Forsætisráðherra segir fulla ástæða til að hafa áhyggjur af kjarnorkuhótunum

Jón Ólafsson, pró­fessor og sér­fræð­ingur í mál­efnum Rúss­lands, og Guð­mundur Hálf­dán­ar­son, pró­fessor í sagn­fræði eru sam­mála um að sú ákvörðun Vladimir Pútíns, for­seta Rúss­lands, að setja kjarn­orku­vopna­sveitir sínar í við­bragðs­stöðu sé hvorki inn­an­tóm hótun né raun­veru­leg ógn. Með þessu sé Pútín að minna á að hann eigi kjarn­orku­vopn. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir fulla ástæðu til þess að hafa áhyggjur af yfir­lýs­ingum af þessu tagi.

Forsætisráðherra segir fulla ástæða til að hafa áhyggjur af kjarnorkuhótunum
Pútín er að senda okkur skila­boð Pútín fyr­ir­skip­aði kjarn­orku­vopna­sveitum sínum að hækka við­bún­að­ar­stig sitt en það er ekki í fyrsta skipti sem það hefur verið gert, í Kalda stríð­inu hækk­uðu bæði Banda­ríkja­menn og Rússar við­bún­að­ar­stig sitt. Katrín Jak­obs­dóttir telur fulla ástæðu til þess að hafa áhyggjur af slíkri fyr­ir­skipun miðað við aðstæður. Mynd: Stundin / JIS

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af hót­unum um beit­ingu kjarn­orku­vopna, en Vladimir Pútín lýsti því yfir á sunnu­dag að hann hefði sett kjarn­orku­sveitir sínar í við­bragðs­stöðu og í dag sagði Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rússa að ef kæmi til þriðju heim­styrj­ald­ar­innar yrðu kjarn­orku­vopnum beitt. 

„Það er alvar­legt að leið­togi ríkis sem ræður yfir kjarna­vopnum, sem hefur fyr­ir­skipað inn­rás í annað ríki í trássi við alþjóða­lög og lætur ekki af þeim hern­aði, fyr­ir­skipi kjarn­orku­sveitum sínum að vera í við­bragðs­stöðu. Það er full ástæða til þess að hafa áhyggjur af yfir­lýs­ingum af þessu tagi þegar staða í örygg­is­málum er eins alvar­leg og raun ber vitni. Rík­is­stjórnin fylgist grannt með hvernig mál eru að þró­ast,“ segir Katrín, innt eftir svörum við því hvernig hún, sem for­sæt­is­ráð­herra Íslands og for­maður Þjóðar­ör­ygg­is­ráðs, meti stöð­una í ljósi ákvörð­unar Pútíns að setja kjarn­orku­vopna­sveitir í við­bragðs­stöðu vegna harðra við­bragða Vest­ur­veld­anna við inn­rás Rússa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ívar Larsen skrifaði
    Hvenær verður dreift Kalashnikov rifflum hér til barna og gamalmenna?
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár