Forsætisráðherra segir fulla ástæða til að hafa áhyggjur af kjarnorkuhótunum

Jón Ólafsson, prófessor og sérfræðingur í málefnum Rússlands, og Guðmundur Hálf­dánarson, prófessor í sagnfræði eru sammála um að sú ákvörðun Vladimir Pútíns, forseta Rússlands, að setja kjarnorku­vopna­sveitir sínar í viðbragðs­stöðu sé hvorki innantóm hótun né raun­veruleg ógn. Með þessu sé Pútín að minna á að hann eigi kjarnorku­vopn. Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir fulla ástæðu til þess að hafa áhyggjur af yfir­lýsingum af þessu tagi.

Pútín er að senda okkur skilaboð
Pútín er að senda okkur skila­boð Pútín fyr­ir­skip­aði kjarn­orku­vopna­sveitum sínum að hækka við­bún­að­ar­stig sitt en það er ekki í fyrsta skipti sem það hefur verið gert, í Kalda stríð­inu hækk­uðu bæði Banda­ríkja­menn og Rússar við­bún­að­ar­stig sitt. Katrín Jak­obs­dóttir telur fulla ástæðu til þess að hafa áhyggjur af slíkri fyr­ir­skipun miðað við aðstæður. Mynd: Stundin / JIS

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af hótunum um beitingu kjarnorku­vopna, en Vladimir Pútín lýsti því yfir á sunnudag að hann hefði sett kjarnorku­sveitir sínar í viðbragðs­stöðu og í dag sagði Sergei Lavrov, utan­ríkis­ráðherra Rússa að ef kæmi til þriðju heim­styrjaldarinnar yrðu kjarnorku­vopnum beitt. 

„Það er alvarlegt að leiðtogi ríkis sem ræður yfir kjarna­vopnum, sem hefur fyrir­skipað innrás í annað ríki í trássi við alþjóðalög og lætur ekki af þeim hernaði, fyrir­skipi kjarnorku­sveitum sínum að vera í viðbragðs­stöðu. Það er full ástæða til þess að hafa áhyggjur af yfir­lýsingum af þessu tagi þegar staða í öryggis­málum er eins alvarleg og raun ber vitni. Ríkis­stjórnin fylgist grannt með hvernig mál eru að þróast,“ segir Katrín, innt eftir svörum við því hvernig hún, sem forsætis­ráðherra Íslands og formaður Þjóðar­öryggisráðs, meti stöðuna í ljósi ákvörðunar Pútíns að setja kjarnorku­vopna­sveitir í viðbragðs­stöðu vegna harðra viðbragða Vestur­veldanna við innrás Rússa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ívar Larsen skrifaði
    Hvenær verður dreift Kalashnikov rifflum hér til barna og gamalmenna?
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár