Hækkandi hitastig veldur nýrri tegund af náttúruvá

Áhrif lofts­lags­breyt­inga eru sjá­an­leg og hita­stig hefur hækkað tals­vert frá því að skipu­legar mæl­ingar hófust. Ekki er nóg að reyna að lág­marka áfram­hald­andi hlýnun heldur er nauð­syn­legt að bregð­ast við áhrifum sem þegar hafa orðið á Íslandi.

Hitabreytingar 1850-2015 Hækkun hita á Íslandi samkvæmt mælingum Í Stykkishólmi frá 1850 til 2015. Það eru lengstu samfelldu hitamælingar sem fram hafa farið á Íslandi. Á því tímabili hefur rösk hækkun hitastigs leitt af sér um 1,1 gráðu hækkun á meðalhita þrátt fyrir kuldaköst á sama tímabili.

Hitastig á Íslandi hefur hækkað veru­lega frá því að hér hófust skipu­legar veð­ur­mæl­ingar. Þegar gögn um hita­mæl­ingar eru skoð­aðar á tíma­bil­inu frá 1830 til 2019 sést að hækk­unin hefur verið afger­andi upp á við þó að inn á milli hafi komið mæl­an­leg kulda­köst. 

„Það er alveg klárt að þessi kyn­slóð sem núna er á dögum hefur horft á að síð­ustu tutt­ugu og fimm árin hefur hlýnað gríð­ar­lega mikið og það er með hröð­ustu hlýn­un­ar­tíma­bilum Íslands­sög­unnar,“ segir Tómas Jóhann­es­son, doktor í jarð­eðl­is­fræði og fag­stjóri á sviði jökla­fræði hjá Veð­ur­stofu Íslands. „Það er mis­mun­andi eftir stöðum á jörð­inni hvort þessi hlýnun er að koma fram frá ári til árs eða hvort það verður smá hiksti. Frá ári til árs hefur ekki hlýnað núna síð­ustu 10 árin en afleið­ing­arnar af þeirri hlýnun sem orðin er, hún er að koma alltaf skýrar og skýrar fram.“

Skörp hækkun síð­ustu 15 ára hefur verið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn Ásgeirsson skrifaði
    Gríðarleg tækifæri fyrir Ísland vegna hlýnunar jarðar!
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár