjórn­völd í Namibíu og Færeyjum hafi gert kröfur á hendur namibískum félögum Samherja sem lögð hafa verið niður í kjölfar Namibíu­málsins. Um er að ræða kröfur vegna ætlaðra vangreiddra skatta meðal annars en í Namibíu­málinu var meðal annars greint frá notkun Samherja á félagi í skatta­skjólinu Máritíus. Þá er einnig greint frá skatt­rannsókn færeyskra yfirvalda á Samherja vegna vangreiddra skatta af launum áhafna útgerðarinnar þar í landi. 

Um þessi tvö mál segir í ársreikningnum:  „Stjórn­völd í Namibíu hafa stofnað til nokkurra skatta- og annarra lögfræðilegra krafna á hendur namibískum dóttur­félögum samstæðunnar. Þar á meðal er mögulegt endurmat á skatt­greiðslum að fjárhæð 318 milljónum Namibíu­dala (22 millj. Bandaríkja­dala). Niður­stöðu þess og tengdum máls­kostnaði er ekki hægt að áætla með nægilegri vissu. Stjórn­endur fyrir­tækisins hafa mótmælt þessum kröfum. Samherji hf., hefur greitt fyrir hönd Sp/f Tindhólms, dóttur­félags Sæbóls fjár­festinga­félags ehf., samtals um 17 milljónir danskra króna til færeyskra skatt­yfirvalda vegna óvissu um gildi skatt­frelsis fyrir ákveðna áhafnar­meðlimi. Skatt­yfirvöld í Færeyjum hafa tilkynnt dóttur­félagið Sp/F Tindhólm til lögreglu. Málið snýst um tilkynningu til færeyskra yfirvalda varðandi áhöfn um borð í skipum sem skráð eru í alþjóðlegri og lands­skipaskrá Færeyja. Óljóst er hvort eða hvernig færeysk skatta­yfirvöld og lögregla munu fylgja málinu eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár