Risið er dauða­gildra Í einu af þremur ris­her­bergjum á Holts­götu 7 er gluggi sem ekki opn­ast. Ef upp kæmi eldur væri íbúi þess her­bergis læstur inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég neyði engan til að leigja hjá mér“

Á Holtsgötu 7 leigja hátt í 30 manns herbergi í húsnæði sem búið er að stúka niður í fjölda lítilla herbergja. Eldvörnum er illa eða ekkert sinnt. Fyrir­tækið sem leigir út herbergin sætir engu opinberu eftirliti þar sem húsið er skráð sem íbúðar­húsnæði. Margir viðmælendur Stundarinnar sjá mikil líkindi með aðstæðum þar og þeim á Bræðra­borgar­stíg 1, þar sem þrennt lést í eldsvoða.

Við Holtsgötu 7 í Vesturbæ Reykja­víkur stendur stórt hvítt hús með rauðu þaki. Það má muna sinn fífill fegurri, eins og ryðtaumar og brotnar tröppurnar bera með sér. Húsið byggði Snæbjörn Jónsson bóksali af tals­verðum efnum og miklum myndar­skap fyrir tæpri öld. Húsið er enda stórt, tæpir 350 fermetrar og samanstendur af tveimur íbúðum, kjallara og risi, samkvæmt teikningum. Þó er varla hægt að tala um að í dag séu í húsinu það sem í daglegu tali kallast íbúðir. 

Í húsinu eru leigu­herbergi sem eru heimili hátt í þrjátíu íbúa. Íbúarnir er flestir útlendingar sem komið hafa til Íslands til að vinna og hefja nýtt líf. Þeir búa við aðstæður sem fáir Íslendingar myndu sætta sig við. Aðeins einn reyk­skynjari er í húsinu, stað­settur í risinu þar sem eru þrjú herbergi. Í einu af þessum þremur herbergjum er gluggi sem ekki er hægt að opna og þar eru heldur …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Greyið, lepur dauðann úr skel....
    1
  • Þórunn Geirsdóttir skrifaði
    Dóttir mín og vinkona hennar bjuggu í kjallaranum þegar hún flutti að heiman 18 ára. Myglusveppur var í íbúðinni sem var pinkulítil. Hann sagði þeim upp leigunni til þess að geta skipt þessari pínulitlu holu í tvær einingar. Þegar þær sóttust eftir að fá trygginguna tilbaka þverneitaði maðurinn að borga þeim tilbaka. Þegar við foreldrarnir ætluðum að skerast í leikinn fengum við hótanir.
    0
  • Jón Kristjánsson skrifaði
    Djöfuls óþokki og viðbjóður!!!....okurleiga fyrir ömulegt og hættulegt húsnæði!! Af hverju er ekki tekið á þessu??!!
    3
  • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
    Ég get ekki skilið að það sé ekki hægt að stórsekta þennan leigusala og banna honum að leigja út herbergi þar sem litlar sem engar brunavarnir eru. Og að hólfa niður hús, þarf ekki leyfi ef maður er leigusali?? Skil ekki þetta dugleysi hjá borginni og slökkviliðinu.
    2
  • Ásgeir Överby skrifaði
    „Ég neyði engan til
    að leigja hjá mér“
    Engin nauðung á neinu. Í fljótu bragði virðist maðurinn góðmenni.
    1
  • Stefán Örvar Sigmundsson skrifaði
    Þessi Alexander hljómar eins og algjört skítseiði.
    4
    • Gauti Bergmann Víðisson skrifaði
      Hvað heitir hann meira en bara Alexander? Sé það ekki nema ég borgi fyrir eitthvað sem ég lít á af og til.
      0
    • Birna Bjarnadottir skrifaði
      alexander hugi leifsson
      0
  • Siggi Rey skrifaði
    Svo verður fár mikið ef eiotthvað skelfilegt kemur upp á.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neyð á leigumarkaði

ViðtalNeyð á leigumarkaði

Týndi árum á leigu­markaði

Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda, upplifir sig fastan á leigu­markaði. Hann hefur í tvígang reynt að festa kaup á íbúð frá því að hann byrjaði að leigja eftir skilnað en hefur ekki tekist það. Baráttan, höfnunin og upplifun sem hann lýsir sem áfalli segir hann hafa haft mikil og lang­varandi áhrif á andlega heilsu hans og atgervi. Hann segir árin sem farið hafa í baráttuna ekki koma aftur og þess vegna séu þau í raun týnd.
FréttirNeyð á leigumarkaði

Missti leigu­íbúðina við brunann

Sögu Nazari dreymir um að eignast íbúð en er að eigin sögn föst á óöruggum leigu­markaði þar sem leiguverð sé óbærilega hátt og lífsgæði leigjenda mun lakari en flestra íbúða­eigenda, aðeins ungt fólk sem eigi efnaða foreldra geti keypt íbúð. Saga er nú í endur­hæfingu, meðal annars vegna áfalls sem hún varð fyrir í september í fyrra en þá kviknaði í íbúð sem hún leigði.

13 mín. lestur

FréttirNeyð á leigumarkaði

Ráðherra segir leigu­markaðinn „óstöðugan og óáreið­an­legan“

Nokkrir ráðherrar og þingmenn segja leigu­markaðinn á Íslandi óöruggan. „Miskunnar­laus“ segir einn. „Ónýtur“ segir annar. Forsætis­ráðherra keypti íbúð því hún þurfti að flytja reglulega meðan hún var leigjandi og matvæla­ráðherra segir leigu­markaðinn óstöðugan og óáreið­an­legan. Nokkrir keyptu íbúð til að tryggja öryggi fjöl­skyldunnar.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár