Neyð á leigumarkaði í boði stjórnvalda

Samtök leigj­enda kalla eftir reglu­verki til að koma í veg fyrir ömur­legt ástand á leigu­mark­aði þar sem fólk neyð­ist til að sækja í ósam­þykkt og óleyfi­legt hús­næði vegna hás leigu­verðs. Ráð­herrar og þing­menn virð­ast vel með­vit­aðir um ástandið og flúðu sjálfir leigu­mark­að­inn við fyrsta tæki­færi. Engu að síður er það nið­ur­staða nýlegrar rann­sóknar að leigusalar hafi umboð stjórn­valda til að herja á leigj­endur.

Neyð á leigumarkaði í boði stjórnvalda
Bar­áttu­sam­tök Vilborg Bjarka­dóttir og Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son end­ur­vöktu Samtök leigj­enda árið 2021 úr löngum dvala. Mynd: Heiða Helgadóttir

Vilborg Bjarka­dóttir og Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son end­ur­vöktu Samtök leigj­enda árið 2021 úr löngum dvala. „Þetta eru bar­áttu­sam­tök,“ útskýrir Vilborg, „alvöru bar­áttu­sam­tök sem eiga að berj­ast fyrir betri kjörum leigj­enda“, á mark­aði sem þau lýsa sem svæsnum, enda segja þau að leigu­mark­að­ur­inn byggi á neyð fólks og þar ríki algjör óstjórn. Rétt tæp­lega 90% leigj­enda vilja frekar búa í eigin hús­næði en vera á leigu­mark­aði og tæp­lega sjö af hverjum tíu segj­ast vera leigj­endur af nauð­syn. Fólk á leigu­mark­aði greiðir að með­al­tali um 45 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu. Þá greiðir tals­verður hluti heim­ila yfir 70 pró­sent eða meira af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu.

„Við viljum leigu­þak, við viljum leigu­bremsu og við viljum að hið opin­bera komi miklu sterkar inn, að það séu opin­ber leigu­fé­lög, óhagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög eða lítt hagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög. En stjórn­völd verða að fara að bregð­ast miklu hraðar við. Af því að ef ekk­ert verður gert þá …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HSG
    Helga Salbjörg Guðmundsdóttir skrifaði
    Og svo skilja sumir ekki af hverju öryrkjum fjölgar í "landi tækifæranna" :(

    https://www.mannlif.is/frettir/bjarni-benediktsson-ahyggjufullur-oryrkjum-fjolgar-sem-nemur-ollum-vestmannaeyingum/
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neyð á leigumarkaði

Týndi árum á leigumarkaði
ViðtalNeyð á leigumarkaði

Týndi árum á leigu­mark­aði

Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Samtaka leigj­enda, upp­lifir sig fastan á leigu­mark­aði. Hann hefur í tvígang reynt að festa kaup á íbúð frá því að hann byrj­aði að leigja eftir skilnað en hefur ekki tek­ist það. Baráttan, höfn­unin og upp­lifun sem hann lýsir sem áfalli segir hann hafa haft mikil og langvar­andi áhrif á and­lega heilsu hans og atgervi. Hann segir árin sem farið hafa í bar­átt­una ekki koma aftur og þess vegna séu þau í raun týnd.
Missti leiguíbúðina við brunann
FréttirNeyð á leigumarkaði

Missti leigu­í­búð­ina við brun­ann

Sögu Nazari dreymir um að eign­ast íbúð en er að eigin sögn föst á óör­uggum leigu­mark­aði þar sem leigu­verð sé óbæri­lega hátt og lífs­gæði leigj­enda mun lak­ari en flestra íbúða­eig­enda, aðeins ungt fólk sem eigi efn­aða for­eldra geti keypt íbúð. Saga er nú í end­ur­hæf­ingu, meðal ann­ars vegna áfalls sem hún varð fyrir í sept­em­ber í fyrra en þá kvikn­aði í íbúð sem hún leigði.
Ráðherra segir leigumarkaðinn „óstöðugan og óáreiðanlegan“
FréttirNeyð á leigumarkaði

Ráðherra segir leigu­mark­að­inn „óstöðugan og óáreið­an­legan“

Nokkrir ráð­herrar og þing­menn segja leigu­mark­að­inn á Íslandi óör­uggan. „Mis­kunn­ar­laus“ segir einn. „Ónýtur“ segir annar. For­sæt­is­ráð­herra keypti íbúð því hún þurfti að flytja reglu­lega meðan hún var leigj­andi og mat­væla­ráð­herra segir leigu­mark­að­inn óstöðugan og óáreið­an­legan. Nokkrir keyptu íbúð til að tryggja öryggi fjöl­skyld­unnar.
Ástandið á leigumarkaði getur grafið undan geðheilsu leigjenda
FréttirNeyð á leigumarkaði

Ástandið á leigu­mark­aði getur grafið undan geð­heilsu leigj­enda

Elín Ebba Ásmunds­dóttir, sem hefur starfað að geð­heil­brigðs­málum í fjöru­tíu ár, segir að leigu­mark­að­ur­inn grafi undan geð­heilsu fólks. Kvíði leigj­enda yfir því að ná ekki endum saman og að þurfa jafn­vel að flytja gegn vilja sínum sé mjög skað­legur. Það sé umhugs­un­ar­efni að sumt fólk græði á óförum ann­arra og að yfir­völd leyfi það.
Kvartaði undan myglu og missti íbúðina
FréttirNeyð á leigumarkaði

Kvartaði undan myglu og missti íbúð­ina

Bryndís Ósk Odd­geirs­dóttir neyð­ist til að flytja með fjöl­skyldu sína úr íbúð sem hún hefur leigt frá því síð­ast­liðið haust. Hún segir leigusal­ann hafa rift samn­ingi við þau í kjöl­far þess að hún kvart­aði undan myglu í íbúð­inni. Hún telur að lítil við­brögð við fyr­ir­spurnum hennar um leigu­í­búðir helgist af því að mað­ur­inn hennar er af erlendum upp­runa.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár